Fréttablaðið - 18.07.2007, Side 48
Einmitt þegar hver réttlát sál hugsar vart um annað en
þorskkvóta og kolefnisjöfnun get
ég varla vikið Glitni úr huga mér.
Daglega og oft á dag verður mér
hugsað til þeirrar ágætu stofnun-
ar. Ekki þó sökum ískyggilegs
lánakostnaðar eða vaxtastefnu,
heldur vegna ímyndar hreysti og
þolgæðis sem bankinn hefur komið
sér upp með stuðningi við Reykja-
víkurmaraþonið. Sífellt fleiri sófa-
kartöflur sjást nú á óttaslegnum
hlaupum um götur borgarinnar
því Stóridagur nálgast óðfluga og
ekki lengur er hægt að humma
æfingarnar fram af sér.
fullorðnir minnast æsku
þegar þeir gátu hlaupið þindar-
laust dagana langa og blésu ekki
úr nös. Núorðið eru þannig gas-
elluhlaup aðeins í draumum
mínum, bitur raunveruleikinn er
annar.
harðneskjulega æfinga-
tímabil hófst sem kunnugt er á síð-
ustu menningarnótt þegar ég sór
þess dýran eið í votta viðurvist að
hlaupa tíu kílómetra að ári. Á þeim
tíma sem liðinn er síðan hef ég
lært eitt og annað um sjálfa mig,
en einkum að mér finnst alveg
rosalega erfitt að hlaupa. Mun
þægilegra er að ganga eða jafnvel
keyra bara. Þannig myndi ég vissu-
lega ferðast einvörðungu ef ekki
væri fyrir árans eiðinn. Hans
vegna hef ég auk þess komist að
því hvernig er að fá raunverulegar
harðsperrur.
óvenjulega langdreginn
hlaupatúr sem entist svo lengi
vegna þrjósku mannsins míns í
hlutverki sérlegs kvalara, birtust
svo magnaðar harðsperrur að ég
hélt ég væri komin með brjósklos.
Í þrjá daga hökti ég um heimilið og
dró á eftir mér þann fótinn sem
geymdi mögulegt brjósklosið, eða
jafnlengi og ég komst upp með
það. Gestir héldu að ég væri að
gera grín að fötluðum með göngu-
laginu og hvorki heitir bakstrar né
fagmannlegar jógateygjur gerðu
nokkurt gagn. Um síðir var kval-
ara minn farið að gruna uppgerð,
mundaði keyrið og benti orðalaust
á íþróttaskóna í fatahenginu. Eftir
svona tvo kílómetra var brjósklos-
ið því miður horfið í skuggann af
allskyns öðrum hlaupastingjum
sem ég vissi ekki áður að fólk
þyrfti að læra að harka af sér til að
geta hlaupið þessa skitnu bæjar-
lengd. Ef til væri kvörtunardeild í
kaupfélagi tilverunnar myndi ég
örugglega nefna það með mörgu
öðru.
Strengir
The pursuit of perfection
RX 350 sameinar glæsileika, fágun, gríðarmikið afl og einstakt öryggi.
Hann er athvarf frá álagi hinna virku daga. Hann er hrein upplifun þar sem
landið hættir að setja þér takmörk og víður sjóndeildarhringur opnar þér
nýja möguleika. Komdu og gefðu Lexus RX 350 færi á að uppfylla ýtrustu
kröfur sem þú gerir til lúxussportjeppa. Niðurstaðan verður gagnkvæm
virðing milli þín og RX 350, bíls sem er smíðaður til að standa undir
ströngustu væntingum.
Verð frá: 5.520.000 kr.
Nýbýlavegi 6 Kópavogur Sími 570 5400 www.lexus.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
O
Y
3
80
43
0
7/
07
SJÓNDEILDARHRING
ÞÚ ÖÐLAST NÝJAN
FYRSTUR MEÐ
FRÉTTIRNAR
www.visir.is