Fréttablaðið - 31.07.2007, Qupperneq 29
20.30
Guðrún Dalía Salómonsdóttir
píanóleikari heldur einleiks-
tónleika í Listasafni Sigur-
jóns. Þetta eru fyrstu
einleikstónleikar hennar hér
á landi, að loknu námi við
Tónlistarháskólann í Stutt-
gart. Á efnisskránni eru verk
eftir Bach, Mozart, Debussy,
Chopin, Schumann og Snorra
Sigfús Birgisson. Miða má
kaupa við innganginn.
Listasafnið Hangar-7 í Aust-
urríki setur í lok september
upp sýningu tileinkaða
íslenskum listamönnum. Sjö
íslenskir listamenn verða
valdir til að sýna þar. Mikill
fjöldi fólks sækir sýningar
þarna og er þetta því mikill
fengur fyrir þá listamenn
sem verða valdir.
„Ég er búin að taka ákvörðun um
fjóra listamenn sem sýna hjá okkur
í september. Það eru þeir Helgi
Þorgils, Davíð Örn Halldórsson,
Guðmundur Thoroddsen og Ragn-
ar Kjartansson,“ segir Lioba Redd-
eker, aðalsýningarstjóri listagall-
erísins Hangar-7 í Austurríki, sem
er stödd hér á landi til að skoða
verk og hitta listamenn. „Ég mun
velja þrjá aðra en það er ekki alveg
komið á hreint enn hverjir það
verða.“
Lioba er afar hrifin af íslensku
listasenunni og finnst hún sjá annað
sjónarhorn í verkum listamanna
hér en annars staðar sem hún hefur
komið. „Það er ótrúlega mikið að
gerast hérna miðað við fólksfæð-
ina. Það hljómar eins og klisja en
mér finnst afar merkilegt að sjá að
flestir listamennirnir hér skapa
algerlega sinn eigin heim. Þeir taka
inn það sem er að gerast en vinna
svo úr því á afar persónulegan hátt.
Þeir virðast líka ekki hafa neina
þörf til að vera í andstöðu við lista-
söguna eða gamlar hefðir. Þeir taka
bara það sem hentar þeim og hafna
hinu áreynslulaust.“
Lioba segir það hafa verið ótrú-
legt að koma inn á vinnustofuna hjá
Helga Þorgils. Eins er hún hrifin af
ungu listamönnunum sem hún er
búin að velja og hlakkar til að sjá
hvað gerist í kjölfar sýningarinnar
í Hangar-7.
Listasafnið Hangar-7 er gamalt
flugskýli sem hefur verið breytt í
lista- og flugvélasafn í mikilfeng-
legri glerbyggingu. Hangar-7 er
ekki hefðbundið listasafn, það eru
engir hvítir veggir eða ferköntuð
rými og stór hluti fólksins sem
heimsækir safnið er ekki að koma
til að skoða listaverk heldur flug-
vélar eða til að borða á veitinga-
staðnum á safninu. „Helsta vanda-
mál nútímalistasafna er að fá fólk
inn í söfnin því nútímalist er oft
óaðgengileg fyrir almenning. Í
Hangar-7 fáum við mikið af fólki
sem fer almennt ekki á listasöfn.
Það koma á milli tíu og tuttugu þús-
und manns á hverja sýningu hjá
okkur sem er mjög óvenjulegt.“
Lioba segir að reynt sé að skilja
gestina ekki úti í kuldanum og allir
gestirnir fái sýningarskrá í bókar-
formi þar sem öll verkin eru skýrð
ítarlega og gerð aðgengilegri sem
skili sér í auknum skilningi á
nútímalist.
Síðustu ár hafa verið haldnar sýn-
ingar í safninu þar sem einblínt
hefur verið á eitt land og nú í sept-
ember er röðin komin að Íslandi.
Það er mikill fengur í því að sýna
þarna því að sögn Liobu hafa sýn-
ingar þarna komið mörgum óþekkt-
um listamönnum á kortið. „Margir
listamenn sem hafa sýnt hér hafa
selt það vel að bæði geta þeir lifað á
því í einhvern tíma og stór gallerí
þora að taka þá inn þegar þeir eru
búnir að sýna fram á að verkin
þeirra seljist. Við erum mjög ánægð
þegar okkur tekst að hjálpa til við
að fá boltann til að rúlla hjá lista-
fólki,“ segir Lioba að lokum.
Styrktartónleikar Para-Dís
Hljómsveitin Sigur Rós gefur út
safnplötuna Hvarf-Heim hinn 5.
nóvember, sama dag og tónleika-
mynd sveitarinnar Heima kemur
út. Plötunni verður skipt í tvo
hluta. Á fyrri hlutanum, Hvarf,
verða þrjú áður óútgefin lög sem
nefnast Salka, Hljómalind og Í
gær. Einnig verður þar endur-
hljóðblönduð útgáfa af laginu
Von af plötunni Vonbrigði. Á síð-
ari hluta safnplötunnar, Heim,
verða sex lög í órafmögnuðum
útgáfum. Heita þau Samskeyti,
Starálfur, Vaka, Ágætis byrjun,
Heysátan og Von.
„Við völdum lög sem voru í
miklu uppáhaldi hjá okkur,“ sagði
Orri Páll Dýrason trommari í
spjalli við heimasíðu breska tón-
listartímaritsins NME.
Tónleikamyndin var tekin upp
víðs vegar um Ísland á síðasta ári,
þar á meðal á Klambratúni og í
Ásabyrgi, og er hennar beðið með
mikilli eftirvæntingu. „Það var
gaman að spila á þessum tónleik-
um, sérstaklega fyrir framan vini
okkar,“ sagði Orri. „Stundum spil-
uðum við á stórum tónleikum en
við spiluðum líka á litlum svæð-
um sem voru mjög falleg.“
Safnplata á leiðinni
V
in
n
in
g
ar
v
er
ð
a
af
h
en
d
ir
h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
ó
p
av
o
g
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
t
ak
a
þ
át
t
er
tu
k
o
m
in
n
í
SM
S
kl
ú
b
b.
9
9
kr
/s
ke
yt
ið
.
VINNINGAR ERU BÍÓMIÐAR, TÖLVULEIKIR,
DVD MYNDIR OG MARGT FLEIRA!
SENDU SMS JA SMF Á 1900
OG ÞÚ GÆTIR UNNIÐ MIÐA
HEIMSFRUMSÝND MEÐ
ÍSLENSKU OG ENSKU TALI 27. JÚLÍ
11.
HVER
VINNUR
!