Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 2
Eigandi fyrirtækis við Skúlagötu segir
sendibíla pítsastaðarins Dominos við götuna vera
undanþegna bílastæðagjöldum. Röðum af Dominos-
bílum sé lagt ólöglega við stöðumæla á Skúlagötunni,
en bílar annarra sem leggja í stæðin fái sektarmiða.
Kristján Olgeirsson, sem rekur útflutningsfyrir-
tæki við Skúlagötu, lagði bílnum
sínum ólöglega við hliðina á
Dominos-bílunum til að sjá hvort
hann fengi sekt. „Ég gerði það bara
í illsku minni að leggja hérna
bílnum til að sjá hvað mundi
gerast,“ segir Kristján. Ljósmyndir
sem hann tók sýna að bíll hans hafi
einn fengið sektarmiða.
Kristján segist oft sjá stöðu-
mælaverði koma út með nýjar
pítsur í kassa. Hann segist þó ekki
geta sannað að þarna hafi mútur
verið þegnar. „En maður getur rétt
ímyndað sér,“ segir Kristján.
„Ég skal glaður sýna stöðumæla-
sektirnar sem við höfum fengið,“
segir Hrafn Stefánsson, rekstrar-
stjóri Dominos. „Við erum með föst
stæði í bílastæðahúsi hér rétt hjá,
sem við greiðum af mánaðarlega
fyrir alla bíla nema einn, sem við
höfum eitt einkastæði undir hér
fyrir framan.“
Kolbrún Jónatansdóttir, framkvæmdastjóri
Bílastæðasjóðs, segir að í þessu tilviki hafi Dominos-
menn ætlað að fjarlægja bílana áður en stöðumæla-
vörður hóf að skrifa sektina. Kristján hafi einnig
kvartað yfir að fá ekki eitt einkastæði eins og
Dominos.
„Við erum hætt að leigja einkastæði við götur,“
segir Kolbrún. „Það er alveg spurning hvort við
tökum okkur til, ef það eru einhverjar nágrannaerjur,
og segjum upp einkastæði Dominos. Við erum svo
sem í fullum rétti.“
Kolbrún vísar ásökunum um mútur til föðurhús-
anna. „Hann var að ýja að því að við værum á fríum
pítsum. Ég borða ekki einu sinni Dominos pítsur. Við
höfum stundum keypt mat í vinnunni og hann hefur
aldrei verið frá Dominos.“
Kolbrún segir ekkert fyrirtæki fá sérmeðferð. „Ef
ég borga ekki í stæði þá ber vörðunum að skrifa á
mig. Ég borga reyndar alltaf í stæði, en ég veit að
fyrri framkvæmdastjóri lenti í því. Hann fékk
sektarmiða og gerði sér ferð í afgreiðsluna og
borgaði hjá gjaldkeranum. Þannig að það eru allir
jafnir hjá okkur.“
Stöðumælaverðir sem Fréttablaðið ræddi við
segja að þeim séu oft boðnar mútur, þá yfirleitt í
formi matvæla. Þeir hafi þó sjálfir aldrei þegið slíkt.
Segir stöðumæla-
verði hlífa Dominos
Eigandi fyrirtækis við Skúlagötu segir stöðumælaverði sleppa því að sekta sendi-
bíla Dominos. Hann grunar að stöðumælavörðum sé mútað með pítsum. „Ég
borða ekki einu sinni Dominos pítsur,“ segir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs.
Demókratar í
öldungadeild Bandaríkjaþings
bjuggu sig í gær undir langan og
strangan þingfund um Íraksmál-
ið, sem standa átti alla nóttina.
Reiknað er með endanlegri
atkvæðagreiðslu í deildinni í dag.
Demókratar, sem hafa nauman
meirihluta í deildinni, höfðu
einsett sér að fá samþykkt lög um
að brotthvarf bandaríska hersins
frá Írak hefjist eftir 120 daga og
síðasti hermaðurinn verði farinn í
apríl á næsta ári.
Sams konar frumvarp var
samþykkt í fulltrúadeild fyrir
stuttu, en George W. Bush
Bandaríkjaforseti hefur sagst
staðráðinn í að beita neitunar-
valdi sínu.
Næturfundur
um Íraksmálið
Áætlaður heildar-
kostnaður utanríkisráðuneytisins
vegna fyrirhugaðra heræfinga í
ágúst er 45 milljónir króna.
Greiðslur vegna uppihalds
erlendra hermanna eru töluverð-
ur hluti fjárins. Einnig þarf að lag-
færa ýmsan búnað við Keflavíkur-
flugvöll, svo sem þotugildrur, víra
sem stöðva orrustuþotur, nái þær
ekki að hemla.
„Þetta sáu Ameríkanarnir um
áður, en við þurfum að gera það
núna,“ segir Arnór Sigurjónsson,
fulltrúi utanríkisráðuneytisins við
æfingarnar.
Við æfingar verða tæplega 300
manns og eru þær því mun minni í
sniðum en þær sem bandaríski
herinn hélt áður hér á landi.
„Við Norðurvíkings æfingarn-
ar var allt varnarliðið, sem var
3000 manns, plús sjö til átta
hundruð menn sem komu sérstak-
lega frá Bandaríkjunum,“ segir
Arnór.
„Loftvarnahluti æfinganna fer
fram frá Keflavík og verður suð-
vestur af landinu, yfir hafi, í tvo
daga. Þrettán flugvélar og þyrlur
taka þátt í henni,“ segir Arnór.
Hin æfingin, gegn hryðjuverk-
um, verður einnig starfrækt frá
Keflavík. Hluti hennar fer líklega
fram utan Keflavíkur samtímis,
en ekki hefur verið ákveðið hvar.
Hugsanlegur óvinur á æfingunum
er óskilgreindur, enn sem komið
er.
Heræfingar kosta 45 milljónir
Maðurinn sem
lést í árekstri
vélhjóls og
strætisvagns á
Akranesvegi á
mánudagskvöld
hét Aðalsteinn
Davíð Jóhanns-
son. Aðalsteinn var 35 ára,
fæddur 26. júní 1972. Hann
var búsettur í Háholti 12 á
Akranesi. Aðalsteinn lætur
eftir sig eiginkonu og tvö börn.
Lést í árekstri
Bloggsíðu fjórtán ára
gamallar stúlku sem hreykti sér
þar af líkamsárásum hefur verið
læst með lykilorði. Áður en síðunni
var læst höfðu á fjórða hundrað
athugasemdir borist við færsluna.
Árásin var tekin upp á myndband
sem lögreglan gerði upptækt.
Stúlkan lýsti í bloggfærslunni
grófum líkamsárásum sem hún
framdi gegn tveimur stúlkum á
sama aldri við Smáralind á þriðju-
dag fyrir viku. Hún lýsir því
einnig þegar hún ræðst á
lögregluþjón og hrækir á hann
við handtöku. Lögreglan segist
vinna að rannsókn málsins. Ekki
hefur verið lögð fram kæra.
Blogginu læst
með lykilorði
Tollgæslan á
Akureyri tók ungan pilt með
lítilræði af hassi við komuna til
Akureyrar af Hróarskelduhátíð-
inni í Danmörku.
Hundur tollgæslunnar sýndi
manninum áhuga sem varð til
þess leitað var á honum og í
farangri hans. Við leitina fannst
brjóstsykursmoli sem ákveðið
var að skoða nánar. Maðurinn bar
að um sælgæti væri að ræða.
Molinn reyndist vera hass.
Sagði hassmola
vera sælgæti
Sigríður H. Heiðmunds-
dóttir, formaður Skógræktarfé-
lags Rangæinga, segir fráleitt að
höggva barrtré innan þinghelgi
Þingvalla. Þau séu minnisvarði
um þá atorku sem var í fólki á
árum áður að koma upp skógi á
Íslandi. Þó finnist henni einnig
fráleitt að gróðursetja barrtré á
Þingvöllum í dag.
„Á þeim tíma sem trén voru
gróðursett á Þingvöllum var ekki
komin upp þessi fælni gagnvart
barrtrjám, og ekki mikil umræða
um hvort umhverfið bæri yfirleitt
barrtré,“ segir hún. „Á ákveðnum
stöðum finnst mér barrtré slíta
umhverfið úr samhengi, og þau
eigi frekar að vera sett í afmörkuð
svæði þar sem gætir samspils
náttúru, hrauns og sands. hins
vegar finnst mér að þau barrtré
sem eru á Þingvöllum eigi að
standa.“
Eins og fram hefur komið í
Fréttablaðinu verða barrtré innan
þinghelgi Þingvalla felld sam-
kvæmt áætlun um skógarhögg og
grisjun á Þingvöllum síðan 2001. Í
staðinn skuli hlúa að gróðri sem
eigi sér lengri sögu á Þingvöll-
um.
Stefnan sé að Þingvellir verði
sem næst því að vera eins og þeir
voru við landnám, áður en barrtré
festu rætur hér á landi.
Olli Rehn, sem
sér um stækkunarmálin í
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins, segir að tekið yrði vel á
móti aðildarumsókn frá Íslandi.
„Að sjálfsögðu,“ sagði Rehn í
viðtali við þýska dagblaðið Die
Welt í gær, þegar hann var
spurður hvort
Íslendingar
væru velkomn-
ir í Evrópusam-
bandið.
„Ef ríkis-
stjórn Íslands
sækti um aðild
að Evrópusam-
bandinu þá
myndi ég strax
kalla saman lítinn hóp, sem myndi
sjá um það. Við gætum byrjað
fljótt á samningaviðræðum og
það væri hægt að ljúka þeim á
frekar stuttum tíma.“
Umsóknin yrði
afgreidd hratt
Unnur, verður þú þá eins
konar vatnshöfuð Íslands á
erlendri grundu?