Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.07.2007, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 16.07.2007, Qupperneq 10
Landmælingar Íslands og Slysavarnafélagið Landsbjörg hafa undirritað samning þess efnis að efla samstarf sín á milli. Er það gert til að auka notkun korta og annarra landupplýsinga í starfsemi björgunarsveita á Íslandi. Samstarfið er þróunarverkefni í þágu almannaöryggis og er meginmarkmiðið að auka og bæta upplýsingastreymi til björgunar- aðila. Samningur um kortanotkun Ógnvænlegur orðrómur hefur vakið ótta íbúa stríðshrjáðu borgarinnar Basra í Írak – að breski herinn hafi sleppt tröll- vöxnum greifingjum sem gangi um götur að nóttu til og sporð- renni mannfólki. Bændur á svæðinu hafa drepið nokkra af greifingjunum, en íbúar telja óværuna vera hryðjuverk af hálfu Breta. „Hún át meira að segja kú, reif hana í sundur. Ég reyndi að skjóta hana en hún flúði,“ segir bóndi. Greifingjarnir eru algengir í Mið-Austurlöndum, en sjaldséðir í Írak. Þeir eru ekki hættulegir mönnum, nema þeim sé ógnað, að sögn Daily Telegraph. Risagreifingjar skelfa Íraka Hamid Karzai, for- seti Afganistans, lét í gær lausan úr fangelsi fjórtán ára dreng frá Pakistan, sem hafði ætlað að fremja sjálfsvígsárás. Pilturinn, sem heitir Rafiqullah, var hand- tekinn í austurhluta Afganistans þar sem hann hugðist gera árás á héraðsstjórann í Khost-héraði. Rafiqullah segir að hann hafi verið sendur á kóranskóla í Pakistan. Þar hafi hann og tveir aðrir piltar verið teknir afsíðis og þjálfaðir til að fremja sjálfsvígs- árásir. Þeim hafi verið kennt að aka bifreið og látnir horfa á myndbönd þar sem sjálfsvígs- árásarmenn sjást fremja árásir sínar. „Hann er ekki sekur,“ sagði Karzai forseti og skellti sökinni alfarið á kennara piltsins í trúar- skólanum. „Ég fyrirgef honum og óska honum alls hins besta.“ Rafiqullah segist hafa farið gangandi yfir landamærin til Afganistans, þar sem maður að nafni Abdul Aziz lét hann fá sprengjuvesti. Rafiqullah sagðist hafa sagt Aziz að hann þyrði ekki að gera slíka árás, en þá hafi honum verið hótað með byssu. Foreldrar piltsins „sendu hann til náms í kóranskóla,“ sagði Karzai. „Óvinir íslamstrúar blekktu hann og bjuggu hann undir að fremja sjálfsvígsárás til að drepa sjálfan sig og fleira fólk.“ Í síðustu viku sagðist faðir pilt- sins hafa spurt kennara hans í trúarskólanum hvar strákurinn væri, en ekki fengið nein skýr svör. „Ég vissi ekki að sonur minn ætlaði að fremja sjálfsvígsárás í Afganistan,“ sagði faðirinn Matiullah. Átti að gera sjálfsvígsárás

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.