Fréttablaðið - 18.08.2007, Blaðsíða 76
Hljómsveitin Minä Rakastan Sinua
hefur gefið út sína fyrstu breið-
skífu, sem heitir Elvis, í höfuðið á
konungi rokksins. Á plötunni, sem
kemur út undir merkjum Smekk-
leysu, syngur hljómsveitin lög úr
sarpi Elvis Presley með það að
markmiði að blása lífi í þau á
nýjan leik. Sveitina skipa Didda
Jónsdóttir, Riina Finnsdóttir og
Kormákur Geirharðsson auk
bræðranna Ara og Þórs Eldon.
„Við spiluðum þetta Elvis-
prógramm fyrst á skemmtistaðn-
um Domo í febrúar á fjáröflunar-
tónleikum. Þá var Didda að safna
peningum til að leysa barnsföður
sinn úr haldi en hann sat í fangelsi
á Jamaíku. Það gekk alveg
frábærlega og við náðum karlinum
úr fangelsi. Síðan fórum við beint í
stúdíó og tókum efnið upp „live“
og það er platan sem er að koma út
núna,“ segir Þór Eldon.
„Við ákváðum að reyna að hafa
þetta eins hrátt og einfalt og það
var á tónleikunum. Við náðum fínu
sándi í stúdíóinu og létum bara
vaða. Ég veit ekki hvað við verðum
lengi með þetta Elvis-prógramm í
gangi en þetta er bara til að
skemmta okkur og gleðja okkur.
Við höfum aldrei hugsað um þetta
sem pöbbaband eða næturvinnu.“
Þór segist vera aðdáandi Elvis
eins og allir aðrir. „Þú getur ekki
unnið við tónlist eða hlustað á
tónlist og sleppt Elvis, það er ekki
hægt.“ Næstu tónleikar Minä
Rakastan Sinua verða í Norræna
húsinu 25. ágúst.
Vandamál steðja að norska
leikstjóranum Niels Gaup sem gerði
hina eftirminnilegu mynd
Leiðsögumanninn, með Helga
Skúlasyni. Hann er nú að ljúka við
stóra mynd, Kautokeino-uppreisnina,
og ætlaði að frumsýna í apríl en þá
varð frestun. Þá ætlaði hann að
frumsýna í ágúst en verður að fresta
og hefur verið tilkynnt að myndina
beri ekki fyrir augu áhorfenda fyrr en
í janúar á næsta ári, en hún verður
opnunarmynd á kvikmyndahátíðinni í
Tromsö 15. janúar og fer síðan í
almenna dreifingu í Noregi 18. janúar.
Það er Karl Júlíusson sem sér um
útlit myndarinnar sem gerist á nítjándu
öld og fjallar um stormasama sambúð
sama og norskra yfirvalda sem leiddi
til uppreisnar og voru tveir leiðtogar
uppreisnarmanna dæmdir til dauða og
hálshöggnir 1854. Er leikstjórinn
kominn af öðrum þeirra og því málið
skylt. Myndin kostaði 6,6 miljónir evra
og var að mestu tekin í Filmkamp-
kvikmyndaverinu í Malsvelf nærri
Tromsö. Það er því eðlilegt að myndin
verði frumsýnd þar. Hún er
samstarfsverkefni Rubicon Film & TV
in co-production og Borealis Film.
Þetta er fyrsta myndin sem er unnin í
verinu og voru margir þátttakendur
frá svæðinu þátttakaendur með einum
eða öðrum hætti í verkefninu. Leikarar
eru af ýmsu norrænu þjóðerni en Karl
hefur áður unnið með Gaup í myndinni
Misery Harbor frá 1999. Kalli fór beint
úr kuldum norðursins til hita
Miðjarðarhafs, en hann er að gera
mynd með Katherine Bigalow í
Jórdaníu um þessar mundir.
-
Samadrama fresta enn
Blása lífi í
Presley
Nýjasta breiðskífa hljómsveitar-
innar Jagúar, „Shake it good“
kemur út í dag – á sama degi og
sveitin fagnar níu ára afmæli
sínu. Til að fagna afmælinu og
útgáfu nýju plötunnar býður
sveitin í partí á tónleikastaðnum
Organ í Hafnarstræti.
Jagúarpiltar lofa sannkallaðri
fönkveislu á tónleikunum í kvöld
og hefja leik á miðnætti. Frítt er
inn á tónleikana, þar sem sveitin
hyggst spila lög af nýju plötunni
auk þess sem gamlir slagarar fá
án vafa að njóta sín.
Ný plata
og tónleikar
Skoppa og Skrítla verða í
Kr inglunni laugardag og
sunnudag frá kl. 11-14 og
ætla að heimsækj a Skífuna
og ár it a plötuna sína og
mynddiskinn sinn fyr ir
krakkana.
Fræðandi og skemmtilegt
leikið efni fyr ir yngstu
kynslóðina.
Skoppa og Skrítla er eitt hvað
sem allir krakkar verða að eiga!
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Skífan Leifsstöð · www.skifan.is
TRYGGÐU ÞÉR EINTAK Í NÆSTU VERSLUN SKÍFUNNAR!
Sk
ífa
n
ky
nn
ir