Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 90

Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 90
 Kvennalið Grindavík- ur hefur samið við Joanna Skiba, bandarískan bakvörð af pólskum ættum sem hefur evrópskt vegabréf. Skiba hefur leikið með Bryant- skólanum undanfarin ár og var með 13,8 stig og 5,2 stoðsendingar að meðaltali á lokaári sínu. Hún er 22 ára gömul og 163 sm á hæð, er eldfljót og góður skotmaður. Skiba hefur búið í Bandaríkjun- um alla sína æfi og var meðal annars kosinn besti leikmaðurinn á Rhode Island þegar hún var í menntaskóla. Hún gegndi ennfremur stöðu fyrirliða hjá Bryant-háskólanum og kemur til með að vera í leiðtogahlutverki hjá Grindavíkurliðinu sem leitar nú að sterkum bandarískum fram- eða miðherja til þess að spila inni í teig. Joanna Skiba til Grindavíkur Ruud van Nistelrooy, framherji Real Madrid, hefur verið valinn í hollenska landsliðið á ný eftir að hafa verið úti í kuldanum frá því á HM í fyrra. Andað hefur köldu á milli þjálfarans Marcos van Basten og Nistelrooys síðustu mánuði en svo virðist sem að þeir hafi ákveðið að grafa stríðsöxina fyrir leikinn gegn Svisslendingum á miðvikudag. Nistelrooy var frábær fyrir Real Madrid í spænsku úrvals- deildinni á síðustu leiktíð og varð markahæsti leikmaður deildar- innar. Hann hefur skorað 28 mörk í 54 landsleikjum. Af öðrum leikmönnum hol- lenska liðsins má nefna Ryan Babel og Dirk Kuyt hjá Liverpool og Robin van Persie hjá Arsenal. Þá eru gömlu kempurnar Mario Melchiot, Gio van Bronckhorst og Clarence Seedorf allir í hópnum. Van Nistelrooy valinn á ný Riðlakeppni 3. deildar karla í knattspyrnu lýkur í dag en það er ljóst hvaða félög leika í úrslitakeppninni sem hefst laugardaginn 25. ágúst. Í A-riðli eru það Grótta og Hamar sem eru komin í úrslita- keppnina. Úr B-riðli hafa Víðir og BÍ/Bolungarvík tryggt sig áfram og úr C-riðli fara Tindastóll og Hvöt í úrslitakeppnina. Úr D-riðli eru það Huginn og Leiknir Fáskrúðsfirði sem fara áfram. Fimm lið fara upp úr 3. deildinni á þessu tímabili og er það vegna fjölgunar í landsdeild- unum. Þau fjögur lið sem bera sigurorð í viðureignunum í 8-liða úrslitum úrslitakeppninnar, þar sem leikið er heima og heiman, eru því komin upp í 2. deild. Tapliðin úr fyrstu umferðinni munu svo leika um fimmta sætið er gefur sæti í 2. deild að ári. Átta lið keppa um fimm sæti Landon Donovan, banda- ríski landsliðsmaðurinn og ein helsta stjarna bandarísku atvinnu- mannadeildarinnar, hefur fært sínum nýja liðsfélaga David Beck- ham fyrirliðaarmbandið sem hann hefur borið síðustu ár. Donovan er heillaður af þeim áhrifum sem Beckham hefur haft á LA Galaxy frá því hann kom í sumar og segir hann réttborinn fyrirliða liðsins. Beckham bar fyrirliðaarmband- ið í fyrsta sinn á miðvikudaginn þegar Galaxy vann 2-0 sigur á DC United. Beckham var í fyrsta sinn í byrjunarliði liðsins og skoraði annað markanna. Beckham segir að Donovan hafi komið upp að sér á æfingu fyrir leikinn og óskað eftir samtali. „Ég ætla ekki að segja ykkur allt sem fór okkar á milli því þetta var mjög persónu- legt en hann sagði að það yrði lið- inu mikil upplyfting ef ég yrði fyr- irliði. Ég var hrærður við að heyra þetta og lít á það sem mikinn heið- ur að taka við fyrirliðaarmband- inu,“ sagði Beckham. Donovan útskýrði einnig sína hlið á málinu. „Ég er ekki heimsk- ur. Beckham hefur verið fyrirliði Englands, sem er eitt besta lands- lið heims. Hann er frábær leik- maður og einn sá besti í þessari deild. Það er ekki sérlega mikil- vægt fyrir mig persónulega að vera fyrirliði því ég mun spila á nákvæmlega sama hátt og koma fram við félaga mína á sama hátt. Beckham er meiri leiðtogi og gerir allt til að vinna. Þannig leikmenn eiga að vera fyrirliðar.“ Bandaríski framherjinn bætti síðan við að það hefði verið unun að því að fylgjast með enska lands- liðsmanninum í leiknum gegn DC. „Ég er búinn að horfa á aukaspyrn- una sem hann skoraði úr nokkrum sinnum á myndbandi. Þvílík snilld sem þetta var,“ sagði hann. Beckham er réttborinn fyrirliði
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.