Fréttablaðið - 31.07.2007, Síða 12

Fréttablaðið - 31.07.2007, Síða 12
HLAUPTU TIL GÓÐS 18. ÁGÚST! Nú getur þú hlau pið fyrir gott mál efni að e igin vali í Reykjavík urmaraþo ni Glitnis . Glitnir greiðir 5 00 kr. ti l góðgerða rmála á hvern kí lómetra sem viðs kiptavinir * bankans hlaupa og 3.000 k r. fyrir sta rfsmenn. Skráðu þ ig á www .glitnir.is og hlaup tu til góð s. Allir sigra 18. ágús t! *Viðskipt avinir í V ild, Náms vild, Gullvild og Platín um. Tekjur ríkisins af fjár- magnstekjum einstaklinga voru 16,3 milljarðar króna á síðasta ári, sem er þriðjungs aukning frá árinu á undan. Um 93 þúsund skattgreið- endur standa á bak við greiðslurn- ar, og greiddu því um að meðaltali 175 þúsund krónur. Í yfirliti vegna skattaálagningar árið 2007, sem fjármálaráðuneytið sendi frá sér í gær, kemur fram að söluhagnaður af hlutabréfum skýri rösklega helming af skattstofni fjármagnstekjuskatts, en arður og vaxtatekjur um fjórðung hvor. Fjármagnstekjuskattur verður sífelt stærri hluti af álögðum tekjuskatti sem rennur til ríkisins, og er nú 16,6 prósent af heildar- greiðslum tekjuskatts. Árið 2006 var hlutfallið 14,4 prósent og til samanburðar var tekjuskattur aðeins 7,2 prósent af tekjuskatti ríkisins árið 2002. Samanlagður tekjuskattur og útsvar við álagningu 2007 var 185,5 milljarðar króna, og hækkði um 13,4 prósent frá fyrra ári. Fjöldi framteljenda var 253.911 og fjölgaði um 5,2 prósent milli ára. Fjölgunin hefur aldrei verið jafn mikil, en skýringin er mikill aðflutningur fólks til landsins und- anfarin ár. Tekjuskattur skiptist í þrennt; í almennan tekjuskatt og fjár- magnstekjuskatt sem renna til ríkisins, og í útsvar sem rennur til sveitarfélaga. Álagður almennur tekjuskattur var samtals 81,9 milljarðar króna, og jókst um 10 prósent milli ára. Á bak við þá upphæð standa rúm- lega 175 þúsund einstaklingar og greiddi meðalskattgreiðandinn því um 467 þúsund krónur á árinu, sem er 5,1 prósent aukning. Tekjur ríkisins af fjármagns- tekjuskatti var 16,3 milljarðar króna á síðasta ári, eða um 175 þúsund krónur á hvern hinna 93 þúsunda skattgreiðenda sem greiddu fjármagnstekjuskatt. Útsvar til sveitarfélaga var 87,3 milljarðar króna, sem er aukning um 12,4 prósent milli ára. Gjaldendur útsvars eru tæp- lega 245 þúsundir talsins, og greiddi því hver og einn um 356 þúsund á árinu. Tekjur af fjármagnstekju- skatti aukast um þriðjung Fjármagnstekjuskattur verður sífellt stærri hluti af tekjuskatti til ríkisins. Er 16,6 prósent nú en 14,4 prósent í fyrra. Samanlagðar tekjuskattsgreiðslur og útsvar við álagningu 2007 voru 185,5 milljarðar króna.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.