Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 40

Fréttablaðið - 18.07.2007, Síða 40
 Fimm sterkir leikmenn Framara eru meiddir og er þjálfari liðsins í leit að liðsstyrk. Ólafur Þórðarson sagði við Fréttablaðið í gær að vel kæmi til greina að semja við framherjann Henry Nwosu, sem hefur verið til reynslu hjá félaginu um hríð. „Daði Guðmundsson, Hjálmar Þórarinsson, Hans Mathiesen, Patrick Redo og Theodór Óskarsson eru allir meiddir. Það er ekkert launungarmál að allir þessur leikmenn væru nálægt byrjunarliðssæti þrátt fyrir að vissulega eigi enginn víst sæti,“ sagði Ólafur, en auk þess meidd- ist Norðmaður sem var til reynslu hjá liðinu og sneri til síns heima. Fram tapaði fyrir Val í deild- inni á mánudag og er í næst- neðsta sæti með átta stig. Fimm sterkir á sjúkralistanum KR-ingar hafa fengið Ágúst Björgvinsson, þjálfara Íslandsmeistara Hauka í kvenna- flokki síðustu tvö ár, til þess að vera aðstoðarþjálfari Benedikts Guðmundssonar hjá Íslandsmeist- urum KR í Iceland Express deild karla á komandi tímabili. „Það heillar mig við KR-liðið að það hefur alla burði til þess að vinna titla í vetur. KR-ingar eru ríkjandi meistarar og ég þekki það mjög vel að þjálfa meistaralið. Það vilja allir vinna meistarana og menn þurfa að leggja enn þá meira á sig en þegar liðið vann titilinn í fyrsta skipti,“ segir Ágúst Björg- vinsson sem hætti með kvennalið Hauka í vor eftir þrjú farsæl ár. Benedikt Guðmundsson gerði KR að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn í sjö ár í vor og í kjölfarið á því er KR að fara í Evrópukeppn- ina í fyrsta sinn í 17 ár. Það er því viðburðarríkur vetur framundan. „Ég hitti Gústa á Landsmótinu og viðraði þessa hugmynd við hann um hvort að hann kæmi ekki og myndi þjálfa yngri flokka hjá okkur og yrði síðan aðstoðarþjálf- ari hjá mér í meistaraflokki karla. Hann tók strax vel í það. Við höfum unnið saman áður og það var frábært að hafa hann þá. Hann er þvílíkt duglegur og metnaðar- fullur. Ég pressaði því svolítið á hann að taka þennan slag með mér,“ segir Benedikt og bætir við: „Gústi er búinn að gera þvílíka hluti með kvennalið Hauka og maður sá það þegar hann var með mér í yngri landsliðunum á sínum tíma að hann yrði hörku þjálfari. Mér líst gríðarlega vel á að fara að vinna með honum aftur,“ segir Benedikt sem segir þá félaga enn eftir að skipta verkum á milli sín. „Við erum ekki búnir að negla niður nákvæma starfslýsingu ennþá,“ segir Benedikt. Ágúst segir málin hafa þróast á annan hátt en að hann áætlaði í upphafi sumars. „Ég ætlaði mér að komast út og þjálfa erlendis. Ég lét Haukaliðið af hendi til þess að freista þess að komast út en þegar það kom í ljós í byrjun júlí að ég færi ekki út þá höfðu KR-ingarnir samband við mig. KR er stór klúbbur og eina íslenska liðið sem er að fara að keppa í Evrópu- keppni á næsta ári. Það heillaði mig mjög mikið,“ segir Ágúst. „Við erum mjög ánægðir. Þetta er stór áfangi fyrir okkur að vera búnir að fá Gústa inn í núverandi þjálfarateymi. Við erum með Benna og Inga og fáum hann núna sem þriðja mann. Það er mikið af krökkum að æfa og við viljum bjóða upp á það besta. Við leggjum mjög mikla áherslu á að vera með öflugasta yngri flokka starfið á landinu,,“ sagði Böðvar Guðjóns- son, formaður Körfuknattleiks- deildar KR. Ágúst hefur verið kosinn besti þjálfari Iceland Express deildar kvenna undanfarin þrjú tímabil. Undir hans stjórn vann Haukalið- ið alla titla í boði á síðasta tíma- bili. „Ég kynntist Benna þegar ég var aðstoðarþjálfari hans í ungl- ingalandsliðinu í tvö ár. Hann er frábær þjálfari og það verður gaman að vinna með honum aftur. Við erum svo ólíkir á margan hátt og höfum ólíkar áherslur í þjálfun. Við erum samt mjög góðir félagar og eigum örugglega eftir að ná mjög vel saman, erum með aðeins öðruvísi aðferðir en markmiðin okkar eru mjög lík,“ segir Ágúst sem býst við að leikgreina KR og mótherja þess líkt og hann gerði sem aðstoðarþjálfari hjá lithá- enska liðinu Lietuvos Rytas. „Ég hef mikla reynslu af alls- konar vídeóklippingum sem ég vann við í Litháen og lærði mikið að kryfja bæði mitt eigið lið og andstæðinginn. Ég veit að það er eitthvað sem verður á mínum snærum en það á síðan eftir að koma í ljós hvar Benni vill nota mig mest og hvar hann vill fá mestu hjálpina. Finnur Stefánsson er líka þarna fyrir þannig að þetta verður hörkuteymi,“ sagði Ágúst. Íslandsmeistarar KR ætla sér stóra hluti í körfuboltanum og til marks um það hafa þeir fengið Ágúst Björg- vinsson, þjálfara Íslandsmeistara Hauka í kvennaflokki síðustu tvö ár, til þess að aðstoða Benedikt Guð- mundsson næsta vetur en þá fer liðið meðal annars í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sautján ár. Þetta gæti verið eitthvað rugl með mig

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.