Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 38
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
HARRY POTTER kl. 3 - 4 - 6 - 7 - 9 - 10
HARRY POTTER LÚXUS kl. 3 - 6 - 9
EVAN ALMIGHTY kl. 4 - 6 - 8 - 10
DIE HARD 4.0 kl. 5 - 8 - 10.45
FANTASTIC FOUR 2 kl. 3
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
TAXI 4 kl. 6 - 8 - 10
THE LOOKOUT kl. 5.50 - 8 - 10.10
DIE HARD 4.0 kl. 5.30 - 8 - 10.40
PREMONITION kl. 5.45 - 8
FANTASTIC FOUR 2 kl. 10.15
10
10
14
14
14
12
16
12
1408 kl. 8 - 10
EVAN ALMIGHTY kl. 6 - 8
DIE HARD 4.0 kl. 5.40 - 10
16
14
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
TAXI 4 kl. 6 - 8 - 10
1408 kl. 5.50 - 8 - 10.10
DIE HARD 4.0 kl. 5.15 - 8 - 10.45
HÖRKUSPENNANDI GRÍNMYND FRÁ LUC BESSON
NÚ VERÐUR ALLT GEFIÐ Í BOTNBYGGÐ Á SÖGU STEPHEN KING
1408 kl 6, 8 og 10 16
EVAN ALMIGHTY kl. 4, 6, 8 og 10 L
DIE HARD 4.0 kl. 7.30 og 10 14
SHREK 3 íslenskt tal kl. 4 og 5.45 L
ÚTI ER ÆVINTÝRI kl. 4 (450 kr.) L
www.laugarasbio.is - Miðasala á
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
Sími: 553 2075
SHREK, Fíóna, Stígvélaði
kötturinn og Asninn eru
mætt aftur í skemmtilegasta
ævintýri allra tíma
ÁLFABAKKA
DIGITAL
KRINGLUNNI
HARRY POTTER 5
kl. 4 - 5:15 - 7 - 8:15 - 10 - 11:15 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 4 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 6 L
PIRATES 3 kl .8 10
OCEAN´S 13 kl. 11:15 7
VIP
AKUREYRI
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 8 - 10 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 L
KEFLAVÍK
HARRY POTTER 5 kl. 6 - 9 10
EVAN ALMIGHTY kl. 8 L
DIE HARD 4 kl. 10 14
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 6 LVIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 3:30-5-6:30 - 8-9:30-11 10
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 -11 10
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 -11
EVAN ALMIGHTY kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 L
BLIND DATING kl. 8 10
SHREK 3 M/- ÍSL TAL kl. 2 - 4 - 6 L
SHREK 3 M/- Ensku TAL kl. 8 - 10:10 L
OCEAN´S 13 kl. 10:10 7
PIRATES 3 kl. 4 10
UPPREISNIN ER HAFIN
www.SAMbio.is 575 8900
Ef það er eitthvað sem breska
tónlistarpressan elskar þá er
það að búa til nýjar oflofsbólur
í kringum hljómsveitir. Fremst
þar í flokki fer tímaritið NME
sem nefnir annað hvert band þar í
landi „the next big thing“. Nýjasta
fórnarlambið er hljómsveitin The
Twang en samkvæmt lista sem
spekingar BBC gerðu í upphafi
árs var sveitin í öðru sæti yfir
þá tónlistarmenn og hljómsveitir
sem líklegar þóttu til vinsælda
árið 2007. Mika trónaði þar á
toppnum.
En hvað er það í tónlist The
Twang sem gefur þessum
spekingum þessa von? Í fyrsta lagi
er The Twang alveg óendanlega
bresk, allt frá hreim söngvarans
(minnir reyndar ískyggilega
mikið á söngvara OMC sem áttu
smellinn How Bizarre, nema
að Twang-söngvarinn er örlítið
breskari) yfir í lagaheitin. Í öðru
lagi leitar The Twang í smiðjur
eldri bólu-sveita frá Bretlandi.
Helst ber að nefna Manchester-
senuna, Oasis og Echo & the
Bunnymen. Þannig hélt ég til
dæmis að lagið Wide Awake væri
ábreiða þegar ég hlustaði á það
í fyrsta skiptið. Svo kunnulega
hljómaði lagið. Og í þriðja lagi þá
hafa meðlimir The Twang verið
nokkuð óstýrilátir í breskum
fjölmiðlum. Blótuðu sem dæmi
frá sér allt vit í þætti á BBC og
hafa svo verið að rífa kjaft um
aðstöðuleysi á breskum klúbbum
auk þess sem þeir eru óhræddir
við að upphefja sjálfa sig.
Hvað stendur þá eftir? Tónlist
The Twang er engan veginn
nýstárleg og á aldrei eftir að gera
eins mikinn usla og fyrsta verk
sveita á borð við Stone Roses,
Oasis, Happy Mondays og The
Streets sem piltarnir segjast líta
mikið upp til.
Þessi frumburður The Twang
er hins vegar langt frá því að
vera eitthvað meðalmennskuslor.
Lögin eru mörg hver hrífandi
og grípandi og platan rennur
ljúfenglega í gegn. Hefði ekki
verið betra að gefa The Twang
aðeins látlausari umfjöllun og
sanngjarnari? Í staðinn hefur
verið búin til verðlaus bóla sem
er fljót að springa. Er furða þó
maður sé hættur að taka mark á
þessum oflofsbólum Bretanna.
Auðsprengjanleg bóla
Daniel Craig, nýjasti leikarinn
sem bregður sér í hlutverk James
Bond, hefur lofað aðdáendum
Bond-myndanna að meiri húmor
verði að finna í næstu kvikmynd
sem gerð verður um sendiherra
hennar hátignar. Craig þótti
standa sig mjög vel í sinni fyrstu
kvikmynd sem Bond, Casino
Royale, en einhverjir höfðu á orði
að fyndnu atriðin væru mun færri
en í flestum hinum myndunum
um kappann. Craig segir að þær
skoðanir aðdáenda verði
hafðar til hliðsjónar í 22.
myndinni sem gerð verður
um Bond.
„Framleiðendurnir
vilja fleiri brandara og ég
get lofað því að næsta
mynd verður mun
fyndnari en Casino
Royale,“ segir
Craig, sem mun að
sjálfsögðu leika
titilhlutverkið
á ný. „Við þurfum á nafna-
bröndurum á borð við
Octopussy og Pussy Galore að
halda í hverri einustu mynd,“
bætti Craig við í viðtali við
Daily Express í Bretlandi.
Meiri húmor í næstu Bond-mynd
Kryddgellan Victoria
Beckham lætur bandaríska
gamanleikarann Eddie
Murphy fá það óþvegið í
raunveruleikaþættinum
Victoria Beckham: Coming
to America.
Ef til vill er það tilviljunin ein að
þátturinn skuli bera þetta nafn og
að nafn Murphys skuli bera á góma
en ein frægasta mynd hans heitir
einmitt Coming to America. Bresku
blöðin voru stútfull af fréttum
um Beckham-hjónin um helgina
enda hefur hálfgert Beckham-
æði gripið um sig þar vestra.
News of the World greindi hins
vegar frá því í gær að Beckham
hygðist ekki koma sér í mjúkinn
hjá stórstjörnunum í Hollywood
og fyrsta fórnarlamb hennar er
sjálfur Eddie Murphy. Murphy er
Kryddstúlkunum að góðu kunnur
en hann átti í fremur stormasömu
sambandi við Melanie Brown eða
Mel B. Upp úr sambandinu slitnaði
þegar gamanleikarinn hélt framhjá
söngkonunni og sagði henni síðan upp
í hollenskum sjónvarpsþætti.
Mel gekk þá með barn
þeirra en Murphy vildi
ekki gangast við því og
krafðist faðernisprófs.
Niðurstöðurnar úr því
komu í ljós nýlega og
reyndist Eddie
vera faðirinn.
Og Victoria
hefur nú hellt
olíu á eldinn með
ummælum sínum
í áðurnefndum
sjónvarpsþætti.
Þar segir
hún Eddie vera
aðalskíthælinn í
Hollywood og henni
myndi ekki þykja
neitt ánægjulegra
en að skera undan
gamanleikaranum. Í einu atriðinu
bakar Victoria eplaböku og
aðstoðarkona hennar spyr stjörnuna
hvort hún myndi hrækja í matinn
hjá Murphy. Og Victoria
svarar að bragði: „Myndi
ekki hika við það.“
Fréttaskýrendur
í Hollywood eru
sannfærðir um að
þetta sé þaulhugsað
hjá Victoriu
enda ætli hún
sér að verða
umdeild persóna í
Bandaríkjunum.
„Þetta er
stríðsyfirlýsing
og hún er nógu
hugrökk til að
standa við orð
sín,“ segir í
News of the
World.
Margt annað ber á góma í
þættinum, meðal annars fram að
Tom Cruise hafi frætt Beckham-
hjónin um Vísindakirkjuna
en Victoria vísar því
alfarið á bug að hann
hafi reynt að snúa
þeim til trúar sinnar.
Þá sprakk Victoria
úr hlátri þegar
henni voru sýndar
nýjustu myndirnar
af þeim Beckham-
hjónum en þær
þykja í djarfari
kantinum.