Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 6
Ber Sturla Böðvarsson ábyrgð-
ina í Grímseyjarferjumálinu?
Ertu fylgjandi bílastæðagjöld-
um við skóla í Reykjavíkurborg?
„Ísland er með fyrir-
vara við þessi ákvæði. Og að því
leytinu til erum við ekki að brjóta
gegn neinu sem við höfum skuld-
bundið okkur til,“ segir Björg
Thorarensen, lagaprófessor við
Háskóla Íslands.
Fimmtán ára síbrotapiltur, sem
í fyrradag var dæmdur í tveggja
og hálfs árs fangelsi fyrir ýmis
afbrot, þar á meðal lífshættulega
líkamsárás á leigubílstjóra, situr
nú í gæsluvarðhaldi í Hegningar-
húsinu við Skólavörðustíg. Hann
mun afplána dóminn á Kvía-
bryggju.
Í tveimur helstu helstu mann-
réttindasamningum Sameinuðu
þjóðanna kemur fram að ófull-
veðja afbrotamenn megi ekki
afplána refsivist með fullorðnum.
Hér á landi eru þeir ófullveðja
sem ekki hafa náð átján ára aldri.
Björg segir Íslendinga hafa sett
fyrirvara við báða þessa samn-
inga hvað þetta málefni varðar.
„Sameinuðu þjóðirnar geta ekki
gert annað en að hvetja okkur til
að aflétta fyrirvaranum og það
hafa þær gert.“
Björg segir rök íslenska ríkis-
ins fyrir fyrirvaranum vera þau
að hér á landi séu engin sérstök
unglingafangelsi eins og í
nágrannalöndunum. Hún bendir
á að litið sé á hvert og eitt tilvik
og það segi í lögum um refsifulln-
ustu að tekið skuli tillit til aldurs
við afplánun.
Auk árásinnar á leigubílstjór-
ann var pilturinn dæmdur fyrir
fíkniefnalagabrot, þjófnaði, inn-
brot og umferðarlagabrot. Piltur-
inn hlaut tuttugu mánaða óskil-
orðsbundinn fangelsisdóm í
síðasta mánuði fyrir ýmis afbrot,
og var það þyngsti dómur sem
svo ungur maður hefur hlotið
hérlendis.
Árásin á leigubílstjórann átti sér
stað aðfaranótt föstudagsins 27.
apríl sl. þegar pilturinn tók sér far
með leigubíl, í félagi við annan
pilt. Báðir voru þeir peningalausir.
Þegar bíllinn hafði numið staðar í
Stakkholti í Reykjavík sló sá
fimmtán ára leigubílstjórann
tvisvar í höfuðið með klaufhamri.
Maðurinn höfuðkúpubrotnaði og
hlaut fleiri áverka. Haft er eftir
lækni að ekki þurfi að koma á óvart
að maðurinn finni til minnisskerð-
ingar eftir atlöguna. Þá kemur fram
að maðurinn treysti sér ekki lengur
til að aka með farþega.
Pilturinn neitaði að hafa ætlað
að ræna leigubílstjórann. Hann
neitaði jafnframt að hafa krafið
hann um peninga. Dómurinn taldi
hins vegar sannað með skýrslum
vitna að pilturinn hefði verið í
ránshugleiðingum dagana fyrir
atburðinn. Í dómsniðurstöðu kom
fram að árás piltsins hefði verið
stórhættuleg og „hefði hæglega
getað leitt til bana“.
Pilturinn hafði áður hlotið þrjá
refsidóma. Hann hlaut 20 mánaða
óskilorðsbundið fangelsi í júlí
fyrir fjölda afbrota, meðal annars
þrjú vopnuð rán og fyrir að hafa
reynt að stela hraðbanka. Þá hefur
hann hlotið tvo skilorðsbundna
dóma á árinu. Refsing hans nú
kom til hegningarauka. Hann
hafði setið í gæsluvarðhaldi í 111
daga þegar dómurinn var kveðinn
upp, og dragast þeir frá refsing-
unni.
Unglingur afplánar
dóm á Kvíabryggju
Fimmtán ára síbrotadrengur mun afplána fangelsisdóm á Kvíabryggju innan
um fullorðna fanga. Það brýtur í bága við mannréttindasamninga SÞ en Íslend-
ingar hafa sett fyrirvara við þá vegna þess að hér er ekkert unglingafangelsi.
Eigendur chihuahua-
tíkur sem drepin var, af bull-
mastiff-tík, við Rauðavatn fyrr í
vikunni ætla að kæra drápið á
henni til lögreglu.
„Við vorum á göngu með Seru
Sól við Rauðavatn,“ segir Halldóra
Lind Guðlaugsdóttir, en systir
hennar Guðrún átti tíkina. „Þarna
voru fjórir írskir setter-hundar, en
bullmastiff-tíkin var á bak við þá,
þannig að við sáum hana ekki
strax. Allt í einu var hún komin,
stökk á Seru Sól og kramdi hana til
bana með kjaftinum. Þegar loks-
ins tókst að losa okkar tík frá hinni
datt hún niður dauð. Hún var með
brotin bein og henni fossblæddi.
Við fórum samt með hana til dýra-
læknis því við vildum ekki trúa
því að tíkin okkar væri dáin.“
Halldóra Lind segir að Sera Sól
hafi staðið sig vel á hundasýning-
um og því sé þetta mikill missir
fyrir stofninn. Það sé þó ekkert
miðað við þann missi sem fjöl-
skyldan hafi orðið fyrir. Systir
hennar hafi fengið Seru Sól í ferm-
ingargjöf fyrir þremur árum og
þær hefðu verið búnar að sofa á
sama kodda í þann tíma þegar
svona fór.
„Ég harma það mjög og er miður
mín yfir að þetta skyldi hafa átt
sér stað,“ segir Björn Ólafur Árna-
son eigandi bullmastiff-tíkurinn-
ar. „Vissulega er hugur minn hjá
eigendum chihuahua-tíkarinnar.
Ég mun draga minn lærdóm af
þessu hryllilega atviki. Svona
nokkuð hefur aldrei hent áður,
hvað varðar mína tík, og ég mun
sjá til þess að slíkt komi ekki fyrir
aftur.
Kennaralið Ísaksskóla er fullmannað
segir Edda Huld Sigurðardóttir skólastjóri hans.
„Hér eru allar stöður mannaðar; bæði stöður kenn-
ara, skólaliða og annarra. Það er enginn hörgull á
starfsfólki sem vill vinna hjá okkur,“ segir Edda Huld
og bætir því við aðspurð að yfirvöld skólans hafi
þurft að vísa fólki frá sem leitað hefur eftir vinnu.
Skólastjórinn segir að það sé mikið áhyggjuefni að
það vanti starfsfólk í grunnskólana í landinu. „Auð-
vitað setur þetta foreldra í klemmu því þeir vita ekki
hvað bíður barnanna þeirra. Sem betur fer er þetta
ástand sem við þekkjum ekki hérna í Ísaksskóla,“
segir Edda Huld.
Ein veigamikil breyting hefur verið gerð á starf-
semi Ísaksskóla frá því á síðasta ári að sögn Eddu
Huldar. „Við ætlum í fyrsta skipti að kenna nemend-
um í fjórða bekk: níu ára börnum. Þau geta þá lokið
yngsta skólastiginu hér hjá okkur. En hingað til
höfum við eingöngu kennt börnum frá fimm til átta
ára aldurs.“ Edda Huld segir að foreldrar barna í
skólanum hafi beðið um að þessi breyting yrði gerð í
mörg ár. „Nú geta börnin lokið samræmdum prófum
í íslensku og stærðfræði í níu ára bekk hér í skólan-
um og farið svo í aðra skóla.“
Allar stöður eru mannaðar
Þýskur dómstóll
ákvað í gær að gefa fyrrverandi
meðlim hryðjuverkasamtakanna
Rauðu herdeildarinnar, einnig
þekkt sem Baader-Meinhof,
skilorðslausn úr fangelsi.
Eva Haule, sem er 53 ára, hefur
afplánað 21 ár af lífstíðardómi
sem hún hlaut fyrir morð á
tvítugum bandarískum hermanni
og sprengingu í bandarískri
herstöð árið 1984. Tveir Banda-
ríkjamenn létust í sprengingunni
og 23 særðust.
Dómstóllinn sagði úrskurðinn
meðal annars byggja á samvinnu
hennar við að leysa upp samtökin
árið 1998.
Meðlim Baader-
Meinhof sleppt