Fréttablaðið - 07.08.2007, Síða 38
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
Kvikmyndagerðarkonan Dögg
Mósesdóttir ætlar að halda alþjóð-
lega stuttmynda- og tónlistar-
myndbandahátíð á Grundarfirði í
febrúar á næsta ári. „Upphaflega
hafði ég hugsað mér að hafa hátíð-
ina að sumri til, en svo sá ég að
yfir sumarið er svo mikið í gangi
úti um allt land,“ sagði Dögg, sem
nú er búsett í Barcelona. Hún
hyggst þó snúa aftur á heimaslóð-
ir tveimur mánuðum fyrir hátíð-
ina til að leggja lokahönd á verkið
og segir ekkert því til fyrirstöðu
að kvikmyndahátíð geti verið
haldin í eitt þúsund manna byggð-
arlagi.
„Bransinn þarf ekkert að vera
beintengdur höfuðborginni. Mig
langar að reyna að fá ferðamenn á
staðinn á þessum rólega tíma;
Íslendinga, erlenda ferðamenn og
þá sem taka þátt í hátíðinni. Svo er
Berlínarhátíðin helgina á eftir,
þannig að fólk getur tekið kvik-
myndahátíðarúnt,“ sagði hún
sposk.
Dögg stefnir á að gera hátíðina að
árlegum viðburði og vill í framtíð-
inni hafa fleiri kvikmyndir í fullri
lengd. Í vetur verður hins vegar
áherslan lögð á stuttmyndir og
tónlistarmyndbönd, ásamt einni
íslenskri kvikmynd í fullri lengd.
„Það hefur aldrei verið alþjóðleg
keppni í stuttmyndum og tónlist-
armyndböndum á Íslandi áður,“
sagði Dögg, sem hefur sjálf gert
nokkur tónlistarmyndbönd og
hefur mikinn áhuga á listforminu.
„Þau geta verið mjög skapandi og
skemmtileg. Og fyrir vikið verður
þetta svolítið tónlistarvæn kvik-
myndahátíð. Það væri til dæmis
mjög gaman ef hljómsveitirnar
fylgdu myndböndunum sínum á
hátíðina og héldu tónleika,“ bætti
hún við.
Í alþjóðlegri dómnefnd á Northern-
wave verður meðal annars Luis
Aller, kennari Daggar þegar hún
nam kvikmyndagerð í Barcelona,
gagnrýnandi og kvikmynda-
gerðarmaður. Hún hefur þar að
auki verið í viðræðum við Javier
Aguirresarobe, kvikmyndatöku-
mann sem er nú við tökur á nýj-
ustu mynd Woodys Allen, og fjór-
faldan óskarsverðlaunahafa í
hljóðvinnslu. Dögg vonast til að
dómararnir, sem og leikstjóri
íslensku myndarinnar, geti miðlað
af reynslu sinni til hátíðargesta.
„Mig langar til að geta haft mál-
fundi, eða eitthvað í þá átt, þar
sem ungir og óreyndir kvikmynda-
gerðarmenn geta fengið smá leið-
sögn,“ sagði hún.
Northernwave stendur yfir frá
31. janúar til 3. febrúar 2008.
Heimasíðan northernwave.is, er
enn í vinnslu, en nánari upplýsing-
ar verða birtar þar á næstu
vikum.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Ísfirðingurinn Fjölnir Baldursson
kom flestum bæjarbúum í opna
skjöldu á dögunum þegar hann
ákvað að leggja nýtt, iðagrænt
gervigras á hundrað fermetra
svæði á lóðinni sinni.
„Maður átti í vandamálum með
garðinn. Það var svo mikil órækt
þegar ég flutti að það lá beint við
að gera þetta, því mig langaði að
fá sléttan garð og grænan,“ segir
Fjölnir, sem borgaði um eina millj-
ón bæði fyrir grasið og fleira sem
þurfti að laga í garðinum. „Þetta
er ekki það mikið verð ef maður
hugsar um endingu og annað, ef
maður hugsar þrjátíu ár fram í
tímann. Það þyrfti fimm eða sex
sláttuvélar til að vinna í venjulegu
grasi öll þessi ár en þetta er alveg
viðhaldsfrítt nema að á fimm ára
fresti þarf ég að fara yfir gervi-
grasið með sérstakri þvottavél.“
Fjölnir, sem starfar sem kokkur,
viðurkennir að vera langt frá því
að vera með græna fingur enda
myndi vafalítið engum skógrækt-
arunnanda láta sér detta annað
eins í hug. „Ef það gengur ekki
fyrir rafmagni þá kann ég ekki á
það.“
Með gervigras í garðinum
„Ég er aðallega að hlusta á
svona rólega alternative tónlist.
Air, Charlotte Gainsbourg, Mass-
ive Attack, Boards of Canada,
Beck, Goldfrapp, Elbow, Nou-
velle Vague og fleira. Klaxons er
líka í miklu uppáhaldi hjá mér
núna.“
Fyrirsætan Svala Lind Þorvalds-
dóttir hefur dvalist í Barcelona í
sumar á vegum Eskimo og geng-
ið ansi vel að koma sér á kortið í
fyrirsætubransanum. Hún hefur
setið fyrir í tveimur myndaþátt-
um, fyrir blöðin Boulevard í Bar-
celona og Thelmu í Madrid, ásamt
ýmsum öðrum auglýsingum. Slík-
ir myndaþættir eru með eftir-
sóknarverðustu verkefnum í fyr-
irsætuheiminum, og að sðgn
Svölu þar að auki með þeim
skemmtilegri. „Ég held að þetta
þyki bara gott, svo er mér að
minnsta kosti sagt,“ sagði Svala
Lind hógvær. „Ég er búin að vera
hérna síðan í maí, en byrjaði ekki
fyrr en í júní hjá View, sem er
spænsk skrifstofa. Verkefnin eru
núna svona um tíu,“ útskýrði
hún.
Fyrirsætuferill Svölu Lindar
er þó ansi stuttur. „Ég byrjaði
bara á þessu ári hjá Eskimo. Ég
var til dæmis í auglýsingu fyrir
Símann og svo sat ég fyrir í
finnskum sportvörubæklingi,“
sagði hún og hló við. Flest verk-
efnin hefur hún þó fengið í Bar-
celona, en þar á meðal eru aug-
lýsingar fyrir vöruhúsið þekkta
El Corte Inglés, og auglýsing
fyrir spænska Vogue.
Dvöl Svölu Lindar á Spáni er
senn á enda, en hún snýr aftur
heim 11. ágúst. Þá bíður skóla-
bekkurinn, en Svala Lind hefur í
haust þriðja námsár sitt við
Menntaskólann í Hamrahlíð.
„Mér var reyndar sagt að ég ætti
möguleika á að fljúga hingað til
að vinna, ef ég fæ verkefni, en
það verður bara að koma í ljós.
Ég verð að minnsta kosti heima í
vetur,“ sagði Svala Lind.
Fyrirsæta á framabraut í Barcelona