Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 97
Áhverju ári, yfirleitt um vorið eða í upphafi sumars, hvarflar
að mér að það gæti verið sniðugt að
stefna að því að hlaupa maraþon.
Nokkrum sinnum hef ég farið inn á
heimasíður um maraþonhlaup og
skoðað æfingaplön og föndrað í
þeirri sömu andrá í huganum við
þá mynd af sjálfum mér að ég
skokki hnarreistur með númer yfir
bringuna og derhúfu í litlum stutt-
buxum og hlýrabol í hinu árlega
Reykjavíkurmaraþoni í ágúst.
svo ná þessar hugrenningar
mínar aldrei mikið lengra. Eftir því
sem líður á sumarið verður hug-
myndin um hálfmaraþon alltaf
meira og meira aðlaðandi, en ein-
hvern veginn hef ég samt ekki fund-
ið mig almennilega í þeirri pælingu.
Hálfmaraþon? Til hvers? Er það
ekki bara eins og að taka hálft skref
að settu marki? Uppgjöf? Ósigur?
hefur því ætíð
orðið sú, og á því verður engin
breyting þetta árið, að ég hleyp
ekki neitt. Bæði er það, að æfinga-
plönum fyrir heilmaraþon hefur
aldrei almennilega verið ýtt í
framkvæmd og hins vegar hef ég
iðulega verið frekar lunkinn við
að finna mér ástæðu til þess að
geta því miður ekki tekið þátt í
skemmri vegalengdum. Alltaf eru
nefnilega ákveðnar líkur á því að
einhverjum takist að gabba mann
til þess að hlaupa 10 kílómetrana,
og ef ég hefði enga afsökun er allt
eins víst að ég myndi láta til leið-
ast. Það myndi hins vegar vera
enn meiri ósigur af mínum sjónar-
hóli heldur en hálfmaraþon, í ljósi
þess að takmarkið er jú maraþon
og ekkert minna.
háleita markmið um mar-
aþonhlaup og skortur á
framkvæmdum í þá veru hefur
þannig leitt til fullkominnar kyrr-
stöðu minnar að öllu leyti hvað
varðar þennan allsherjar hlaupa-
dag. Að þessu sinni hef ég óyggj-
andi afsökun til þess að láta alger-
lega hjá líða að hlaupa nokkurn
skapaðan hlut, því ég er nefnilega
staddur í Kasakstan. Mér er þess
vegna því miður alveg gjörsam-
lega fyrirmunað að draga fram
hlaupaskóna að þessu sinni.
er ekki að neita, að sú staðreynd
að mitt sálartetur virðist alltaf geta
komið því svo við með einhverju
móti – þó svo ekki hafi ég farið til
Kasakstan algerlega í þeim erinda-
gjörðum einum og sér – að koma því
svo við að ég geti því miður ekki
tekið þátt í þessum hlaupadegi á
nokkurn hátt, hefur leitt mig til
dálítillar sjálfsskoðunar.
verið að hlaup sé ekki
fyrir mig? Nú er ég til dæmis
þannig gerður, að ég á það til að fá
kjánahroll yfir hinum ólíklegustu
hlutum. Kannski finnst mér innst
inni kjánalegt að vera að hlaupa
eitthvert, án þess í raun að eiga
þangað nokkurt erindi. Svo kann
líka hitt að blunda undir niðri að
það er auðvitað staðreynd að fyrsti
maraþonhlauparinn Feidippídes –
hermaðurinn gríski sem hljóp með
tíðindin af ósigri Persa alla leið frá
borginni Maraþon til Aþenu – er
sagður hafa fallið niður dauður um
leið og hann hafði lokið hlaupi sínu.
Þessi íþrótt er því augljóslega stór-
hættuleg. Borat biður að heilsa.
Maraþon
Morgunmatur
frá kl. 9:00 - 11:00
mánudaga - laugardaga
195,-
BBQ kjúklingalæri
með kúskús og steiktu grænmeti
490,-
695,-
HELMER skúffueining á hjólum 28x43x69 cm
KASSETT DVD box m/loki 2 stk. 21x26x15 cm
1.490,-
1.190,-
Verum klár
KROBY borðlampi H48 cm
MOSES snúningsstóll
61x69x47 cm 5.990,-
JOHAN skrifborð m/hillueiningu
120x70x125 cm 9.950,-
LACK hillueining
35x38x190 cm 8.990,-
HELLUM motta
140x200 cm 7.990,-
KASSETT kassi m/loki
43x55x18 cm
HELMER skúffueining
á hjólum 28x43x69 cm 3.950,-
PJÄTTERYD mynd
Ø89 cm 6.990,-
MOTORP box m/loki
55x35x27 cm 1.890,-
VÄNNA spegill
40x120 cm 3.990,-
MOTORP tímaritabox
2 stk. 995,-
MOTORP rekki
f/skriffæri
995,-