Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 8
 „Borist hefur til borg- arráðs bréf forstjóra Iceland Express fré 25. þ.m., þar sem sótt er um byggingarlóð við Reykja- víkurflugvöll“, segir í orðsend- ingu frá skrifstofu borgarstjórnar, sem er dagsett 29. júní. Í viðtali við Fréttablaðið í gær fullyrti aðstoðarmaður borgar- stjóra, Jón Kristinn Snæhólm, að borgin hefði aldrei fengið erindi flugfélagsins. Ofangreind orðsending sýnir að borgarstjórn hafði móttekið erindið og sent það áfram til umsagnar skipulagsstjóra og skrifstofustjóra framkvæmda- sviðs. Erindið var í opinberu ferli. Jón Kristinn hafði áður sagt Fréttablaðinu að lóðin sem Ice- land Express (IE) hafi augastað á væri lóð sem hefði verið úthlutað til Háskólans í Reykjavík (HR) og endurtók hann það í gær. Úttekt samráðsnefndar sam- gönguráðuneytis og Reykjavíkur- borgar á framtíðarstaðsetningu Reykjavíkurflugvallar, sem IE vísar til í umsókn sinni, skilgreinir svæði HR við flugvöllinn sem R13a. Í umsókninni frá IE til borgar- innar og Flugstoða í síðasta mán- uði er sótt um reit R13b. Sá reitur er vestan við R13a, nær flugvell- inum sjálfum. Forsvarsmenn IE sóttu því ekki um reit HR. Matthías Imsland, forstjóri IE, segist hafa orðið verulega hissa á yfirlýsingum talsmanns borgar- stjóra, enda beri þær þess glöggt vitni að hann hafi ekki kynnt sér málið að neinu leyti. „Þetta er bara alveg með eindæmum. Ég þekki reyndar ekkert til þessa drengs, en ég á nú von á því að einhver á skrifstofu borgarstjóra lesi þau erindi sem henni berast.“ Borgin fékk víst erindi flugfélagsins Borgin fékk umsókn Iceland Express um byggingu flugstöðvar, þvert á orð aðstoðarmanns borgar- stjóra. Forstjóri IE undrast yfirlýsingar hans. A T A R N A – K M I / F ÍT Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is Ingi Björn Guðnason og Sigurður Arnfjörð Helga- son hafa verið ráðnir til Háskólaseturs Vestfjarða. Ingi var ráðinn í stöðu verkefnis- stjóra og Sigurður mun gegna stöðu sérfræðings á alþjóða- sviði. Auglýstar voru þrjár stöður hjá Háskólasetrinu í maí. Ákveðið var að ráða ekki í stöðu fagstjóra á sviði haf- og strandsvæðastjórnunar nú. Höfðu tveir sótt um stöðuna en annar dregið umsókn sína til baka. Alls sóttu fimmtán manns um störfin þrjú. Háskólasetur fær starfsmenn Enginn meiddist þegar glænýr vörubíll fór í sjóinn við Kópavogshöfn í hádeginu í gær. Óhappið varð á losunarstöð fyrir vörubíla þar sem þeir sturta jarðvegsúrgangi í sjóinn. Jarðvegurinn gaf sig undan bílnum og rann hann aftur á bak hálfur út í sjó. Ökumanninum tókst að klifra út úr bílnum og komast upp á bakkann. Unnið var að því í nokkrar klukkustundir að ná bílnum upp úr sjónum. Bíllinn skemmdist eitthvað, þó mest af sjó. Tókst að klifra út úr bílnum Fimm manns um og undir tvítugu voru handteknir í fyrrinótt eftir að lögregla fann nokkuð af fíkniefnum í heima- húsi. Málið hófst þegar ökumaður reyndi að stinga lögreglu af eftir að hún gaf honum stöðvunar- merki. Hann náðist skömmu síðar og fundust fíkniefni í bíl hans. Í kjölfarið var leitað í húsinu sem maðurinn hafði ekið frá, og fundust þá enn meira af fíkniefn- um. Hópur tekinn í fíkniefnamáli Svo virðist sem um hrekk hafi verið að ræða en ekki fólskulegt mannrán þegar sautján ára drengur var numinn brott af heimili sínu í gærmorgun, honum vafið kviknöktum í lak og stungið í skott bifreiðar. Lögreglan lítur atvikið þó grafalvarlegum augum. Lögreglu barst ábending um málið eldsnemma í gærmorgun, frá manni sem hafði orðið vitni að aðförunum. Lögreglan kannaðist við ungmennin af lýsingum mannsins og í ljósi sögu þeirra þótti full ástæða til að taka málið mjög alvarlega, að sögn varðstjóra lögreglu. Bíllinn var stöðvaður skömmu síðar á Snorrabraut. Í honum voru fjögur ungmenni, piltar á aldrin- um sextán til nítján ára og ein stúlka undir sakhæfisaldri, auk skottbúans. Í bílnum fannst hafna- boltakylfa. Ungmennin báru því við að allt hefði þetta verið í gríni gert, og tók sá úr skottinu undir þá sögu. „Við bentum þeim á að okkur þætti þetta ekki fyndið. Það voru sex lögreglubílar sendir á blússandi forgangi að leita að bílnum,“ segir varðstjóri. Fólkinu var sleppt undir hádegi eftir yfirheyrslur, og má ökumað- urinn eiga von á sekt fyrir umferð- ar- og vopnalagabrot. Hvað heitir hið umdeilda ensk-ástralska námafélag sem hefur gert tilboð í Alcan? Hvað heitir björgunarþyrlan sem fór í sjóinn við Straumsvík? Hvaða lið sigraði Suður- Ameríkubikarinn á dögunum?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.