Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 24
Sóknarfæri með breyttri sýn Áfundi leikskólaráðs á mið-vikudaginn var samþykkt til- laga frá Vinstri grænum sem markaði tímamót í ýmsum skiln- ingi. Í tillögunni fólust tilmæli um að nýta ákvæði kjarasamn- ings til tímabundinna greiðslna til að bregðast við tímabundnum aðstæðum á vinnumarkaði sem leiða af sér meira starfsálag. Á fundi Íþrótta- og tómstundaráðs í gær var svo samþykkt tillaga ráðsins um að nýta launaramm- ann með svipuðum hætti, mögu- lega með álagsgreiðslum til þess starfsfólks sem starfar á frí- stundaheimilum undir miklu álagi sömuleiðis. Var tillögunni vísað til meðferðar í samráðshópi borg- arstjóra um starfsmannaeklu í grunnskólum, leikskólum, frí- stundaheimilum og á velferðar- sviði. Á leikskólum Reykjavíkur er auk leikskólakennara fjöldi starfs- manna sem á aðild að samningum Reykjavíkurborgar við Eflingu og önnur stéttarfélög. Það má öllum vera ljóst að álagið á starfs- fólk leikskólanna er gríðarlegt við þær aðstæður sem nú er uppi og gildir þá einu í hvaða stéttarfé- lagi fólk er. Á umræddum fundi Leikskólaráðs var aðeins samn- ingur Félags leikskólakennara til umfjöllunar en má ljóst vera að í þeirri þverpólitísku samstöðu sem náðist á fundinum fólst við- urkenning á álaginu á allt starfs- fólk leikskólanna og vilji til að koma til móts við það með ein- hverjum þeim hætti sem rúmast innan launarammans. Því ber að fagna að borgaryfir- völd vilja koma til móts við sitt starfsfólk að þessu leyti og sér- staklega þeim kjarki sem kom fram á fundi leikskólaráðs þegar samþykkt var að kjaramálin væru tekin þar á dagskrá. Það er afar brýnt að stjórnmálamenn láti sig kjaramálin varða og átti sig á og viðurkenni þá staðreynd að þau verða ekki rofin úr samhengi við umræðu um þjónustu borgarinn- ar, faglega umræðu og aðra þætti sem ræddir eru á fundum fagr- áða. Starfsfólk borgarinnar þarf að búa við gott og stöðugt starfs- umhverfi til að geta rækt sitt starf og til að borgin geti verið stolt af þeirri þjónustu sem hún veitir ekki síst við börn og ung- menni. Á umræddum fundi leikskólaráðs var sömuleiðis samþykkt tillaga um að kalla eftir upplýsingum um allar launagreiðslur borgarinnar, samkvæmt taxta, yfirvinnu- greiðslur og aðrar greiðslur skipt eftir sviðum. Það er afar brýnt að allar upplýsingar um launamál séu hiklaust uppi á borðinu því að á grundvelli upplýsinga er unnt að ræða málin, gera tillögur til úrbóta og horfa til framtíðar. Laun eru einn stærsti útgjaldalið- ur borgarinnar og þáttur sem stjórnmálamenn eiga að láta sig varða, hvernig þeim er skipt með tilliti til starfsstétta, kynja og svo framvegis. Það sóknarfæri sem myndaðist á fundi leikskólaráðs fyrir alla sem vilja betri kjör, betri borg og betri þjónustu eigum við öll að nýta okkur, stéttarfélög, stjórnmála- menn og borgarbúar allir. Með opinni kjaraumræðu með fullri þátttöku stjórnmálanna komumst við lengra fram á veginn í þágu barnanna og framtíðarinnar. Helga Björg er full- trúi VG í leikskólaráði og Svandís borgarfulltrúi VG. Sú staða sem upp er komin vegna mann- eklu bæði í leikskólum og grunnskólum borgarinn- ar kallar á tafarlausar aðgerðir borgaryfirvalda. Nauðsynlegt er að halda góðri samstöðu meðal þeirra starfsmanna sem þegar eru við störf og tryggja nauðsynlega þjónustu. Vill- andi umræða hefur verið í fjölmiðl- um í kjölfar samþykktar Leikskóla- ráðs um álagsgreiðslur vegna manneklu á leikskólum borgarinn- ar. Ég, sem talsmaður Samfylking- arinnar í málefnum leikskóla, vil taka fram að ekki er minnst á það í samþykkt leikskólaráðs að einungis þeir leikskólar sem hafi úr afgangi á fjárhagsáætlun að spila geti nýtt sér álagsgreiðslurnar. Sú túlkun er höfð eftir Ragnhildi Erlu Bjarnadóttur, sviðstjóra leikskólasviðs Reykja- víkur á Mbl.is að fundinum loknum. Það hlýtur að vera það álag sem skapast á leikskóla sem ákvarðar álagsgreiðsl- urnar, ekki hvort við- komandi skóli á rekstr- arafgang eða ekki. Það að halda úti fullri starf- semi leikskóla í viðvar- andi manneklu er mjög kostnaðarsamt, til dæmis vegna yfirvinnu og meiri afleysinga. Því er ekkert samasem merki milli þess að leikskóli eigi við mann- eklu að stríða og að hann eigi afgang af fjárveitingu. Á leikskólum Reykjavíkur er hátt í 60% starfsfólks ekki með leikskólakennaramenntun. Það starfsfólk á stóran þátt í því að að halda úti frábæru starfi leikskól- anna og er ómetanlegt. Því starfs- fólki verður einnig að umbuna á álagstímum en Samfylkingin fylgdi þessu eftir með fyrirspurn í borg- arráði daginn eftir fund leikskóla- ráðs. Í stjórn ÍTR á föstudag lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram tillögu sem samþykkt var sam- hljóða, um að því verði beint til starfshóps borgarstjóra um starfs- mannaeklu í skólum og frístunda- heimilum að kannaður verði sá möguleiki að greiða námsmönnum við störf á frístundaheimilum námsstyrki. Greiðslur námsstyrkja gætu verið í lok vetrar, þegar starfsmaður hefur bæði unnið vet- urinn á frístundaheimilinu og lokið námsönn. Með þessu væri bæði farin ný og uppbyggileg leið í að laða að starfsfólk auk þess sem stöðugleiki í starfi frístundaheimil- anna yfir veturinn væri enn frekar tryggður. Hugsanlegt er að nýta þessa leið einnig á leikskólunum og laða þannig námsmenn í hlutastörf t.d. í svokallaðar skilastöður seinni- part dags. Samfylkingin lítur svo á að skólar, hvort sem er leik- eða grunnskólar séu grunnstoðir sam- félagsins. Borgaryfirvöldum ber að leysa þann brýna vanda sem nú hefur skapast með öllum tiltækum ráðum, í sátt við þá sem þar starfa og án þess að þjónustuskerðing bitni á börnunum í borginni. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingar.. Það var í maí s.l. að nokkrir íbúar Nónhæðar komust að því fyrir tilviljun að innan tíðar stæði til að hefja umfangs- miklar byggingar- framkvæmdir á lóð- unum Arnarsmára 32 og 36 (efst á Nón- hæð). Skipulagsstjóri Kópavogs hafði þá unnið að því verkefni um nokkurra ára skeið, í samstarfi við tvo verktaka, að skipuleggja um 800 manna byggð á lóðunum. Samkvæmt núgildandi aðalskipu- lagi eru lóðirnar sem hér um ræðir annars vegar skilgreindar sem úti- vistar- og þjónustusvæði og hins- vegar sem verslunar- og útivistar- svæði. Skipulagsyfirvöld bæjarins verða því að leggja til breytingar á núgildandi aðalskipulagi til þess að hægt verði að koma þessum áætl- unum í framkvæmd. Eftir að allmargir íbúar höfðu komið skýrum skilaboðum á fram- færi til bæjarfulltrúa um andstöðu við þessar fyrirætlanir var haldinn kynningarfundur til þess að kynna framkomnar skipulagstillögur. Fund- urinn var haldinn seinnihluta júní, þegar margir íbúar voru í sumarfríi, en þrátt fyrir það var mæting íbúa einstaklega góð og skilaboð gegn þessum áformum voru mjög skýr. Íbúum Smárahverfis var gerð grein fyrir því að fyrirliggjandi tillögur yrðu ekki auglýstar með lögform- legum hætti fyrr en þeir hefðu gert við þær athugasemdir og þær end- urskoðaðar. Frestur til að skila inn athugasemdum var gefinn til 20. ágúst n.k. Þær athugasemdir sem íbúar eru nú að vinna að hafa í raun ekkert lögformlegt gildi þar sem þessi aðferð hjá bæjaryfirvöldum á sér ekki stoð í lögum eða reglugerð- um og þau þurfa ekki að taka tillit til þeirra. Það vakti furðu undirritaðs á þessum fundi að Kópavogsbær hafði ekki gert neinar áætlanir um hvernig hægt væri að leysa þau vandamál sem augljóslega koma upp þegar mikil viðbótarbyggð er skipulögð í grónu hverfi. Hér á ég við að ekki lágu fyrir tillögur um lausn á t.d. umferðarmálum, umferðarhávaða og loft- mengun. Verktakar lögðu fram gögn þar um þótt þau væru í raun ekki full- nægjandi en þar var þó farið yfir þessi mál. Full- trúar Kópavogsbæjar voru tvísaga þegar kom að því að ræða um umferðarleiðir á svæð- inu. Í öðru orðinu var sagt að á Arn- arsmára 36 ætti að vera húsagata en í hinu var sagt að sú gata myndi nýt- ast sem tengibraut á milli Arnar- smára og Smárahvammsvegar til að létta á umferð um Arnarsmára. Það vita þeir sem að umferðarmálum vinna að slíkt gengur ekki! Það er óskiljanlegt að bæjaryfir- völdum skuli leyfast að leggja fram deiliskipulagstillögur um þéttingu núverandi byggðar án þess að gera grein fyrir því hvernig ýmis mál s. s. umferðar- og mengunarmál verði leyst þannig að núverandi íbúar geti við unað. Ég tel nauðsynlegt að skipulags- og byggingarlög og reglugerðir verði að kveða á um það að öll slík mál séu leyst áður en komið geti til álita að leggja deili- skipulagstillögur fram. Varnarlína íbúa í Smárahverfi ofan Fífuhvammsvegar er að tryggja að núgildandi aðalskipulag svæðisins gildi. Án breytinga á því hafa bæj- aryfirvöld ekki möguleika á að gera breytingar á deiliskipulagi svæðis- ins. Nónhæð er mjög verðmætt úti- vistarsvæði sem gæti tengt saman eða myndað eins konar grænan trefil sem næði frá vesturbæ Kópa- vogs um Nónhæð og Hnoðraholt upp að Vatnsenda. Eins og er virðist útivistarfólk ekki eiga annarra kosta völ en að fara um gatnamót Fífuhvammsvegar og Reykjanes- brautar. Þar er nú verið að hefja byggingu umferðarmannvirkja yfir Fífuhvammsveg og umferð þar mun aukast verulega í framtíðinni sem leiðir til þess að það verður lítt spennandi göngusvæði. Íbúasamtök í Smárahverfi ofan Fífuhvammsvegar voru stofnuð þann 9. ágúst s.l. og er markmið þeirra að standa vörð um gildandi aðalskipulag svæðisins á Nónhæð með hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Samtökin standa nú að söfnun und- irskrifta til að mótmæla fyrirhug- uðum breytingum á gildandi aðal- skipulagi. Við hvetjum alla þá sem láta málið sig varða til að skrifa sig á listann sem síðan verður afhentur bæjarstjóra Kópavogs mánudaginn 20. ágúst n.k. Heimasíða samtak- anna er: www.orion.is/non. Höfundur er formaður íbúasam- takanna Betri Nónhæð. Stöndum vörð um Nónhæð Mannekla í leik- og grunnskólum Fjöldi þeirra sem er 50 ára og eldri fer vaxandi í þjóðfélaginu. Fleiri og fleiri gera sér grein fyrir hversu mikilvægt það er að halda góðri heilsu, bæði til að geta unnið eins lengi og unnt er og ekki síður til að bæta lífi við árin. Það er aldrei of seint að byrja og fjöldi rannsókna á hreyfingu og lífsstíl fólks eldra en 50 ára benda til þess að það margborgar sig að huga vel að heilsunni. Þeir sem það gera lifa bæði lengur og lífsgæði þeirra aukast. Hvað veist þú um þjálfun eldra fólks? Mánudaginn 20. ágúst og þriðjudaginn 21. ágúst 2007 kemur hingað til lands á vegum World Class kanadískur sérfræðingur, Mary Beavan-Kuipers, sem hefur sérhæft sig í þjálfun og lífsstíl eldri aldurshópa. Hún mun sjá um námskeið, bæði fræðslu og verklegar æfingar, fyrir allt áhugafólk um þjálfun eldri aldurshópa í World Class í Laugum. Einnig mun Janus Guðlaugsson M.Ed íþróttafræðingur og doktorsnemi kynna niðurstöður meistararannsóknar sinnar 2005 og eftirfylgnirannsóknar á eldri aldurhópum á Íslandi sem gerð var tæpum tveimur árum síðar (2006) á sama hópi. Mjög spennandi námskeið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, íþróttakennara, einkaþjálfara og áhugafólk um fólk og heilsu. Námskeiðsgjald kr. 14.500. Afsláttur veittur fyrir hópa Skráning er hafin í afgreiðslu World Class í Laugum, í síma 553-0000 og hjá Gígju Þórðardóttur – gigja@worldclass.is Dagskrá: 20. ágúst kl: 17.30-22 • 21. ágúst kl: 17.30-21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.