Fréttablaðið - 31.07.2007, Síða 34

Fréttablaðið - 31.07.2007, Síða 34
Skátaheitið Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að gera skyldu mína við guð og ættjörðina, að hjálpa öðrum og að halda skátalögin. Skátar ungir sem aldnir Endurnýjum skátaheitið á Sólrisudegi, kl 8:00 í fyrramálið. Í tilefni þess að 1. ágúst 2007 eru 100 ár liðin frá upphafi skátahreyfingarinnar munu skátar um allan heim endurnýja skátaheitið kl. 8:00 að morgni í sínu landi, við dögun nýrrar aldar í skátastarfi. Þetta getur hver skáti gert hvar sem hann er staddur á þessum tíma. Opið hús verður í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123 í Reykjavík, frá kl. 06:30 og þar verður skátaheitið endurnýjað kl. 08:00 undir stjórn skáta- höfðingja og horft verður á dagskrá frá Brownsea eyju í Englandi. Stjórn KR-Sport, rekstr- arfélags meistaraflokks KR í knattspyrnu, ákvað á fundi sínum í gærmorgun að víkja Teiti Þórð- arsyni úr starfi sem þjálfari liðs- ins. Teitur skrifaði undir fimm ára samning við KR í september árið 2005 og segist ósáttur með að hafa ekki fengið að klára það verk sem honum var ætlað. „Eðlilega er ég svekktur. Við unnum samkvæmt fimm ára áætl- un og vorum komnir tvö skref áfram í því ferli. Ég er þannig gerður að ég vil klára það sem ég byrja á þannig að auðvitað er súrt að þetta skuli vera niðurstaðan,“ segir Teitur en tekur fram að hann beri engan kala til ráðamanna KR. „Mér hefur liðið vel hjá félaginu og vona innilega að liðinu gangi sem best í þeim leikjum sem eftir eru,“ segir hann. Miklar vonir voru bundnar við komu Teits í Frostaskjólið og voru honum ætlaðir stórir hlutir, bæði með meistaraflokk liðsins sem og knattspyrnuþjálfun innan félags- ins í heild sinni. Sérstök knatt- spyrnuakademía fyrir efnilegustu leikmenn félagsins var sett á lagg- irnar í því sambandi og var hugs- unin að láta KR feta áður óþekktar slóðir í íslenskri knattspyrnu sem mætti að mörgu leyti líkja við það sem tíðkast erlendis. Þær áætlan- ir hafa ekkert breyst, þrátt fyrir brotthvarf Teits úr stól skólastjóra nú. Teitur segist hafa fundið fyrir fullum stuðningi stjórnar félags- ins í sumar þrátt fyrir dapurt gengi liðsins. KR er neðst í Lands- bankadeildinni með sjö stig eftir 11 leiki og hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu. „Stærstu von- brigðin í þessu öllu saman eru að liðinu hefur ekki gengið betur. Ég er ábyrgur fyrir árangri liðsins og árangurinn hefur ekki verið góður. Því er þetta niðurstaðan.“ Teitur var mættur í Frostaskjól- ið í gærkvöldi og fylgdist með sínum fyrri lærisveinum á fyrstu æfingu nýja þjálfarans. Teitur fór meðal annars inn í búningsklefa fyrir æfingu og kvaddi leikmenn og þakkaði þeim fyrir samstarfið. Að svo búnu fóru þeir út á sína fyrstu æfingu hjá Loga Ólafssyni. Andrúmsloftið í KR-heimilinu var tregablandið þegar Teitur kvaddi sína nánustu samstarfs- menn og greinilegt að hann er vel liðinn á meðal þeirra sem starfa í KR-heimilinu. Hann segir óvíst hvað taki við hjá sér. „Ætli ég byrji ekki á að taka mér gott sumarfrí, sem ég hef ekki gert í nokkur ár. Ég hef ekki séð Ísland í 30 ár þannig að ég þarf ekki einu sinni að fara til Kanaríeyja.“ Teitur Þórðarson var um hádegisbilið í gær rekinn úr starfi sínu sem þjálfari KR. Við starfi hans tekur Logi Ólafsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari. Gátum ekki beðið lengur eftir neistanum Arnór Guðjohn- sen, umboðsmaður og faðir Eiðs Smára Guð- johnsen, sagði í viðtali við Sky Sports í gær að Eiður Smári Guðjohnsen hefði áhuga á að fara til West Ham. Framtíð Eiðs Smára hjá félaginu hefur verið mikið í umræðunni síðan að Thierry Henry kom til félagsins í sumar. „Ég hef heyrt um áhuga West Ham en þeir hafa ekki sett sig í samband við mig. Eiður myndi skoða tilboð frá West Ham enda eru Íslendingar fyrir hjá félag- inu,“ sagði Arnór í viðtalinu en hann segir að Eiður sé að skoða framtíð sína. „Eiður einbeitir sér nú að því að ná sér góðum af meiðslun- um og hann mun ekki taka neina skyndi- ákvörðun um framtíð sína. Við munum skoða vel alla mögu- leika í stöðunni,“ sagði Arnór við Sky. Eggert Magnús- son, stjórnarformaður West Ham, vildi ekkert tjá sig um málið í gær og ekki náðist í Arnór sjálfan en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins fór hann út til London í gær. Eiður Smári hefur áhuga á West Ham Valur vann 10-0 sigur á ÍR í Landsbankadeild kvenna í gær en leikurinn var færður fram vegna þátttöku Valskvenna í Evrópukeppninni í ágúst. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði sex marka Vals þar af tvö þeirra út vítaspyrnum, varamað- urinn Guðný Björk Óðinsdóttir skoraði tvö mörk með mínútu millibili og þær Dóra María Lárusdóttir og Vanja Stefanovic gerðu hvor sitt markið. Stórsigur Vals

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.