Fréttablaðið - 07.08.2007, Síða 17
Háskólaneminn Elísabet Margeirsdóttir tekur
þátt í Reykjavíkurmaraþoni Glitnis 18. ágúst
næstkomandi.
Elísabet Margeirsdóttir, 22 ára, stefnir á þátttöku í
Reykjavíkurmaraþoni Glitnis sem fram fer 18. ágúst
næstkomandi. Þrátt fyrir ungan aldur á Elísabet þegar
nokkur maraþon að baki og segir Reykjavíkurmaraþ-
onið ágætis undirbúning fyrir maraþonið í Berlín sem
hún ætlar að hlaupa í september.
„Glitnismaraþonið er góð æfing fyrir öll haustmaraþ-
onin,“ segir Elísabet. „Mér finnst alveg æðislegt hvað
það er orðið umfangsmikið. Að sífellt fleiri séu að upp-
götva það og hvað þetta er góð hreyfing. Svo ekki sé
talað um þann frábæra félagsskap sem maður kemst í.“
Sjálf hefur Elísabet hlaupið um nokkurra ára skeið,
eða frá því að hún byrjaði að æfa líkamsrækt aðeins
sextán ára. Hún setti sér fljótlega það markmið að
hlaupa heilt maraþon, en hljóp þó áður tíu kílómetra
hlaup og hálfmaraþon eftir það. Þá taldi hún sig loks
tilbúna til að fara alla leið.
„Ég hef núna tvisvar sinnum hlaupið maraþonið í
New York,“ segir Elísabet. „Í fyrra og hittifyrra. Svo
hljóp ég í Kaupmannahöfn á síðasta ári. Þannig að ég
hef farið í þrjú maraþon á síðustu tveimur árum. Núna
er stefnan sett á Berlín í lok september.“
Að sögn Elísabetar er bráðnauðsynlegt að tileinka
sér ákveðinn lífsstíl ætli maður sér að ná langt í mar-
aþoni og þar er sjálfsagi ofarlega á baugi. „Lífsstíll
sem er heilbrigður og góður fyrir líkama og sál er
nauðsynlegur, enda kostirnir margir. Hlaupið hreinsar
hugann og er mjög streitulosandi. Ég virka betur í dag-
legu lífi ef ég æfi svona mikið. Maður nýtir dagana
miklu betur. Svo er alltaf gott að setja sér árangurs-
tengd markmið.“
Ef marka má Elísabetu dugir æfingin ein og sér þó
ekki til að fleyta manni áfram í maraþoni, heldur verður
einnig að passa upp á mataræðið. Alltof margi falli í þá
gryfju að borða annaðhvort of mikið, telji þeir sig hafa
eytt of mikilli orku, eða lítið. Það sé hins vegar mikil-
vægt að stilla mataræðið rétt.
„Ég mæli þó ekki með að fólk skrái sig í maraþon án
þess að hafa einhverja reynslu af að hlaupa,“ segir Elísa-
bet. „Til dæmis eins og hálfmaraþon eða tíu kílómetr-
ana. Fólk verður að sýna þolinmæði og setja sér lang-
tímamarkmið ætli það sér að ná langt.“
Fínn undirbúningur
VEXTIR FRÁ
AÐEINS
Miðað við myntkörfu 4,
Libor-vextir 20.6.2007.
3,7%
Frjálsi fjárfestingarbankinn lánar fyrirtækjum og einstaklingum til kaupa eða
endurfjármögnunar á atvinnuhúsnæði. Lánstími er allt að 30 árum og við kappkostum
að veita framúrskarandi þjónustu á hagstæðari kjörum. Komdu til okkar í Lágmúla 6,
hringdu í 540 5000 eða sendu póst á frjalsi@frjalsi.is til að kynna þér málið nánar.
Finndu þér stað
Atvinnuhúsnæðislán með lægri lántökukostnaði
F
í
t
o
n
/
S
Í
A