Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 12
Forstjóri, verkstjóri og
undirverkstjóri í kínversku múr-
steinsbrennslufyrirtæki voru í
gær dæmdir fyrir þrælahald og
misþyrmingar á starfsfólki.
Verkstjórinn, Heng Tinghan,
hlaut ævilangt fangelsi fyrir að
hafa vísvitandi valdið fólki lík-
amsmeiðslum og haldið því
föngnu með ólöglegum hætti.
Hann hélt 34 starfsmönnum í
þrældómi, þar af voru níu þroska-
hamlaðir. Við réttarhöldin kom
fram að frá marsmánuði árið 2006
þar til í maí á þessu ári hafi nítján
af verkamönnunum meiðst vegna
barsmíða og einn látið lífið.
Einnig kom fram að starfsfólk-
ið hafði mætt í vinnu klukkan
fimm að morgni og oft ekki feng-
ið að hætta fyrr en klukkan 23 að
kvöldi. Fullyrt var að Heng hafi
skipað undirverkstjórum sínum
að berja „letingjana“ sem sýndu
ekki nógan dugnað.
Einn undirverkstjóra Hengs,
Zhao Yanbing, hlaut dauðadóm
fyrir að berja einn verkamann-
anna, Liu Bao, svo illa að hann lét
lífið. Zhao hafði áður viðurkennt
að hafa barið þroskaheftan starfs-
mann með skóflu fyrir að sinna
starfinu ekki nógu vel.
Þá var Wang Bingbing, for-
stjóri verksmiðjunnar, dæmdur í
níu ára fangelsi fyrir að hafa
haldið fólki föngnu með ólögleg-
um hætti.
Dómarnir koma í kjölfar
umfangsmikillar rannsóknar á
þrælahaldi í múrsteinaverksmiðj-
um í kínverskum sveitahéruðum.
Fjölmiðlar hófu að greina frá
málinu eftir að fjöldi foreldra
lýsti eftir börnum sínum sem þeir
sögðu hafa verið rænt og send til
vinnu við brennsluofna verk-
smiðjanna.
Kínverski kommúnistaflokkur-
inn segist hafa hafið herferð gegn
þrælahaldi og nauðungarvinnu.
Síðustu mánuði hafa tæplega þús-
und manns hlotið frelsi úr slíkri
ánauð fyrir tilstilli lögreglunnar.
Dauðadómur og ævilangt
fangelsi fyrir þrælahald
Stjórnvöld í Kína hafa hafið herferð gegn nauðungarvinnu. Þrír yfirmenn í lítilli múrsteinsbrennslu hafa
hlotið þunga dóma fyrir misþyrmingar, þrælahald og manndráp. Nærri þúsund manns hafa hlotið frelsi.
Bók um Jón Ásgeir
Jóhannesson, stjórnarformann
Baugs Group, kemur út 31.
október. Bókin er eftir Ian
Griffiths og
Jonathan
Edwards, og heitir
„Kynlíf, lygar og
stórmarkaðir“.
„Bókin ætti að
vera áhugaverð,
hún er engin
sérstök ádeila á
Jón Ásgeir eða
Baug,“ segir
Griffiths. Undirtitill bókarinnar er
„Leynilegt líf Jóns Ásgeirs Jóhann-
essonar, milljónamæringsins sem
er að kaupa Bretland“.
Bókin er komin í forsölu í
vefversluninni Amazon, og þar
segir að í bókinni sé meðal annars
fjallað um upphaf og aðdraganda
Baugsmálsins.
Kynlíf, lygar og
stórmarkaðir