Fréttablaðið - 16.07.2007, Page 32
„Ég vissi alltaf að ég myndi
afreka eitthvað merkilegt –
hvort sem það væri að ræna
banka eða eitthvað annað.“
Vegleg skilti sem Ferðafélag Íslands
hefur sett upp og sýna leiðina um
Laugaveginn, milli Landmannalauga og
Þórsmerkur voru vígð nýlega. Skiltin
eru tíu og standa við skála félagsins
við Hrafntinnusker, Landmannalaugar,
Álftavatn, Emstrur og Þórsmörk.
Á þeim eru þrívíddarmyndir af
landslaginu og leiðbeiningar á
þremur tungumálum um dagleiðir,
öryggisþætti og fleira sem ferðamenn
varðar um á þessari vinsælu gönguleið.
Ómar Svavarsson listamaður málaði
skiltin á grunn frá Landmælingum
Íslands, Árni Tryggvason hönnuður
setti örnefnin inn á og lauk frágangi og
menningarsjóður VISA Íslands kostaði
framtakið. „Þetta er nýjung hér á landi
en minnir á skiltin í Ölpunum. Okkur
finnst þessi samt enn flottari,“ sagði
Páll Guðmundsson, framkvæmdastjóri
Ferðafélagsins, er í hann náðist á ferð
um Hrauneyjar á leið í vígsluathöfnina
í Landmannalaugum.
Vísa leið um Laugaveginn
Minnisvarði var afhjúpaður
á Reykjum á Skeiðum hinn
8. júlí síðastliðinn í tilefni
af því að hundrað ár eru
liðin frá því sandgræðsla á
vegum ríkisins hófst hér á
landi.
Hinn 8. júlí 1907 var
byrjað að byggja grjótgarða
á Reykjasandi á Skeiðum
til að hefta sandfok sem
þá ógnaði miklum hluta
sveitarinnar. Fyrsta
sumarið voru gerðir 700
faðmar af grjótgörðum
og þurfti að flytja grjótið
langan veg á hestvögnum.
Þennan grjótgarð má enn
líta á Reykjasandi.
Landgræðsla ríkisins,
sem áður hét Sandgræðsla
Íslands, minntist þessa
upphafs landgræðslustarfs á
Íslandi með því að setja upp
minnisvarða á Reykjum.
Sandgræðsla í
hundrað ár
Fallegir legsteinar
á góðu verði
www.minningargreinar.is
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
Aðstandendur Sögusafns-
ins tóku á móti góðri gjöf
á dögunum. Kennarar og
nemendur Minersville Area
High School í Pennsylv-
aníu í Bandaríkjunum af-
hentu safninu sleða sem er
nákvæm eftirlíking af sleða
sem fannst og var grafinn
upp í Gaukstaðarskipinu í
Noregi árið 1880 en talið er
að skipið sé frá 895.
Sleðann smíðuðu nem-
endur og kennarar skólans
undir leiðsögn Arne Emil
Cristensen frá Viking Ship
Museum í Osló og Ned Eis-
enhuth kennara í Pennsylv-
aníu.
Sögusafnið mun hafa sleð-
ann til sýnis fyrst um sinn
en hann verður seinna hluti
af leikmynd í safninu.
Sleði frá níundu öld
„Við erum sjö starfsmenn í deildinni
og þrír fæddir 16. júlí. Á ganginum
okkar vinna yfirleitt níu aðrir og einn
þeirra á líka afmæli í dag. Kannski er
þetta „tölvuheiladagur“ eða eitthvað
svoleiðis því við vinnum á því sviði.
Ég er hins vegar sá eini við störf
því hinir eru allir í sumarfríi,“ segir
Guðlaugur Sigurgeirsson, deildarstjóri
hjá Landsneti, dótturfyrirtæki Lands-
virkjunar. Hann er fimmtíu og eins árs
í dag. Hin afmælisbörnin í deildinni
hans eru þeir Hörður Benediktsson
sem er sextugur og Guðjón Kárason
sem er fjörutíu og sjö ára en í þá náðist
ekki fyrir þessi tímamót.
Þegar Guðjón er spurður hvort hann
sem yfirmaður ráði ekki bara fólk til
starfa sem eigi sama afmælisdag og
hann svarar hann hlæjandi. „Nei, það
passar ekki því ég kom síðastur hingað af
okkur þremur. Ég byrjaði 2002 en hinir
eru búnir að vinna hér miklu lengur.
Guðjón hátt í tuttugu ár og Hörður enn
lengur.“ Hugsandi: „Þeir hafa kannski
verið með einhverjar leynilegar kröfur
um að nýi starfsmaðurinn yrði að eiga
sama afmælisdag og þeir þegar ég
var ráðinn? – Nei, ég held ekki. Þetta
er alger tilviljun og setur eiginlega
alla líkindafræði á hliðina. Það er svo
ólíklegt að svona gerist. En þetta er
skemmtileg staðreynd.“
Ekki minnist Guðlaugur þess að
þeir vinnufélagarnir hjá Landsneti
hafi gert sér dagamun saman af þessu
tilefni. „Þetta er sá tími sem flestir
reyna að vera í fríi og njóta sumarsins
og það hefur alltaf hist þannig á að við
erum tvístraðir þennan dag.“
Hjá honum verður dagurinn í dag
helgaður vinnu. „Þegar ekki er um
tugaafmæli að ræða og afmælið ber
auk þess upp á virkan dag verður
það eins og hver annar dagur og
gleymist,“ segir hann og bætir við
glettinn. „Svo þegar maður er líka
kominn á þennan aldur þá vill maður
bara að teljarinn stoppi en því er víst
ekki að heilsa.“
Það eru ekki bara vinnufélagar
Guðlaugs sem eiga sama afmælisdag
og hann því systir hans á það líka.
„Af þremur systkinum fæddumst
við tvö hinn 16. júlí en erum þó ekki
tvíburar. Þannig að það er eitthvað
í skammdeginu í október sem gerir
það að verkum að allt stílast inn á
þennan dag. Það er dálítið sérstakt.“
Ræningjar herja á Eyjar