Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 22

Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 22
B&L býður nú BMW 325 xi Prestige Edition 2007. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og með skíðapoka. BMW framleiðir frábæra bíla. Um það verður ekki deilt. Grunngerð- ir þeirra eru í þokkabót ekki svo dýrar. Vandamálið er hins vegar að þá er maður að kaupa svo mikla grunngerð að búast má við því að fá bílinn í flötum pappakassa ásamt leiðbeiningabæklingi og sexkanti. Allt sem kallast getur aukabúnaður er ekki inni í verðinu og allur búnaður kostar aukalega. Þannig er verðið fljótt að hækka. Til að reyna að halda verðinu niðri hefir B&L keypt nokkra BMW 3-línu bíla í svokallaðri Prestige Edition 2007 útgáfu. Bíl- unum fylgir ákveðinn pakki af aukabúnaði og þar sem ekki þarf að púsla hverjum bíl saman sér- staklega að ósk kaupanda eru þeir ódýrari. Bílarnir eru af gerðinni 325 xi og 330 xi, með 2,5 lítra 218 hest- afla vél eða 3,0 lítra vél sem skilar 258 hestöflum. Aukabúnaðurinn er af ýmsum toga, misgagnlegur, en helst ber að nefna xDrive-fjór- hjólabúnað BMW. Það sem gerir þennan tæplega sex milljón króna bíl hins vegar að reyfarakaupum er að skíðapoki fylgir bílnum… En snúum okkur að bílnum sjálf- um. Helsti kostur og um leið helsti galli 3-línunnar er hversu þungur hann virkar á hægum hraða en stöðugur á meiri hraða. Hann er tiltölulega þungur í stýri sem gefur frábæra aksturseiginleika þegar komið er upp fyrir 70 km/ klst en í bæjarumferðinni er hann einfaldlega of þungur. Hann er svolítið eins og Ronaldo, of þung- ur en þegar hann er kominn á skrið gerast töfrarnir. Bíllinn liggur á götunni eins og fuglaskítur á framrúðu. Fjórhjóla- drifið gerir bílinn einungis betri á þessu sviði og er xDrive ótvíræð- ur kostur þegar vetra tekur (þó svo að miðað við veðurfarið und- anfarið megi ekki búast við því að hitinn falli niður fyrir 10°C í vetur). Það er erfitt að dæma Prestige Edition á einfaldan hátt. Auðvelt er að mynda ástar-haturs sam- band við bílinn því maður vill halda í aksturseiginleikana en á sama tíma gerir hann mann grá- hærðan í miðbæjarumferðinni. Hvað sem því líður þá fær maður að minnsta kosti skíðapoka í kaup- bæti og um hvað meira getur maður beðið? Skíðabíllinn BMW 325xi Toyota Rav4 með bestu auglýsinguna Listi yfir bestu og snjöllustu bílaauglýsingarnar í heimi Listi yfir sex bestu bílaauglýsing- arnar hefur verið settur inn á Time Online og þar trónir efst á toppnum auglýsing með Rav 4 þar sem hjónabandserjur eru í fyrir- rúmi. Auglýsingin sýnir par sem beit- ir öllum tiltækum ráðum til að hafa heimilisbílinn, sem er af gerðinni Rav 4, út af fyrir sig, og veigrar sér ekki við að koma hinum aðilanum fyrir kattarnef. Varla er skrítið að auglýsingunni skuli hafa verið líkt við kvikmynd- irnar Mr. and Mrs. Smith (2005) og War of the Roses (1989). Auglýsing með Mercedes E- Class er í öðru sæti og Honda Accord-auglýsing í því þriðja. Citroën-auglýsingin góða þar sem Citroën C4 bifreið umbreytist í vélmenni, er í fjórða sæti. Hún þótti á sínum tíma ekki aðeins góð kynning fyrir bifreiðina sjálfa heldur Transformers-myndina sem væntanleg er hingað til lands í ágúst. Skoda Octavia með feitlagna fimleikakappanum er í fimmta sæti og loks stórskemmtileg Skoda Fabie auglýsing þar sem köku- gerðarmenn búa til sælgætisút- gáfu af bifreiðinni. Hægt er að lesa sér til um og skoða auglýsingarnar á www. driving.timesonline.co.uk. Alfa Romeo ætlar sér að hætta framleiðslu á Alfa 147 og koma með tvo nýja bíla í staðinn. Alfa Romeo ætlar sér að leysa Alfa 147 af með tveimur nýjum bílum, Alfa Junior og Alfa 149. Þetta gerir fyrirtækið til þess að ná til stærri hóps kaupenda. Alfa Junior verður tveggja dyra hlaðbakur sem ætlað er að höfða til fólks á aldrinum 18 til 30 ára. Útlit bílsins verður byggt á 8C Competizione og því má búast við mjög aggressívu útliti. Bíllinn verður fáanlegur með 95 og allt upp í 230 hestafla vél. Alfa 149 verður aftur á móti fimm dyra hlaðbakur byggður á grind Fiat Bravo. Hann mun verða töluvert dýrari en Junior og sömu- leiðis betur búinn og með 149 upp í 265 hestafla vél. Ný tvenna Alfa Romeo

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.