Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 43

Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 43
Mið. 18. júl. 07 - kl. 19.15 Ísland - Noregur Laugardalsvöllur Fös. 20. júl. 07 - kl. 19.15 Ísland - Danmörk Kópavogsvöllur Mán. 23. júl. 07 - kl. 16.00 Ísland - Þýskaland Grindavíkurvöllur KIA • Laugavegi 172 • Reykjavík • s ími 590 5700 • www.kia. isKIA umboðið á Ís landi er í e igu HEKLU. ÁFRAM ÍSLAND! VIÐ STYÐJUM STELPURNAR H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA / 0 7- 98 1 Sættir hafa náðst á milli forystumanna ÍA og Keflavíkur vegna atviksins sem átti sér stað í leik liðanna í Landsbankadeildinni þann 4. júlí síðastliðinn og þeirrar viðbragða og ummæla sem áttu sér stað í kjölfar leiksins. Knatt- spyrnusamband Íslands mun ekki refsa félögunum fyrir sinn þátt í uppákomunni sem varð eftir leik- inn, þar sem miklar deilur áttu sér stað við búningsklefa leikmanna. Í tilkynningu frá KSÍ segir að mál- inu sé lokið af hálfu sambandsins. Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, beitti sér fyrir sáttum í mál- inu og fagnar þeirri niðurstöðu sem nú hefur verið náð. Spurður um af hverju þessi leið hafi verið farin sagði Geir að hann teldi hana hafa verið besta fyrir knatt- spyrnuna í landinu. „Við erum allir félagar í knattspyrnuhreyf- ingunni en stundum kastast í kekki og þá er það mitt hlutverk að ná sáttum,“ sagði Geir en vildi ann- ars lítið tjá sig um málið og vísaði í yfirlýsingu. Spurður að því hvort atvikin sem áttu sér stað eftir leik væru ekki refsiverð sagðist Geir ekki geta tjáð sig um einstaka málsatvik en bætti við að um væri að ræða mjög sérstakt tilfelli. „Margt af því sem þarna kemur upp er ekki skráð í lög og reglu- gerðir en ljóst er að málið hafði mjög neikvæð áhrif fyrir ímynd íslenskar knattspyrnu. Við teljum þessa lausn vera þá bestu fyrir íslenska knattspyrnu.“ Í yfirlýsingu KSÍ kemur fram að sambandið telur markið umdeilda, sem Bjarni Guðjónsson skoraði, ekki samræmast heiðar- legum leik. KSÍ harmar að það hafi ráðið úrslitum í leiknum og fer fram á það við leikmenn Knatt- spyrnufélags ÍA að slíkt endurtaki sig ekki. Jafnframt hvetur KSÍ leikmenn, forystumenn og stuðn- ingsmenn liða til þess að halda vöku sinni og standa vörð um heið- arlegan leik. ÍA og Keflavík verður ekki refsað ÍA og Keflavík sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu í gær sem markar endalok málsins af þeirra hálfu. Málalyktirnar eru eftirfarandi: „Í heiðarlegum leik felst að keppendur komi fram af dreng- lyndi og sýni mótherjum virðingu. Sannur keppnisandi verður ávallt að grundvallast á heiðarlegum leik innan sem utan vallar. Seinna mark ÍA gegn Keflavík í Landsbankadeild karla 4. júlí sl. var ekki í samræmi við þau gildi sem heiðarlegur leikur grundvallast á. Þetta harmar Knattspyrnufélag ÍA og biðst afsökunar á því. Bæði félög munu leggja áherslu á að standa vörð um þau heilbrigðu gildi sem íslensk knattspyrna byggir á með heiðarlegum leik um leið og þau harma óviðeigandi viðbrögð og ummæli í kjölfar leiksins. Við forystumenn félaganna, Örn Gunnarsson varaformaður rekstrarfélags ÍA og Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnu- deildar Keflavíkur, staðfestum að sú óeining sem varð á milli félaganna í kjölfar ofangreinds marks 4. júlí sé úr sögunni.“ ÍA biðst afsökunar Franski vængmaðurinn Ludovic Giuly hefur skrifað undir samning við Roma á Ítalíu og kemur til liðsins fyrir um 300 milljónir króna frá Barcelona. Brottför Giulys rennir stoðum undir að Eiður Smári Guðjohnsen verði áfram í herbúðum spænska félagsins, enda fækkar sífellt þeim leikmönnum sem geta leyst af Thierry Henry og Samuel Eto´o í fremstu víglínu liðsins. Giuly skrifaði undir þriggja ára samning við Roma en hann er 31 árs gamall. Giuly skoraði 20 mörk á þriggja ára ferli sínum með Barca. Giuly til Roma

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.