Fréttablaðið - 07.08.2007, Page 4
Express Fer›ir, Grímsbæ, Efstalandi 26, sími 5 900 100 Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express
GÖNGUFERÐIR
Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100
27.sept.–1. okt.
Farastjóri: Ingibjörg Þórhallsdóttir
Gönguferð
á Alicante
Verð á mann í tvíbýli
88.900 kr.
Hæstiréttur hefur
staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð
til 25. september yfir tveimur
síbrotamönnum, 18 og 19 ára.
Mennirnir hafa gerst sekir um
mikinn fjölda afbrota á undan-
förnum mánuði, en þeir sluppu úr
gæsluvarðhaldi í byrjun júní.
Annar þeirra var stöðvaður
fjórtán sinnum undir stýri án
ökuréttinda. Samtals er um nærri
30 afbrot að ræða, sem öll voru
framin í júlí. Annar mannanna
hlaut fimmtán mánaða fangelsis-
dóm í febrúar síðastliðnum, og
hinn þriggja mánaða skilorð í maí.
Brotaferill þeirra er nær óslitinn
meðan þeir ganga lausir.
Stanslaus afbrot
ef þeir eru lausir
Hátíðahöld um verslun-
armannahelgina fóru víðast hvar
vel fram. Nokkuð færri voru á far-
aldsfæti en undanfarin ár, og er
veðurspánni þar helst kennt um.
Um tuttugu fíkniefnamál komu
upp í Vestmannaeyjum og á Akur-
eyri, þar sem flest var af fólki. Þó
heimsóttu mun færri Akureyri í
ár en í fyrra. Engin nauðgun hafði
verið kærð til lögreglu síðdegis í
gær.
Á Þjóðhátíð í Eyjum voru vel
yfir tíu þúsund gestir og fór hátíð-
in tiltölulega vel fram. Jóhannes
Ólafsson yfirlögregluþjónn segist
mjög ánægður með hvernig til
tókst, hátíðin hafi sennilega verið
sú næst fjölmennasta sem haldin
hefur verið í Eyjum.
Ellefu fíkniefnamál komu upp á
hátíðinni og fimm líkamsárásir
voru tilkynntar lögreglu. Veðrið
var gott að sögn Jóhannesar, fyrir
utan hvassviðri á fimmtudeginum
og smávegis norðankalda seinni
part laugardags. Þjóðhátíðargest-
ir voru farnir að streyma í bæinn
strax í gærmorgun.
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu
var haldin á Akureyri um helgina,
og er áætlað að um sex þúsund
manns hafi lagt leið sína þangað.
Það er um það bil helmingi minna
en vant er.
Varðstjóri lögreglunnar á Akur-
eyri segir hátíðina hafa farið vel
fram, en rigning og kuldi hafi sett
strik í reikninginn. Fíkniefnamálin
sem komu upp voru um tíu, og fjór-
ar líkamsárásir voru tilkynntar.
Friðsamlegasta hátíðin um
verslunarmannahelgina var lík-
legast Unglingalandsmót Ung-
mennafélags Íslands sem haldið
var á Höfn í Hornafirði. Þar voru
um sjö þúsund gestir, og voru þeir
allir til sóma að sögn fulltrúa lög-
reglunnar. Hvorki komu upp fíkni-
efnamál né voru líkamsárásir til-
kynntar.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðal-
varðstjóri hjá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu, segir meira af
fólki hafa verið að skemmta sér í
miðbænum um helgina en hefur
verið undanfarnar verslunar-
mannahelgar. „Það var erill hjá
okkur á föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld, en þetta fór samt
þokkalega vel fram,“ segir hann.
Hátíðir helgarinnar
ágætlega heppnaðar
Þúsundir skemmtu sér á hátíðum víðs vegar um landið um helgina. Áberandi
færri voru á ferðinni en undanfarin ár. Flestir fóru á Þjóðhátíð í Vestmannaeyj-
um og á Eina með öllu á Akureyri. Veður setti víða strik í reikninginn.
Jose Ramos
Horta, forseti á Austur-Tímor,
hefur ákveðið að Xanana Gusmao
verði næsti forsætisráðherra
landsins og
myndi stjórn,
þrátt fyrir að
Fretelin-
flokkurinn,
fjölmennasti
flokkur á þingi,
geri tilkall til
stjórnarmynd-
unarumboðs.
Til átaka kom í höfuðborginni og
kveiktu hópar ungmenna í.
Gusmao, sem er fyrrverandi
forseti landsins, verður settur í
embættið á morgun. Í þingkosning-
unum í júní hlaut Fretelin ekki
nægan styrk til að mynda meiri-
hlutastjórn, en flokkur Gusmaos
fékk næstflest þingsæti.
Gusmao fær að
mynda stjórn
Karlmaður á þrítugsaldri
lést í umferðarslysi á áttunda tím-
anum í gærmorgun. Maðurinn
missti stjórn á fólksbifreið í
beygju á Laugarvatnsvegi við
Þóroddsstaði með þeim afleið-
ingum að bíllinn fór nokkrar
veltur og maðurinn kastaðist út
úr honum. Hann var einn í
bílnum.
Lögreglumenn á leið að Selfossi
höfðu mætt bifreiðinni á Biskups-
tungnabraut og gefið ökumanni
merki um að stöðva með því að
kveikja á sírenu. Þegar lögreglu-
mennirnir snéru við sáu þeir að
ökumaðurinn hafði aukið hrað-
ann. Þeir hófu eftirför, en misstu
sjónar á bifreiðinni. Þá slökktu
þeir á sírenunni.
Lögreglumennirnir héldu áfram
að svipast um eftir bílnum og töldu
sig hafa séð hann við Svínavatn
með stefnu upp Laugarvatnsveg.
Það næsta sem þeir sáu var ryk- og
gufumökkur. Þeir komu að mann-
inum meðvitundarlausum og báru
lífgunartilraunir ekki árangur.
Þetta var sjötta banaslysið í
umferðinni í ár. Á sama tíma í
fyrra höfðu fjórtán manns látist í
umferðarslysum.
Flúði lögreglu og fórst í bílslysi
Lögreglumenn í Bangkok í
Taílandi sem mæta seint til vinnu,
leggja ólöglega eða brjóta af sér á
annan hátt þurfa að ganga með
armband með
mynd af
teiknimyndaper-
sónunni Hello
Kitty í nokkra
daga, samkvæmt
nýjum reglum.
Armbandið er stórt og bleikt og
tvö hjörtu eru saumuð í það. Með
þessu vilja lögreglustjórar halda
uppi aga og sýna að jafnvel
smæstu afbrot séu refsiverð.
Lögregluþjónunum sem ganga
með armbandið er meinað að segja
frá hvað þeir gerðu af sér.
Hello Kitty-persónan hefur
verið vinsæl í Asíu í marga áratugi
og má finna margs konar varning
merktan henni.
Nota Hello
Kitty-armbönd
Málþing um fjölmenn-
ingu hefst í Alþjóðahúsinu í dag.
Menningarmál verða sérstaklega til
umræðu í kvöld en á morgun
verður rætt um aðbúnað og réttindi
innflytjenda á Íslandi, pólitíska og
félagslega stöðu þeirra og hagræn
áhrif fyrir íslenskt efnahagslíf.
Í kvöld verður meðal annars rætt
um erlenda rithöfunda sem eru
„afsprengi ólíkra kúltúra“, eins og
orðrétt segir í tilkynningu, og hafa
haft djúpstæð áhrif samfélög víða
um heim.
Íslenskunám fyrir útlendinga
verður einnig til umræðu. Meðal
fyrirlesara í kvöld verða Toshiki
Toma, prestur innflytjenda, Halldór
Guðmundsson rithöfundur og
Katrín Jakobsdóttir þingkona.
Málefni inn-
flytjenda til
umræðu