Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 42
 David Beckham mætti á sína fyrstu æfingu með LA Galaxy í fyrrakvöld og virtist una sér vel með sínum nýju liðsfélögum. Beckham gat reyndar ekki tekið þátt í æfingunni af fullum krafti vegna ökkameiðsla sem tóku sig upp í vikunni og er óvíst hvort hann geti tekið þátt í æfingaleik liðsins gegn Chelsea á laugardag. Vegna meiðslanna eyddi enski landsliðsmaðurinn því stærstum hluta á séræfingum fyrir framan rúmlega 2000 áhorfendur sem mættu á æfinguna, gagngert til að fylgjast með nýjasta liðsmanni Galaxy. “Auðvitað viljum við fá hann í liðið okkar um leið og mögulegt er. En við munum ekki taka neina áhættu með ökklann,” sagði þjálf- arinn Frank Yallop eftir æfinguna. Meiðslin eru þó ekki alvarleg en bólga í ökklanum tók sig upp í langri flugferð kappans frá Lond- on til LA. Beckham tjáði sig ekki við fjölmiðla eftir æfinguna. Beckham hinn kátasti á fyrstu æfingunni Yfir 300 manns á landinu í tengslum við mótið Íslenska kvennalandslið- ið í knattspyrnu, skipað leikmönn- um 19 ára og yngri, þreytir frum- raun sína í lokakeppni Evrópumótsins í kvöld þegar liðið mætir Norðmönnum. Eins og kunnugt er fer lokakeppnin fram hér á landi og fer leikurinn í kvöld fram á Laugardalsvelli. Auk Norðmanna eru Íslending- ar í riðli með Dönum og Þjóðverj- um, en síðastnefnda liðið er núver- andi Evrópumeistari í aldursflokknum og þykir sigur- stranglegast í ár. Að miklu er að keppa fyrir öll lið því auk þess að komast í undanúrslit mótsins munu tvö efstu liðin í báðum riðl- unum tryggja sér sæti í loka- keppni HM U-20 ára í Chile á næsta ári. „Þetta eru gríðarlega sterkar þjóðir sem við erum að fara að keppa við en að sjálfsögðu er allt- af möguleiki á að koma á óvart,“ segir Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari íslenska liðsins. Þjálfari Norðmanna, Jan Torske, segist bera mikla virðingu fyrir íslenska liðinu. „Íslenska liðið er gott, með öfluga varnarmenn og hættulega sóknarmenn. Við eigum von á hörkuleik.“ Alltaf möguleiki á að koma á óvart Knattspyrnusamband Íslands hefur umsjón með Evr- ópumótinu og vinnur náið með Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, við alla skipulagningu. Verkefnið er það langstærsta sem KSÍ hefur tekið þátt í frá upphafi en á fjórða hundrað manns eru stödd á landinu í tengslum við mótið. Í þeirri tölu eru leikmenn, þjálfarar og umsjónarmenn keppnisliðanna átta, sem hjá flestum telja um og yfir 30 manns. 40 starfsmenn UEFA vinna við mótið auk þess sem 16 dómarar munu skipta dómgæslu á milli sín. Þá eru ótaldir njósn- arar frá mörgum af sterkustu félagsliðum heims sem munu hafa augun opin fyrir efnileg- ustu leikmönnum Evrópu. Öll umgjörð er gríðarlega faglega unnin og hefur UEFA unnið sérstakan kynningarbækling fyrir mótið. Í því er meðal annars að finna ávarp frá Michael Platini, for- manni UEFA, þar sem hann býður fótboltaáhugamenn vel- komna til hins fallega Íslands. Þá hrósar hann KSÍ í hástert fyrir frábæra frammistöðu í skipu- lagninu mótsins. Leikir Evrópumótsins fara fram á sjö völlum á suðvestur- horni landsins. Úrslitaleikurinn fer fram á Laugardalsvelli þann 29. júlí og mun Platini afhenda sigur- verðlaunin. „Ef við eigum góðan dag tel ég okkur vissulega eiga mögu- leika á móti FH. En þeir eru samt mun sigurstranglegri,“ sagði Rógvi við Fréttablaðið, spurður um möguleika sinna manna í leikn- um í kvöld. Rógvi þekkir vel til FH-liðsins, enda er liðið ekki mikið breytt frá tíma Rógva með KR í Landsbankadeildinni sumarið 2005 og fyrri hluta síðasta sumars. Hann viðurkennir að hafa verið ein helsta upplýsingaveita þjálf- ara síns fyrir leikinn. „Ég segi honum bara eins og er, að FH séu mjög vel skipað lið með valinn mann í hverju rúmi. Liðið hefur spilað langbesta boltann á Íslandi síðustu árin. Þetta er ekki svo flókið. Við gerum okkur grein fyrir að við erum að fara að spila á móti mjög öflugu liði,“ segir Rógvi, sem sjálfur mun ekki spila í fyrri leiknum í kvöld vegna leik- banns sem er tilkomið vegna brott- vísunar sem hann hlaut í leik með HB gegn Kaunas árið 2003. Þrír aðrir leikmenn HB, sem alla jafna eru í byrjunar- liðinu, eru auk þess tæpir vegna meiðsla. „Við eigum í nokkrum vandræðum fyrir þennan leik en náum von- andi að stilla upp okkar sterkasta liði í síðari leiknum.“ HB urðu færeyskir meistarar á síðasta tímabili en liðið hefur alls ekki staðið undir væntingum í ár og er í 4. sæti deildarinnar með 24 stig úr 16 leikjum, tólf stigum minna en efsta lið deildarinnar. „Við erum með góða leik- menn í liðinu en eigum í vandræðum með að ná nægilega vel saman. Við erum að glíma við svipað vandamál og KR á Íslandi,“ segir Rógvi í glettnum tón en hann kveðst fylgj- ast nokkuð vel með íslenska bolt- anum í gegnum internetið og síðan félaga sinn og landa hjá Keflavík, Simun Samuelsen. „Við höfum verið að vinna toppliðin en tapa fyrir lakari liðunum og það er allt- af dýrkeypt. En við höfum ekki gefið upp vonina á að verja titil- inn,“ bætir hann við. Rógvi er markahæsti leikmaður HB það sem af er tímabili með átta mörk og spilar eingöngu í sókninni eða framarlega á miðj- unni. „Ég hef allavega ekki verið settur í hægri bakvörðinn ennþá,“ sagði Rógvi glottandi og vísaði þannig í veru sína hjá KR, þar sem hann leysti af nánast allar stöður á vellinum. Rógvi Jacobsen, fyrrum leikmaður KR, mætir með liði sínu HB í Kaplakrika í kvöld þar sem liðið etur kappi við Íslandsmeistara FH í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Rógvi segir HB eiga ýmislegt sameiginlegt með KR. „Færeyskur fótbolti hefur verið á mikilli uppleið síðustu ár svo að við búumst við að mæta góðu fótboltaliði,“ segir Heimir Guðjónsson, aðstoðar- þjálfari FH, um leik liðsins gegn HB í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Heimir segir mikilvægt að vinna leikinn á heimavelli og ná forskoti fyrir síðari leikinn sem fram fer ytra að viku liðinni. „Og eins og alltaf í Evrópukeppni er gríðarlega mikilvægt að fá ekki á sig mark.“ Heimir og aðalþjálfarinn Ólafur Jóhannesson hafa úr nánast fullskipuðum leikmanna- hópi að velja fyrir leikinn í kvöld en aðeins Arnar Gunnlaugsson á við meiðsli að stríða. Þjálfarat- eymi FH hefur horft á upptökur með leikjum HB og telur Heimir sig þekkja nokkuð vel hvar styrkleikar HB liggja. „Við erum óánægðir með úrslitin í leiknum gegn ÍA í deildinni og erum staðráðnir í að vinna okkur upp úr þeim vonbrigðum.“ Mikilvægast að halda hreinu Eggert Magnússon og félagar í West Ham neituðu í gærkvöldi beiðni Manchester United um að fá argentínska framherjann í læknisskoðun hjá félaginu sem fyrirhuguð var í dag. Tevez mun vera staddur í Manchester til að ganga frá persónulegum samningi við félagið. West Ham virðist hins vegar ekki hafa í hyggju að missa sinn besta mann frá síðasta tímabili. „Félögin hafa átt í viðræðum en ekkert samkomulag hefur náðst,“ sagði talsmaður West Ham í gær en í reglugerðum segir að leikmaður geti ekki farið í læknisskoðun nema með sam- þykki beggja félaga. Fyrr í gærdag hafði Alex Ferguson, stjóri Man. Utd. lýst því yfir að hann væri vongóður um að klófesta Tevez. Nú er hins vegar ljóst að leikmaðurinn mun ekki einu sinni fá að fara í læknisskoð- un fyrr en félögin hafa náð samkomulagi um kaupverð. Tevez meinuð læknisskoðun Úkraínski framherjinn Andriy Voronin skoraði tvö mörk fyrir Liverpool þegar liðið lagði Werder Bremen í æfingaleik í gærkvöldi, 3-2. Voronin skoraði markið í sitthvorum hálfleiknum en hann þótti spila einstaklega vel í leiknum. John Arne Riise skoraði þriðja mark Liverpool. Fernando Torres spilaði sinn fyrsta leik fyrir þá rauðklæddu þegar hann kom inn á í hálfleik. Torres náði ekki að setja mark sitt á leikinn en fékk tvö góð færi sem hann náði ekki að nýta. Ryan Babel og Youssi Benayoun komu einnig inn á í síðari hálfleik. Voronin með tvö fyrir Liverpool

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.