Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 78

Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 78
Nú eru útsölurnar að líða undir lok og ný og freistandi föt að koma í búðirnar. Ég hef alltaf verið spenntari fyrir vetrartískunni en sumartískunni enda eru efnin og sniðin öll einhvern veginn gæðalegri og meira sexý en einhverjir kjólar sem maður notar þrisvar á ári. En hverjar eru helstu breytingarnar í tískunni fyrir komandi vetur? Fyrst má nefna að svart er enn einu sinni komið aftur, í alls konar efnum, allt frá leðri og glansandi latex-líki upp í fínlegar siffonspjarir. Prófaðu þig áfram og blandaðu saman mismunandi áferðum. Annað sem kemur sterkt inn er að klæða sig frá toppi til táar í sama áberandi litnum: sem sé kjóll, sokkabuxur og skór í sama litatóni og þá sérstaklega fjólubláu, sterkbleiku eða karrígulu. Mínípilsin eru, (því miður að mínu mati) að hverfa og í stað þeirra kemur ný pilsasídd sem nær rétt niður fyrir hné. Að vísu afskaplega klæðilegt og elegant við háa hæla. Pilsdragtir koma sterkt inn, dálítið í anda fjórða eða fimmta áratugarins þó að mér finnist að það eigi að varast allt sem gæti nálgast flugfreyjulúkkið. Reyndar eru kvenlegheit og gamaldags glamúr málið í haust og því verðum við að kveðja stuttbuxurnar og lausu skokkana sem hafa einkennt tísku sumarsins. Snið eru aðsniðin og dálítið frúarleg, en buxur hins vegar hætta að vera níðþröngar og verða efnismeiri í anda leikkonunnar Katherine Hepburn. Balenciaga kom reiðbuxum aftur á tískukortið sem hann setti saman með afskaplega töff hermannajökkum og klútum í einhvers konar tíbetskum stíl. Þykkar prjónapeysur, risastórir treflar og jafnvel þykkir ullarsokkar verða einnig ofarlega á tískukortinu og oft eru stórar og víðar peysur notaðar við sokkabuxur einar saman. Leður var í aðalhlutverki hjá ýmsum hönnuðum, meðal annars Burberry Prorsum og Hermés og „mótorhjólaskvísu“-útlitið ásamt svörtum eyeliner og derhúfu, eða háir leðurhanskar, leðurstígvél og leðurbelti sýndu ákveðin „ kinkí“ áhrif. Mittið verður áberandi eftir að hafa verið nærri ósýnilegt í sumar og belti eru breið og sitja í mittisstað, og alls ekki á mjöðmum. Skór halda áfram að vera ögn fríkaðir, með fylltum eða klossuðum hæl, og svo er lakk áfram mikið í tísku, bæði í skótaui, beltum og töskum. Ökklastígvél í ýmsum litum sáust víða á sýningunum og það er til dæmis mjög smart að fá sér þau í stíl við sokkabuxur og kjól í anda tískumerkisins Preen. En, í stuttu máli sagt, þá eigum við að hætta núna að klæða okkur eins og litlar stelpur í stuttum og þægilegum kjólum og í staðinn ættum við að uppgötva okkar innri dömu. Haustið nálgast Litir, leðurjakkar, dömuleg snið og ný pilsasídd. Anna Margrét Björnsson dregur saman helstu tískustraumana fyrir haust og vetur. 9.HVERVINNUR! SENDU SMS BTC FSM Á NÚMERlÐ 1900190 OG ÞÚ GÆTlR UNNlÐ! Ð! Vinningar eru 300 á DVD, DVD myndir og margt fleira. Vi nn in ga r v er ða a fh en di r h já BT S m ára lin d. K óp av og i. M eð þ ví a ð ta ka þ át t e rt u ko m in n í S M S kl úb b. 1 49 k r /s ke yt ið .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.