Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.08.2007, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 07.08.2007, Qupperneq 28
Þegar ég var 16 ára fór ég í heimavistarskóla á Akureyri og kynnt- ist þá krökkum frá ýmsum landshlutum. Þar heyrði ég í fyrsta skipti talað um Reykja- vík sem Bæinn með stórum staf og greini. Fyrir mér var Akureyri Bærinn og ég stóð í þeirri meiningu að þegar fólk talaði um að fara í Bæinn væri það að tala um þann bæ sem væri næstur þeim. Þannig hélt ég að íbúar austur á Héraði færu til Egilsstaða þegar þeir færu í bæinn og Árnesingar færu á Selfoss. Þar- na á heimavistinni komst ég að því að svo var ekki. Það vorum bara við Norðlendingarnir sem vorum svona stórlátir. Þegar við fórum til Reykjavíkur fórum við suður – ekki í bæinn. Þetta tal um Bæinn olli stundum misskilningi á heimavistinni. Einu sinni hringdi síminn á herberginu mínu og spurt var eftir herbergis- félaga mínum. Ég svaraði sem satt var að hún hefði skroppið í bæinn en kæmi aftur fyrir kvöldmat. Eftir langa þögn lýsti viðmælandinn undr- un sinni á því hvað stúlkan væri að þvælast til Reykjavíkur svona í miðri viku. Umræddur viðmælandi var einn þeirra sem halda ekki aðeins að Reykjavík sé eini bærinn með greini heldur líka að allt sem ekki fellur und- ir bæinn sé eitthvert óráðið svæði sem heitir einu nafni úti á landi. Mér leiðist þetta tal um landsbyggð- ina og höfuðborgarsvæðið sem tvo ólíka póla. Þessi einfalda skipt- ing í okkur og hina er hundleiðin- leg. Hér áður fyrr voru menn frá Egilsstöðum, Grundarfirði, Breiðdal og Barðaströnd. Nú hefur málið verið einfaldað og allt þetta pakk er einfaldlega utan af landi. „Hei, þekkir þú ekki hann Böðv- ar?“ sagði náungi á bar við mig um daginn þegar í ljós kom að ég var ekki Reykvíkingur. „Hvaða Böðvar?“ spurði ég. „Hann er frá Ísafirði,“ út- skýrði viðmælandinn. Ég svaraði neitandi og bætti því við að sjálf væri ég að norðan og hefði bara einu sinni komið til Ísafjarðar á ævinni. „Já, ég hélt bara að þú þekktir hann kannski af því hann er utan af landi eins og þú,“ var svarað. Rhodos - síðustu sætin 11. ágúst UPPSELT 18. ágúst örfá sæti frá kr. 59.990 25. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 Fuerteventura - síðustu sætin 7. ágúst UPPSELT 14. ágúst 19 sæti frá kr. 39.990 21. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 34.990 Montreal - Kanada - síðustu sætin 9. ágúst UPPSELT 16. ágúst 19 sæti frá kr. 29.990 23. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 30. ágúst örfá sæti frá kr. 29.990 Mallorca - síðustu sætin 10. ágúst UPPSELT 17. ágúst örfá sæti - 2 vikur frá kr. 44.990 24. ágúst nokkur sæti frá kr. 29.990 Costa del Sol - síðustu sætin 8. ágúst UPPSELT 15. ágúst örfá sæti frá kr. 49.990 22. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Króatía - síðustu sætin 12. ágúst UPPSELT 19. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 26. ágúst örfá sæti frá kr. 39.990 Alicante - Benidorm - síðustu sætin 9. ágúst 6 sæti frá kr. 14.990 16. ágúst 11 sæti frá kr. 34.990 23. ágúst örfá sæti frá kr. 34.990 30. ágúst nokkur sæti frá kr. 39.990 Barcelona - síðustu sætin 3. ágúst UPPSELT 10. ágúst 6 sæti frá kr. 19.990 17. ágúst 14 sæti - vikuferð frá kr. 49.990 24. ágúst 16 sæti - vikuferð frá kr. 49.090

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.