Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 37
Ólafur Rögnvaldsson veðurfræðingur ekur um á
athyglisverðum bíl sem hann hefur látið breyta
eftir sínu höfði.
Bíllinn hans Ólafs er Dodge Magnum RT og var
keyptur nýr í júní í fyrra. Þegar kíkt er á skottið sést
þar bara hrútur sem er merki Dodge. „Við fjarlægð-
um allar merkingar aftan af honum nema Dodge-
merkið. Óþarfi að vera með heila bók þar,“ segir
Ólafur þegar haft er orð á þessu atriði.
„Ég var ekki allskostar ánægður með bílinn þegar
ég fékk hann svo ég flutti inn aukahluti frá Banda-
ríkjunum og fékk Sveinbjörn Guðmundsson hjá
Bílmálningu ehf. í Hafnarfirði til að hjálpa mér að
breyta honum. Það tók okkur sennilega um sex
mánuði.“
Ólafur kveðst hafa byrjað á að setja nýjar stífur
undir bílinn bæði að framan og aftan. „Dodginn var
mjög amerískur og dúaði í fimm mínútur eftir að
farið var yfir hraðahindranirnar,“ segir hann og
heldur áfram. „Upphaflega var hann silfurgrár en
Sveinbjörn sprautaði allan efri hlutann svartan
ásamt dökkrauðri rönd á litamótunum. Ennfremur
var bíllinn heilglæraður til að lágmarka hnökra á
litamótum. Að auki voru settar öflugri bremsur að
framan og nýtt húdd sem beinir loftinu inn í loftinn-
tak vélarinnar, sem líka var endurnýjað. Loks voru
settar í hann flækjur og sverara púst til að auka
aflið, en pústið var sérsmíðað hjá BJB í Hafnarfirði.
Til að kóróna allt saman voru settar undir hann 22“
svartkrómaðar felgur ásamt endurforritun á akst-
urstölvu og samlitaðir bakkskynjarar.“
Hver skyldi svo hestaflafjöldi farartækisins vera
að loknum aðgerðunum? „Varlega áætlað bætti bíll-
inn við sig um 25 hestöflum en óbreytt er vélin skráð
340 hestöfl. Við vitum hins vegar ekki hverju hann
bætti við sig í togi.“ Ólafur hlær þegar hann er spurð-
ur hvort hann hafi eitthvað við allan þennan kraft að
gera og svarar: „Það er mjög mikilvægt að komast
fljótt upp í löglegan hraða á milli ljósa!“
Bara Dodge-merkið uppiLangar þig að syngja?Karlakór Reykjavíkur getur alltaf bætt við sig góðum söngmönnum og nú í haust verða
haldin raddpróf fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt. Prófið er ekki flókið en prófað er
raddsvið og tónheyrn. Kunnátta í tónlist og nótnalestri er kostur en alls ekki skilyrði.
Ef þú hefur áhuga á að koma í raddpróf skaltu hafa samband með því að senda okkur
línu í netfangið kor@karlakorreykjavikur.is fyrir 31. ágúst næstkomandi.
Verkefni framundan
Karlakórinn mun fara til Færeyja fyrstu helgina í desember og heimsækja Tórshavnar
Manskór og syngja jólatónleika bæði í Þórshöfn og Klakksvík. Um miðjan desember
verða jólatónleikar Karlakórsins í Hallgrímskirkju samkvæmt venju. Eftir áramót snýr
kórinn sér að fullum krafti að því að æfa fyrir 82. vortónleika sína sem haldnir verða í
Langholtskirkju vorið 2008.
Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað
samfleytt síðan. Kórinn býður upp á krefjandi og skemmti-
leg viðfangsefni í tónlist og skemmtilegt félagsstarf í góðum
félagskap. Kórinn fer til útlanda í söngferðir að jafnaði
annað til þriðja hvert ár auk þess að halda tónleika innan-
lands. Fastir punktar í starfseminni eru jólatónleikar í
Hallgrímskirkju í desember og tónleikar í Langholtskirkju
á vorin. Kórinn æfir tvisvar í viku, tvo tíma í senn, og fara
æfingar fram í húsnæði kórsins á Grensásvegi 13
Karlakór Reykjavíkur
Grensásvegi 13, Reykjavík
Pósthólf 8006, 128 Reykjavík
www.KarlakorReykjavikur.is
Ferðamannabólusetningar
og ráðgjöf
tímapantanir í síma: 535-7700
Læknasetrið Mjódd, Þönglabakka 1
www.ferdavernd.is ferdavernd@ferdavernd.is
ferðavernd
Haustferðirnar vinsælu til St. John’s á Nýfundnalandi
17. - 21. nóvember í 4 nætur og 21. - 26. nóvember í 5 nætur
Beint flug aðeins 3 - 3,5 klst. með brottför síðdegis kl.17:00
Bjóðum einnig dvöl allan tímann í 9 nætur
St. John’s höfuðborg Nýfundnalands austast í Kanada er áhugaverð og ljúf borg
heim að sækja eins og ótalmargir þekkja úr ferðum okkar þangað undanfarin 10 ár.
Einstaklega hagstætt að versla. Frábær gestrisni, góðir veitingastaðir, írsk
pöbbastemmning og fjölbreyttar skoðunarferðir. Gist á glæsilegum hótelum.
Jólaskrúðgangan er 25. nóvember og sjávarútvegssýningin 22. - 24. nóvember.
Dæmi um verð pr. mann miðað við tvo í herbergi, með sköttum:
Holiday Inn, 4 nætur: kr. 62.800 og 5 nætur: kr. 65.600
Marriot, nýtt hótel, 4 nætur: kr. 67.400 og 5 nætur: kr. 71.100
Fairmont Newfoundland, 4 nætur: kr. 71.900 og 5 nætur: kr. 76.600
Bókið og staðfestið strax á ferðaskrifstofunni, Hesthálsi 10. Sími: 587 6000 - info@trex.is - www.trex.is
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið