Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 44
hús&heimili Einn af þeim hlutum sem eru Tinnu Jóhannsdóttur, eiganda Kaffifélagsins, kærir er lítill steinn sem varð á vegi fjölskyld- unnar þar sem hún ók hringinn í kringum landið með viðkomu í Lóni í Austur-Skaftafellssýslu, en í dag skipar sá steinn sérstakan sess í lífi þeirra. „Strákurinn minn opnaði þar bíldyrnar, leit niður og sá þetta andlit horfa á sig. Okkur þótti þetta skemmtilegt og fyndið, stungum steininum í hanskahólf- ið og hugsuðum ekki mikið um hann eftir það. Svo gerist það undarlega með þennan stein að hann fer á flakk um húsið og jafn- vel út úr því og alltaf þegar við héldum að hann væri týndur þá dúkkaði hann upp aftur,“ segir Tinna og hlær. „Þá kom hann upp úr tösku, fannst einhvers staðar undir ofni, á gólfinu í bílnum og hingað og þangað. Einhvern tíma hélt ég að hann hefði dottið út um gluggann en þá fannst hann aftur á und- arlegasta stað... þessi steinn vill bara ekki fara frá okkur,“ segir hún og bætir því við að stein- ninn sé agnarsmár. „Hann er ekki nema rétt rúmur sentimetri á hæð svo þetta er mjög sérstakt allt saman,“ segir hún. Í dag hefur steinninn góði feng- ið sinn fasta stað í gluggakistu á heimilinu. „Við lítum bara á þennan litla stein sem eins konar verndarengil núna og því fær hann að sitja í gluggakistunni og horfa yfir stof- una,“ segir Tinna að lokum. margret@frettabladid.is Verndarengill úr steini Tinna Jóhannsdóttir, eigandi Kaffifélagsins við Skólavörðustíg, segist fremur vera háð kaffi en efnislegum hlutum í lífinu. Yfirleitt eru það þó þeir hlutir sem eiga sér skemmtilega sögu sem eru henni einhvers virði, eins og litli steinengillinn sem neitar að hverfa. Þessa skemmtilegu gosdrykkjarflösku fann Tinna þegar hún fór sem barn í fjöruferð með ömmu sinni. Flaskan er sandblásin öðrum megin og munstruð á hinni hliðinni en í dag notar Tinna flöskuna undir vatn. Tinna Jóhannsdóttir segir það undan- tekningu að hún bindist efnislegum hlutum tilfinningaböndum, en kaffi er hún öllu háðari. LYKLAHÚS koma að mjög góðum notum auk þess sem þau hafa fagurfræðilegt gildi í forstofunni, eldhúsinu eða á ganginum. Lyklar eiga það til að týnast en þegar þeir eiga heima í eigin húsi ætti ekki að vera neitt mál að muna hvar lyklarnir að sumarbústaðn- um eða geymslunni eru þegar á þarf að halda. Hvíta lyklahúsið er fallega útskorið og fæst í Unika á 4.380 krónur. Svarta húsið er úr við og gleri og fæst í Rúmfatalagernum á 990 krónur. Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók þessa mynd á heimili Jóhönnu Kristjónsdóttur rithöfundar. Útgáfu- félag: 365 - prentmiðlar, Skaftahlíð 25, 105 Reykjavík, sími: 550-5000 Ritstjórar: Kristín Eva Þórhallsdóttir kristineva@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@ frettabladid.is. Auglýsingar: Ámundi Ámundason og Ásta Bjartmarsdóttir s. 5175724 Útlitshönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is. skipulag Lyklahús úr við og gleri. Rúmfatalagerinn 990 krónur. Fallegt útskorið lyklahús frá Unika 4.380 krónur. Þessi rúmlega eins sentimetra hái „vernd- arengill“ neitar að láta sig hverfa úr lífi Tinnu og fjölskyldu hennar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI SÖMU FÆTUR, MISMUNANDI BÚKUR Þessa skemmti- legu skápa sem allir eru mjög mismunandi en eiga þó fæturna sam- eiginlega má finna á vefsíðunni www.interiorinternet.com. Á síð- unni má leita eftir húsgögnum á nokkra vegu. Eftir hönnunarstíl, líkt og bóhem, sveitastíl og hátísku, og húsgagnagerð, eins og stólum, sófum og legubekkjum. Þar má finna húsgögn eftir marga þekkta hönnuði en verslunin sérhæfir sig í þjónustu við innanhúshönnuði og arkitekta. Á síðunni má finna ótrúlegt magn mynda af húsgögnum í öllum stílum, allt frá art deco til módernisma. GRAND PRIX heitir stóll eftir hinn kunna skandinavíska hönnuð Arne Jacobsen. Ástæðan fyrir nafninu er sú að stóll- inn fékk Grand prix-verðlaunin á hönnunarsýningu í Mílanó árið 1957. Stólinn hannaði Jacobsen árið 1955 fyrir fyrirtækið Fritz Hansen. Hann var upphaflega allur úr tré (einnig fæturnir) en var síðar framleiddur með stálfætur. Stóllinn er ekki framleidd- ur lengur. hönnun 18. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.