Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 6

Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 6
Flak björgunarþyrlunnar TF- SIFJAR er nú geymt í flugskýli á vegum Rannsóknarnefndar flug- slysa (RNF) eftir að því var bjarg- að í land aðfaranótt þriðjudags. RNF hefur tekið yfir forræði yfir flakinu af Landhelgisgæslunni (LHG) og vinnur að frumrannsókn slyssins. Forstjóri LHG segir gott veður og nálægð björgunarskips hafa skipt sköpum við björgun áhafnarinnar. Áhöfnin komst út úr vélinni áður en henni hvolfdi í sjón- um. Eitt flotholt vélarinnar sprakk með þeim afleiðingum að henni hvolfdi. Þyrlan þurfti að nauðlenda í sjó út af Straumsvík. Fjögurra manna áhöfn bjargaðist, og komst hún úr úr vélinni af eigin rammleik. Orsak- ir slyssins eru ókunnar en talið er að hún hafi misst vélarafl þar sem hún var að æfingum ásamt Björg- unarsveit Hafnarfjarðar. Flugstjór- inn neyddist til að lenda þyrlunni í sjónum og var áhöfninni bjargað um borð í björgunarskipið Einar Sigurjónsson, sem var við æfing- arnar. Georg Lárusson, forstjóri Land- helgisgæslunnar, segir að gott veður á slysstað og nálægð björg- unarskipsins hafi skipt sköpum í björgun áhafnarinnar. „Til allrar lukku komust þeir líka út úr þyrlunni áður en henni hvolfdi í sjónum. Það er alveg ljóst að reynsla og þjálfun þessara manna varð til þess að þeir brugðust við aðstæðum eins faglega og í mann- legu valdi stóð.“ Georg segir að allar líkur séu á að öll áhöfn vélar- innar komi til fyrri starfa hjá LHG. Forsvarsmenn Björgunarsveit- arinnar í Hafnarfirði telja mikla mildi að hífingar yfir björgunar- skipinu stóðu ekki yfir þegar óhappið varð. Um tíu manns voru um borð og hætt hefði verið við slysi á mönnum hefði æfingin verið lengra komin, að þeirra mati. Sigurður Heiðar Wiium, flug- stjóri á TF-SIF, segir að áhöfninni allri líði vel. „Þetta fór allt vel og við erum allir við hestaheilsu. Við erum búnir að tala saman og það verður framhald á því næstu daga.“ Sigurður segir að áhöfnin hafi feng- ið áfallahjálp fljótlega eftir slysið. „Það er full ástæða til því hver ein- staklingur tekur atburðum sem þessum á misjafnan hátt.“ Þorkell Ágústsson, forstöðumað- ur RNF, segir að vettvangsrann- sókn sé að ljúka og þá taki við frum- rannsókn. Hljóðriti vélarinnar verður sendur til Bretlands eða Kanada þar sem gögn hans verða lesin. Komust úr þyrlunni áður en henni hvolfdi Áhöfn TF-SIFJAR náði að komast út út þyrlunni áður en henni hvolfdi í sjón- um við Straumsvík. Það skipti sköpum í björgun þeirra ásamt góðu veðri og nálægðar björgunarskips. Rannsókn slyssins stendur yfir. Áhöfninni líður vel. Ertu ánægð(ur) með mótmæla- aðgerðir Saving Iceland? Hefur þú farið í tívolíið við Smáralind í sumar? Hringdu í síma ef blaðið berst ekki „Strákarnir þurfa að æfa mikið. Með vissu millibili þurfa allir að æfa björgun í fjalllendi, hífingar úr skipi og björgunarbátum og úr sjó,“ segir Halldór Nellet, fram- kvæmdastjóri aðgerðasviðs Land- helgisgæslunnar (LHG). „Á vet- urna æfum við svo sérstaklega hífingar með nætursjónaukum.“ Halldór segir að eftir að þyrlum LHG var fjölgað úr tveimur í fjór- ar, í kjölfar brottfarar þyrlusveit- ar varnarliðsins á Keflavíkurflug- velli, hafi æfingum eðlilega fjölgað. Nú starfa fjórtán flug- stjórar hjá LHG, stýrimenn/sig- menn eru tíu og flugvirkjar/spil- menn eru fimm alls. Halldór nefnir dæmi um vikuleg- ar æfingar með Slysavarnafélag- inu Landsbjörgu, eins og þá sem stóð yfir þegar TF-SIF þurfti að nauðlenda í sjón- um út af Straumsvík á mánudags- kvöld. „Áhafnirnar fara á tveggja ára fresti til Skotlands og fá þjálf- un í að yfirgefa þyrlu sem hefur nauðlent í sjó. Um er að ræða þyrlulíkan sem sett er í stóra sund- laug og þar æfa menn hvernig þeir eiga að koma sér út úr vélinni, ef hún lendir í vatni.“ Halldór segir alla sem starfa við björgunarstörf þurfa að vera vel á sig komna andlega og líkamlega. Sigmenn LHG, sem margir eru einnig kafaramenntaðir, þurfa að fara í regluleg þrekpróf til að halda réttindum sínum. „Menn þurfa að vera í góðu jafnvægi til að mæta þeim aðstæðum sem kunna að bíða þeirra.“ Æfa undankomu úr þyrlu í sjó N1 BÍLAÞJÓNUSTA SÆKTU UM VIÐSKIPTA- OGSAFNKORT Á WWW.N1.IS ER BÍLLINN KLÁR Í FRÍIÐ? ALLT A Ð 10% A FSLÁTT UR! Safnko rtshafa r fá 3% afslátt í form i punk ta. Viðskip takorts hafar f á 7% a fslátt, auk 3% í form i Safnk orts- punkta – sam tals 10% af slátt. Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól- barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið. Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588 Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700 Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710 Ægisíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470 Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188 Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538 Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777 Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080 Sumarbústaðaeigendur í Grímsnes- og Grafningshreppi eru beðnir um að nota vatn sparlega og vökva í hófi. Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri segir að vatnsbólin séu ekki að þorna upp. „Vandamálið er hins vegar topparnir í vatnsnotkuninni á vissum tíma dagsins. Dælur hafa að vísu undan en það má ekki mikið út af bregða. Það er eins og allir séu með úðara stöðugt í gangi á flötinni hjá sér.“ Jón mælir með því að sleppa því að vökva á álagspunktum eins og seinni tíma dags þegar fólk er að elda. Frekar ætti að vökva snemma dags. Beðnir um að spara vatn „Dóttir mín er búin að gráta sig í svefn kvöld eftir kvöld og hvers vegna?“ spyr Kristjana Margrét Svansdóttir, eigandi hundsins Lúkasar. Kristjana undrast hegðan þeirra sem lugu því til á spjallrásum að Helgi Rafn Brynjarsson hefði drepið hundinn hennar á grimmilegan máta. Þeir hafi jafnvel gengið svo langt að staðfesta söguna hjá lögreglu. „Ég er löngu búin að fá ógeð á þessu. Ég skil ekki fólk sem er það sjúkt að hafa ekkert betra að gera en að eltast við fólk sem er búið að týna hundinum sínum,“ segir hún. Hundurinn Lúkas sást, sem kunn- ugt er, á Hlíðarfjalli í fyrradag, en hefur enn ekki verið klófestur. „Þeir eru búnir að hafa alla að fífli. Lögreglan er meira að segja búin að kafa eftir hundinum. Og þvílík mannorðssverting fyrir strákinn [Helga]. Það er búið að reka hann úr vinnu en ég ætla að vona að vinnan sjái sóma sinn í að ráða hann aftur,“ segir hún. Kristjana ætlar að hafa samband við Helga þegar frá líður. „En ég ætla að leyfa honum að anda svolítið fyrst. Búnir að hafa alla að fífli

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.