Fréttablaðið - 16.07.2007, Qupperneq 12
Vísindamenn leita nú til almennings um
hjálp við að flokka milljón stjörnuþokur, að því
er fram kemur á fréttavef BBC. Vonast er til
að um 300.000 manns taki þátt í verkefninu,
sem heitir Galaxy Zoo, og getur hjálpað við að
leiða í ljós hvort sú mynd sem við höfum af
heiminum í dag sé rétt.
Fólk er beðið um að skrá sig inn á vefsíðu þar
sem það fær þriggja mínútna kennslu. Síðan er
því úthlutað nokkrum myndum og beðið um að
greina á milli hvort myndin sýni þyrilþoku eða
sporvöluþoku. Ef myndin sýnir þyrilþoku á að
greina í hvora átt hún snýst.
Kevin Schawinski stjarneðlisfræðingur er
einn þeirra sem stýra verkefninu. Sjálfur
flokkaði hann um 50.000 stjörnuþokur á einni
viku, sem hann segir hafa verið ansi þrúgandi.
Vonast hann til að með hjálp almennings gangi
þessi vinna hraðar fyrir sig. „Hvort sem þú
verður fimm mínútur, korter eða fimm
klukkustundir á vefsíðunni er framlag þitt
ómetanlegt,“ segir Schawinski.
Slóðin á er www.galaxyzoo.org.
Fólk beðið um að flokka stjörnuþokur
Níu konur sóttu um
embætti framkvæmdastjóra
Jafnréttisstofu, en umsóknar-
frestur rann út fyrir sléttri viku.
Umsækjendur voru Helena
Þuríður Karlsdóttir forstöðumað-
ur, Herdís Á. Sæmundardóttir
varaþingmaður, Hjördís Ýrr
Skúladóttir skipulagsstjóri, Jóna
Lovísa Jónsdóttir framkvæmda-
stjóri, Katrín Oddsdóttir meist-
araprófsnemi, Kristín Ástgeirs-
dóttir forstöðumaður, Martha
Lilja Marthensdóttir Olsen,
þjónustu- og kennslustjóri,
Sigríður Margrét Sigurðardóttir
skólastjóri og Þuríður Helga
Þorsteinsdóttir kennari. -
Níu konur sóttu
um starfið
Ayman al-Zawahri,
næstráðandi í al-Kaída samtökun-
um á eftir Osama Bin Laden, var
aðeins átta daga að koma skilaboð-
um um umsátrið við Rauðu mosk-
una í Íslamabad, sem hófst í síðustu
viku, á internetið. Þegar fjórir
hryðjuverkamenn sprengdu sjálfa
sig í loft upp og drápu tugi manna í
London í júlí árið 2005 tók það al-
Zawahri hins vegar tæpan mánuð
að koma skilaboðum sínum um
hryðjuverkin í fjölmiðla.
Starfsmenn leyniþjónusta í hinum
vestræna heimi telja að þetta bendi
til þess að al-Kaída samtökin hafi
betri aðgang að fjölmiðlum nú en
áður. Ben Venzke, hjá bandaríska
leyniþjónustufyrirtækinu Intel-
Center sem fylgist með og greinir
skilaboð frá hryðjuverkasamtök-
um, segir að skilaboð sem al-Kaída
hefur komið í fjölmiðla í ár séu tvö-
falt fleiri en í fyrra. Hann segir að
al-Kaída hafi komið 58 hljóð- og
myndskilaboðum í fjölmiðla árið
2006 en á fyrstu sex mánuðum þessa
árs hafi samtökin birt 62.
Orð Venzkes koma heim og saman
við nýlega skýrslu sem yfirvöld í
Bandaríkjunum létu vinna þar sem
kemur fram að al-Kaída hefur
aldrei verið sterkari en nú. Og þrátt
fyrir að enginn grunur leiki á að al-
Kaída muni gera hryðjuverkaárás á
Bandaríkin þá hefur ráðherra
örygggismála í Bandaríkjunum,
Michael Chertoff, sagt að hann
„hafi það á tilfinningunni“ að ráðist
verði á Bandaríkin í sumar.
Árás gæti verið yfirvofandi
Rússneska gas-
vinnslu-einokunarfyrirtækið
Gazprom tilkynnti á föstudag að
það hefði valið franska fyrirtækið
Total SA til samstarfs um að þróa
gasvinnslu á Shtokman-svæðinu
svonefnda í Barentshafi.
Gaslindirnar á Shtokman-
svæðinu eru með þeim stærstu í
heiminum, en vandasamt er að ná
gasinu upp þar sem lindirnar
liggja langt undir hafsbotni í yfir
550 km fjarlægð frá landi.
Ákvörðunin um að bjóða Total
til samstarfs markar stefnu-
breytingu af hálfu Rússa, sem
tilkynntu í fyrra að erlend
fyrirtæki fengju ekki að koma að
Shtokman-verkefninu nema sem
verktakar.
Samstarf við
Total boðar
stefnubreytingu