Fréttablaðið - 18.07.2007, Page 46
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Ég man ekkert eftir að hafa
rætt við Ómar Ragnarsson um
þyrlukaupin. En ég man slaginn
um þyrluna og hvað það tók allt
of langan tíma að fá hana til
landsins. Svo situr hún ein eftir
sú þyrla núna.“
„Ég er að flytjast norður og taka
við kennarastöðu hjá MA,“ segir
Eyrún Huld Haraldsdóttir. Nafn
Eyrúnar Huldar var á allra vörum
þegar þjóðin horfði á sigurgöngu
Magna Ásgeirssonar í Rock Star:
Supernova í fyrrasumar. Síðan
tóku við timburmenn frægðarinn-
ar og uppúr slitnaði hjá parinu
eins og alþjóð veit. Eyrún hefur
hins vegar látið lítið fyrir sér fara
og einbeitt sér að uppeldi sonar-
ins, Marínós Bjarna, sem nú er að
verða tveggja ára.
Þau hafa búið á Bauganesi í
Skerjarfirðinum þar sem Magni
er reyndar enn skráður til húsa.
„Við höfum ekki haft tíma til að
breyta þessu,“ segir Eyrún en hún
nýtur sumarsins á Héraði þar sem
sólin skín í heiði eins og annars
staðar á landinu. Fréttablaðið
hafði haft af því spurnir að hún og
Magni væru jafnvel að taka
saman aftur en Eyrún vildi lítið
tjá sig um það. „Við erum mjög
góðir vinir enda ekki annað hægt.
Við eigum barn saman,“ segir
Eyrún.
Eyrún hefur notið lífsins það sem
af er sumri ef marka má
bloggsíðu hennar. Fór
meðal annars til Kaup-
mannahafnar og hlýddi
þar á sjálft rokkgoðið
Eddie Vedder sem er í
miklu uppáhaldi hjá
henni. „Hef horft á
ófáa tónleikana með
kappanum í imbanum
en hann heillaði mig
alveg upp á nýtt,“ skrifar
Eyrún. Og á eftir fylgdu
tónleikar með Damien
Rice á Vega, litlum tónleika-
stað í miðbæ borgarinnar. Nú
taka hins vegar við búferla-
flutningar til Akureyrar, höfuð-
staðar Norðurlands, frá skarkala
höfuðborgarinnar þar sem akur-
eyskir menntskælingar
verða teknir í íslensku-
kennslu.
Eyrún Huld flytur norður
Valgeir Sigurðsson tónlistar-
maður og upptökustjóri stýrði
upptökum á plötunni We Can
Create með tónlistarmanninum
Maps en hún hefur verið tilnefnd
til hinna virtu Mercury-tónlist-
arverðlauna. Alls eru tólf plötur
tilnefndar en þarna er einnig að
finna Arctic Monkeys, Amy Win-
ehouse, Dizzie Rascal, Klaxons
og fleiri en Valgeir hefur meðal
annars unnið með Björk, Coco
Rosie, Nico Muhly og Múm.
„Þetta er frábært að heyra,“
segir Valgeir sem hafði ekki
heyrt af tilnefningunni er Frétta-
blaðið hafði samband við hann.
„Við lögðum heilmikla vinnu í
þetta verkefni en platan var að
mestu leyti unnin síðasta sumar.
Síðan var platan hljóðblönduð af
Ken Thomas en þetta eru mjög
sterk og spennandi lög og ég var
mjög ánægður með útkomuna.
Það er tiltölulega langt síðan ég
lauk minni vinnslu við plötuna
enda kom hún út í apríl og gaman
að sjá að hún sé að fá athygli,“
sagði Valgeir en sjálfur mun
hann gefa út sína fyrstu plötu 9.
ágúst.
„Ég kláraði hana í vor en þetta
er fyrsta sólóplatan mín og hún
er gefin út af mínu eigin útgáfu-
fyrirtæki,“ segir Valgeir en plat-
an heitir hinu stóra nafni Ekvíl-
ibríum. Þegar hann er beðinn um
að lýsa tónlistinni segir hann:
„Þetta er einhvers konar blanda
af akústískum og elektrónískum
tónum og flest lögin eru instrúm-
ental. Þó eru fjögur sem sungin
eru af gestasöngvurum en það
eru þeir Will Oldham eða „Bonn-
ie Prince Billie“, Don MCarthy
og Ástralinn J. Walker sem
syngja inn á plötuna fyrir mig.“
Valgeir orðaður við Mercury-verðlaunin
Fyrirsætan Chloe Ophelia
Gorbulew sest á skólabekk í Nort-
humbria University í Newcastle í
haust, en þar hyggst hún læra
arkitektúr. „Mig hefur lengi
dreymt um að læra arkitektúr,“
segir Chloe. „Ég kláraði listnáms-
braut í Iðnskólanum í Reykjavík
og ætlaði alltaf í skóla í Kaup-
mannahöfn. Það datt upp fyrir
þannig að ég flutti hingað, fann
þennan fína skóla og komst inn.
Ég er mjög sátt við það. Hér er
meiri áhersla lögð á verkfræði-
hliðina en víða annars staðar enda
er skólinn þekktur fyrir stóra og
öfluga verkfræðideild. Við fáum
því ekki að teikna skrautbygging-
ar sem ómögulegt er að byggja,“
segir hún og hlær.
Námið er til BA gráðu og tekur
þrjú ár. „Svo er hægt að fara
ýmsar leiðir í þessu eftir það. Mér
skilst reyndar að þeir sem kláruðu
BA námið síðast hafi margir hverj-
ir strax fengið spennandi atvinnu-
tilboð í Bandaríkjunum og víðar.
Ef maður yrði svo heppinn væri
gaman að prófa það og huga svo að
mastersnámi síðar.“
Chloe hefur búið í Bretlandi
síðan í lok nóvember en fyrir þann
tíma starfaði hún sem fyrirsæta á
Indlandi fyrir Eskimo. Hún segir
dvölina á Indlandi hafa verið lær-
dómsríka. „Indland var æðislegt.
Það er gaman að upplifa eitthvað
sem er svona allt öðruvísi. Maður
lærði helling og kynntist frábæru
fólki. Svo lærði ég að kunna að
meta indverska matargerð enda
sást það á manni þegar maður kom
tilbaka!“
Sem fyrr segir hefst námið ekki
fyrr en í haust en Chloe starfar í
augnablikinu sem útstillingahönn-
uður í húsgagnaversluninni Ilva.
„Keðjan var keypt af Íslendingum
snemma á árinu. Maður virðist
einhvern veginn alltaf enda á því
að vinna fyrir Íslendinga hvar
sem maður er,“ segir Chloe hlæj-
andi. Hún býr í parhúsi í New-
castle ásamt kærasta sínum, Árna
Elliott Swinford og hundinum
þeirra. „Við getum leigt hús í New-
castle fyrir helmingi minni pening
en við myndum borga fyrir litla
tveggja herbergja íbúð í London.
Það var ein af ástæðum þess að ég
hafði ekki áhuga á að vera þar, það
er einfaldlega of erfitt að draga
fram lífið.“
Chloe segir að draumurinn sé að
eignast eigin arkitektastofu í
framtíðinni. Hún segist jafnframt
ekki vera á heimleið í bráð. „Við
erum alveg til í að flytja til Íslands
einhvern tímann en það er ekki á
dagskránni í bráð. Draumurinn er
að stofna stofu, búa í húsi eftir
sjálfa mig og vinna við að teikna
falleg hús fyrir fólk - að skilja eitt-
hvað eftir sig.“
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FYRSTUR
MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is