Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 18.07.2007, Blaðsíða 18
greinar@frettabladid.is U mræður um nýja eigendur Hitaveitu Suðurnesja hafa kallað fram ólíkt pólitískt tungutak. Hugtakið einkavæðing er helsta bitbeinið. Í ljósi þess að hér er að stærstum hluta til um einokunarrekstur að ræða er eðlilegt að spurningarmerki séu sett um einka- væðingu. Af tungutaki þessarar umræðu mætti ætla að djúpstæður hugmyndafræðilegur ágreiningur ríkti um hvort ætti að vera í fyrirrúmi: Arðsemi orkufyrirtækjanna eða þeir hagsmunir heimila að fá orku á kostnaðarverði. Raunveruleg afstaða ein- stakra stjórnmálaflokka bendir á hinn veginn til að býsna góð samheldni hafi verið um að setja hagsmuni neytenda skör neðar en arðsemishagsmuni orkufyrirtækjanna. Fyrst er á það að líta að allir stjórnmálaflokkar í landinu, utan Frjálslyndi flokkurinn, hafa átt aðild að sölu á hlutabréf- um í Hitaveitu Suðurnesja til einkafyrirtækis. Þetta hefur ýmist gerst í gegnum aðild að ríkisstjórn eða meirihluta í einstökum sveitarfélögum sem hlut eiga að máli. Lög um stofnun sameignarfyrirtækis um Orkuveitu Reykja- víkur voru samþykkt árið 2001 að beiðni þáverandi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Frumvarpið var samþykkt ágrein- ingslaust á Alþingi. Í lögunum eru fátækleg ákvæði um vernd neytenda eða kaupenda þjónustunnar. Á hinn bóginn eru í lögunum skýr ákvæði um að gjaldskrá skuli ákveðin þannig að fyrirtækið skili eðlilegum arði af eigin fé. Í athugasemdum er gerð grein fyrir nauðsyn þess að arð- semiskröfur séu gerðar eins og um væri að ræða fyrirtæki á almennum og frjálsum samkeppnismarkaði. Ennfremur kveða lögin á um að fyrirtækið skuli auk orku- framleiðslu og sölu stunda iðnþróun, nýsköpun og hvers kyns viðskipta- og fjármálastarfsemi. Þessu víðtæka hlutverki hefur fyrirtækið sinnt kappsamlega með óbeinni skattlagningu á neyt- endur og ábyrgð skattborgaranna. Allar ákvarðanir þar að lút- andi hafa verið teknar fyrir luktum dyrum með sama hætti og í fyrirtækjum á markaði. Almennar reglur um meðferð skattpen- inga og opinbera þátttöku í atvinnurekstri hafa þótt úreltar að mati þeirra sem um hafa vélað. Sams konar lagaákvæði gilda um einokunarrekstur Hitaveitu Suðurnesja. Allir þingflokkar bera ábyrgð á þessari skipan mála. Satt best að segja verður ekki séð að þessi opinberu einok- unarfyrirtæki hafi snúið annarri hlið að neytendum en venjuleg einkafyrirtæki. Nýr borgarstjóri í Reykjavík hefur að sönnu lýst því yfir að opinber fyrirtæki af þessu tagi eigi ekki að vera þátttakendur í almennum samkeppnisrekstri. Í samræmi við það rifti Orku- veitan samningsáformum þar að lútandi í fyrra og í ráði er að draga hana út úr áður umdeildri fyrirtækjafjárfestingu. Þrátt fyrir þessa stefnubreytingu hefur Orkuveitan undir núverandi stjórn tekið nokkrar nýjar ákvarðanir um aðild að samkeppnisrekstri. Eftir sem áður verður ekki séð að rök standi til að nota hitaveituskattpeninga Reykvíkinga til skólastarfs á Miðnesheiði, sinna félagslegum verkefnum fyrir íbúa í Reykja- nesbæ eða vera grundvöllur samkeppnismismununar í orkusölu til stóriðju. Verð á heitu vatni er hærra en það þyrfti að vera vegna of mikillar samheldni um þetta skipulag. Slæm samheldni Þorsteinn Pálsson ritstjóri Fréttablaðsins birti leiðara í blaðinu 16. júlí síðastliðinn undir yfirskriftinni Flórufasismi. Í greininni reiðir ritstjórinn hátt til höggs gegn þeirri stefnu Þing- vallanefndar að takmarka á Þingvöllum útbreiðslu barrtrjáa sem þar var plantað á öldinni sem leið. Trjám þessum lýsir hann sem menningararfleifð sem nú eigi að rífa upp með rótum. Þorsteinn segir þetta gert í skiptum fyrir inntöku Þingvalla á Heimsminjaskrá UNESCO, Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, og gerir afar lítið úr þeim gjörningi, tengir hann við sölumennsku og peningaplokk af ferðamönnum. Barrtrjánum lýsir hann sem heilögu tákni fyrir hátíðarsamkomur þjóðarinnar á Þingvöllum á öldinni sem leið. Þjóðin segir hann „stofnaði lýðveldi í landinu í samveru við barrtré á Þingvöllum“, minntist búsetu „í skjóli slíkra trjáa“ og „átti samverustund með barr- trjám þegar þúsund ár voru liðin frá því kristni var lögtekin á Lögbergi.“ Hér er ekki nein smáræðis tilfinningaleg upplifun á ferðinni og ekki seinna vænna að átta sig á hvað öðru fremur laðar Íslendinga að þessum helgistað. Við þennan sögulega óð um barrviði hvarflar hugur minn tvo áratugi til baka en þá áttum við Þorsteinn sem alþingismenn sæti í Þingvallanefnd ásamt Þórarni Sigurjónssyni, en Þorsteinn var um þær mundir forsætisráð- herra. Þingvallanefnd hafði þá um nokkurt árabil unnið að stefnumörkun í skipulagsmálum fyrir þjóðgarðinn. Eftir sérstaka gróðurfarslega úttekt á þjóð- garðslandinu og ítarlegt kynn- ingarferli staðfesti nefndin „þetta skipulag og samþykkir það sem stefnumörkun fyrir Þjóðgarðinn á Þingvöllum“. Um umhirðu trjágróðurs segir í þessari stefnumörkun Þingvalla- nefndar: „Rétt er að láta furulundinn, sem markar upphaf skógræktar á Íslandi, halda sér og hlúa að honum, en girðingar umhverfis lundinn verði fjarlægðar. Að öðru leyti verði ekki gróðursettir barrviðir eða aðrar aðfluttar tegundir á Þingvallasvæðinu milli gjáa. – Grisja þarf trjágróð- ur innan þinghelginnar með hliðsjón af fornleifaúttekt, því að trjárætur spilla minjum í jörðu.“ Undir þetta rituðum við nefndarmennirnir í góðri sátt 27. maí 1988. Þessari stefnumörkun hefur síðan í aðalatriðum verið fylgt af Þingvallanefnd og hefur þjóðgarðsvörður mörg undanfar- in ár látið grisja og fjarlægja barrviði á nokkrum stöðum. Umsókn íslenskra stjórnvalda um Þingvelli á heimsminjaskrá var lögð fram í febrúar 2003 og þurfti því ekki atbeina UNESCO um þá stefnu sem Þingvalla- nefnd hafði samþykkt hálfum öðrum áratug fyrr. Hinsvegar er ákvörðunin um að grisja og fjarlægja aðfluttar trjátegundir hluti af þeim kvöðum sem innsiglaðar voru með inntöku Þingvalla á heimsminjaskrána árið 2004. Jafnframt var ítrekað það sem áður lá fyrir að furu- lundurinn frá árinu 1903 yrði varðveittur sem sögulegt minnismerki um upphafsár skógræktar hérlendis. Það er ekkert við því að segja að ritstjóranum Þorsteini hafi snúist hugur frá þeirri samþykkt sem hann sem alþingismaður stóð að í Þingvallanefnd fyrir tveimur áratugum. Fyrir þeim hughvörf- um færir hann hins vegar engin rök í grein sinni en beinir spjótum sínum nú að ósekju að þeim sem stóðu að því að Þingvellir voru teknir inn á skrá yfir staði sem taldir eru hafa einstakt gildi fyrir alla heims- byggðina. Undir gjörninginn rituðu af Íslands hálfu Davíð Oddsson forsætisráðherra og Björn Bjarnason formaður Þingvallanefndar. Með inntöku á heimsminjaskrá fékk sérstaða Þingvalla alþjóðlega viðurkenn- ingu en jafnframt er framtíðar- verndun þjóðgarðsins betur tryggð en ella. Margir hljóta að spyrja hvað ritstjóra Fréttablaðs- ins gangi til að taka þetta mál nú upp með þeim hætti sem hann gerir. Er hann að leggja til að íslensk stjórnvöld beiti sér fyrir að gera afturræka viðurkenningu Sameinuðu þjóðanna og að allir barrviðir á Þingvöllum verði friðlýstir svo tryggja megi gestum þar skjól á næsta hátíðarfundi? Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Ritstjórinn og barrtrén Fjölmiðlar hafa að undanförnu greint frá könnunum ASÍ á þróun matarverðs í helstu versl- anakeðjum landsins. Kannanirnar hafa sýnt að á tímabilinu frá því í desember 2006 til maí 2007 lækk- aði verðið um 4,2 til 6,7% í lág- vöruverðsverslunum og 1,6 til 6,4% í öðrum verslanakeðjum. Samkvæmt einföldu meðaltali þá lækkaði matarverð um 4,8% sam- kvæmt mælingum ASÍ. Til sam- anburðar þá lækkaði liðurinn matar- og drykkjarvara í mæl- ingum Hagstofu Íslands um 5% á sama tímabili. Þegar það er haft í huga að niðurstöður Hagstofunn- ar byggja á vegnu meðaltali úr verðmælingum í öllum verslun- um má fullyrða að góð samsvör- un er á milli niðurstaðna ASÍ og Hagstofunnar. Á grundvelli þessara niður- staðna er eðlilegt að spyrja; þró- aðist matarverð með eðlilegum hætti á tímabilinu frá desember 2006 til maí 2007? Hagstofa Íslands mat það svo í upp- hafi árs að lækkun á virð- isaukaskatti og vörugjöldum ætti að skila almenningi 8,7% lægra matarverði. Að auki styrktist gengi íslensku krónunnar um 6% frá 15. desem- ber 2006 til 15. maí 2007. Við hjá ASÍ höfum því talið að matarverð til almennings hefði átt að lækka umtalsvert meira. Þetta hefur farið fyrir brjóstið á fulltrúum verslunarinnar. Þannig fer forstjóri Haga mikinn í grein í Fréttablaðinu í gær og kvartar sérstaklega undan hlut ASÍ í umræðunni um matarverð- ið. Forstjórinn velur að nota stór orð og segir m.a: „Yfirlýsinga- gleði og ónákvæmni ASÍ um verð- lag á matvöru kemur mér ekki á óvart. Hana þekki ég fullvel og hef ítrekað gert athugasemdir við óvönduð vinnubrögð þegar kemur að umfjöllun um matvöru- verð. Óvönduð vinnubrögð við ríkisstyrkt verðlagseftirlit hæfa ekki samtökum eins og ASÍ.“ Það vekur athygli að á sama tíma og forstjórinn kvartar undan umræðunni um matarverðið þá víkur hann sér algjörlega undan því að svara efnislega þeirri gagnrýni sem að versluninni er beint. Það er þekkt aðferð hjá þeim sem hafa vondan málstað að verja að ráðast með dylgjum og rógi að þeim sem gagnrýna þá og reyna þannig að draga úr trú- verðugleika þeirra. Eftir stendur að forstjórinn skuldar þjóðinni skýringar á því hvers vegna matar- og drykkjarvörur lækk- uðu aðeins um 5%, svo vitnað sé í niðurstöður Hagstofu Íslands, á tímabilinu frá desember 2006 til maí 2007, þegar lækkun á opin- berum álögum átti að skila 8,7% lækkun og styrking krónunnar hefði til viðbótar átt að skila lægra innflutningsverði. Höfundur er hagfræðingur ASÍ. Að verja vondan málstað

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.