Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 23

Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 23
Tilvalið er að finna sér falleg- an blett í náttúrunni og borða nesti þegar farið er í fríið. Ævintýri fyrir börnin. Allir landsmenn virðast á far- aldsfæti. Heilu hjarðirnar af ferðamönnum með húsbíla, felli- hýsi, tjaldvagna eða bara tjaldið í skottinu streyma út fyrir borg- ar- og bæjarmörk. Eitthvað þarf allt þetta fólk að borða og oftar en ekki er stoppað í einhverjum af hinum fjölmörgu vegasjopp- um sem standa við þjóðveginn. Vandamálið er að sjoppurnar bjóða fæstar upp á hollan mat og er hamborgarinn og frönsku kartöflurnar algengasti kostur- inn sem valinn er á matseðlin- um. Í staðinn fyrir að stoppa á bensínstöðvarplani er alltaf hægt að finna sér fallegan blett, setjast niður og borða nesti. Af slíkum blettum er nóg og þó svo það þurfi aðeins að fara út af hringveginum þá margborgar það sig. Nestið þarf ekki að vera flókið. Kaffibrúsi, kókómjólk og Svali, ávextir, jógúrt og kexpakki, sam- lokur með osti, skinku, hangi- kjöti, salati og sósu að eigin vali. Með þessu móti verður ferða- lagið ekki bara til að komast frá A til B heldur líka skemmtun í sjálfu sér. Leitina að fullkomna nestisstaðnum má setja upp sem fjarsjóðsleit fyrir börnin sem einnig verða mun ánægðari með að fá að borða úti þar sem þau geta hlaupið og leikið sér án þess að trufla aðra veitingahúsagesti. Bílferðin langa verður því að eins konar afsökun fyrir ævintýri. Svo er samlokan einnig mun hollari en franskar kartöflur með kokkteilsósu. Afsökun fyrir ævintýri Upplýsingasíða um Svarta- skóg nú á íslensku. Vefsíðan svartiskogur.de er ný vefsíða með upplýsingum um Svartaskóg fyrir ferðamenn frá Íslandi. Þar eru upplýsing- ar sem eiga að auðvelda ferða- mönnum að skipuleggja ferða- lagið. Þar er hægt að finna gistingu, veitingastaði, menn- ingaratburði og margt fleira. Einnig eru skráðar um 40 gönguferðir um skóginn auk upplýsinga um dagsferðir um svæðið. Svartiskógur er góður viðkomustaður fyrir þá sem vilja ganga, hjóla eða skíða. Þar að auki er þar hinn þekkti háskólabær Freiburg, sem er litríkasta og hippalegasta borgin í Þýskalandi. Baden- Baden er einnig við Svarta- skóg og er þekkt fyrir heilsu- lindir og spilavíti. Iceland Express flýgur til borganna Basel and Friedrich- shafen sem báðar eru í nágrenni við Svartaskóg. Gönguferð í Svartaskógi FYRSTUR MEÐ FRÉTTIRNAR www.visir.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.