Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 41

Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 41
 Óðinn Björn Þorsteins- son, 26 ára gamall kúluvarpari úr FH, náði fjórða besta kasti Íslendings frá upphafi á Coca Cola-móti FH um síðustu helgi. Óðinn varpaði kúlunni 19,23 metra og var aðeins 47 sentimetr- um frá því að ná lágmarki fyrir HM utanhúss sem fer fram í Japan í haust. Íslandsmetið á Pétur Guð- mundsson, 21,26 metra, sem hann setti árið 1990. Með fjórða besta kast sögunnar Á KAPLAKRIKAVELLI MIÐVIKUDAGINN 18. JÚLÍ KL. 20.00 FORKEPPNI MEISTARADEILDAR 2007 frá Færeyjum Forsala miða frá kl. 12, í FH-búðinni í Kaplakrika FH GEGN HB Tórshavn Fjölmennum á völlinn og styðjum Íslandsmeistara FH ÍSLANDSMEISTARAR FH 2004-2005-2006 Miðaverð kr. 1.500.- Kevin Garnett verður öllum að óvörum áfram hjá Minnesota Timberwolves. Talið var næsta víst að hinn 31 árs gamli Garnett myndi færa sig um set en árangur Minnesota hefur ekki verið upp á marga fiska. „Kevin hefur alltaf sagt að hann vilji vera hér áfram. Hann sagði mér að það yrði mikið slúðrað um sig enda ákváðum við að athuga hvaða tilboð við fengjum í hann. Þau voru ekki spennandi auk þess sem hann vildi heldur ekkert fara,“ sagði eigandi Minnesota, Glen Taylor. Verður um kyrrt hjá Minnesota

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.