Fréttablaðið - 16.07.2007, Page 23
fasteignir
16. JÚLÍ 2007
Árborgir á Selfossi eru með til sölu vel skipulagt
og mikið endurnýjað einbýlishús á eignarlóð.
H úsið stendur við Jórutún og er byggt úr timbri árið 1989. Gengið er inn í flísalagða forstofu og þaðan
í parketlagt alrými og rúmgóða borðstofu. Stofan er
björt með parketi á gólfum, uppteknu lofti og útgengi
á verönd. Eldhúsið er flísalagt með eyju úr ljósri eik
og vönduðum tækjum. Þaðan eru dyr út á verönd og í
sólskála og einnig inn í flísalagðan bílskúr með þvotta-
hússinnréttingu, millilofti og litlu búri. Við hjónaher-
bergið er stórt fataherbergi og flísalagt baðherbergi
með ljósri innréttingu, upphengdu salerni, baðkari
og sturtu. Þrjú önnur svefnherbergi eru í húsinu og
tómstundaherbergi inn af bílskúr. Aðal baðherberg-
ið er flísalagt í hólf og gólf með hvítri innréttingu,
sturtuklefa og upphengdu salerni.
Húsið er 196 fermetrar að stærð og því fylgir 38,4
fermetra bílskúr. Lóðin er í góðri rækt, gangstígar
hellulagðir og bílastæði steini lögð. Um 100 fermetra
sólpallur er sunnan og vestan við húsið með veggjum
sem skapa skjól. Hann er upplýstur og einnig gang-
stígarnir. Við pallinn er 10 fermetra gróðurhús sem
hitað er upp með afrennsli frá húsinu. Þar er renn-
andi vatn, ljós og rafmagn. Upplýst, lítið garðhús er
líka á lóðinni.
Óskað er tilboða í eigina.
Gróðurhús í garðinum
Húsið stendur við Jórutún á Selfossi.
Pallarnir við húsið eru upplýstir og skjólsælir.
Þráðlaus þægindi frá Danfoss
Gólfhiti - einfaldari en nokkru sinni fyrr
Þráðlausar gólfhitastýringar
Háþróaðar en einfaldar
Við erum leiðandi í hönnun og
framleiðslu gólfhitastýringa
Danfoss stjórnbúnaður fyrir hitakerfi fæst í öllum helstu lagnaverslunum landsins
Sævangur - Einbýli
220 Hafnarfirði
Sími 512 3600
www.logheimili.is - Jónas Örn Jónasson, lögg. fasteignasali
LÖGHEIMILI EIGNAMIÐLUN kynnir í einkasölu glæsi-
legt einbýli á tveim hæðum við verðlaunagötu í
Hafnarfirði Möguleiki á aukaíbúð í kjallara. Teikn-
að af Kjartani Sveinssyni. Um er að ræða 270 fm
glæsilegt einbýlishús á tveimur hæðum í Hafnar-
firði. Um er að ræða eign sem er á mjög eftirsókn-
arverðum stað. Lóðin er í fallegu hraunuðu um-
hverfi. Hellulagt svæði fyrir framan bílskúr með
tveimur stæðum. Garðurinn er mjög gróinn og
viltur. Verð 73 millj.
Grensásvegi 12A • 108 Reykjavík
UMBROT
Tökum að okkur að setja upp prentverk, stór sem smá.
Auglýsingar, bækur, blöð, dreifibréf, fréttabréf, nafnspjöld,
tímarit og hvað eina sem þarf að prenta.
sími: 568 1000//gsm: 824 6610//frum@frum.is//www.frum.is