Fréttablaðið - 16.07.2007, Side 39
Gítarleikarinn Slash segist ánægður
með að hans gamla hljómsveit Guns
N’ Roses sé að gefa út nýja plötu,
þrátt fyrir að hann hafi yfirgefið
sveitina með illu fyrir meira en
tíu árum síðan. Slash og Axl Rose
lentu í ágreiningi á sínum tíma um
tónlistarstefnu sveitarinnar, sem olli
því að upp úr vinskap þeirra slitnaði
og þeir hafa lítið sem ekkert talast
við síðan þá. Eins og kunnugt er mun
fyrsta plata Guns N’ Roses í fjórtán
ár koma út síðar á árinu en segja má
að lítið sé eftir af hinu upprunalegu
bandi nema söngvarinn Axl Rose.
Þrátt fyrir að Slash vilji með
engu móti
koma að gerð
nýju plötunnar
viðurkennir
gítarleikarinn
hárprúði að
hann geti ekki
beðið eftir því að
heyra afraksturinn.
„Ég er viss um að það
verður magnað rokk sem
við fáum að heyra á nýju
plötunni. Ég þekki Axl og
hvað hann getur gert í tónlist.
Ég hlakka mikið til að heyra
nýju lögin,“ segir Slash.
Jennifer Lopez og Victoria
Beckham segjast báðar eiga
ósköp bágt á stundum vegna
þeirra byrða sem frægðin leggur
á þær. Jennifer sagði nýlega
frá samtali sem þær áttu þar
sem hún hughreysti Victoriu.
„Victoria sagði við mig: „Fólk
gæti aldrei ímyndað sér að þú
sért óörugg. Ertu það? Vegna þess
að ég er það.“ Ég sagðist vera
mjög sjálfsörugg en að ég ætti þó
mínar stundir þar sem ég þjáðist
af óöryggi,“ sagði J-Lo, sem gaf
Victoriu gott ráð. „Þú verður að
meta vel þinn persónuleika og
vera viss um að þú hafir eitthvað
sérstakt og öðruvísi sem enginn
annar hefur,“ sagði hún við frú
Beckham. „Ó, ég elska að heyra
þetta! Það sem þú ert að segja er
svo frábært,“ sagði Victoria að
sögn J-Lo, sem greinilega lumar á
gullmolum.
J-Lo huggar VictoriuSlash spenntur fyrir
nýju plötunni
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, s: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, s: 471 2954
Opið virka daga 10-18 og laugardaga 11-15