Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 30
Tilkynningar um merkisatburði á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5000.
„Dómgreind sprettur af
áralangri reynslu. Stund-
um öðlast maður líka
reynslu af dómgreindar-
leysi.“
Reykjavíkurborg fær góða gjöf
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Sigurgeir Magnússon
húsgagnasmiður,
sem andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfaranótt
sunnudagsins 5. ágúst. Hann verður jarðsunginn frá
Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 21. ágúst. kl. 15.00.
Bára Sigurgeirsdóttir Vagn Gunnarsson
Ægir Fr. Sigurgeirsson
Hrönn Sigurgeirsdóttir Hrólfur S. Jóhannesson
Friðrik Sigurgeirsson Hólmfríður Karlsdóttir
Þórdís Sigurgeirsdóttir Eyjólfur Baldursson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
50 ára afmæli
Hinn 11. ágúst sl. varð fimmtugur
Örn Johansen
framkvæmdastjóri.
Af því tilefni langar okkur að bjóða
ætting jum og vinum að samgleðjast
okkur og þigg ja léttar veitingar
í dag 18. ágúst frá kl. 20 til 23
í félagsaðstöðu Þróttar á
Sævarhöfða 12 í Reykjavík.
Örn Johansen og frú.
Ástkær móðir mín, amma okkar,
langamma og systir,
Pálína Kristín Björnsdóttir
lést á Hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn
11. ágúst. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Rósa Björg Andrésdóttir
Andrés Páll Hallgrímsson Ragnheiður Guðnadóttir
Hallgrímur Valur Hallgrímsson Kikki Kristine Koch
Stefán Þór Hallgrímsson
Ingibjörg Björnsdóttir
og barnabarnabörn.
Borgarskáldið Vilhjálmur frá Skáholti
hefði orðið hundrað ára á þessu ári.
Hann samdi mörg falleg ljóð á sinni
ævi og þar á meðal Ó, borg mín borg,
sem Haukur Morthens samdi lag við
og gerði svo eftirminnilegt.
Lagið er í dag lag Reykjavíkurborg-
ar og því við hæfi að minnast skáldsins
á afmæli borgarinnar. „Ég hafði sam-
band við borgarstjóra í tilefni tíma-
mótanna og lagði til að eitthvað yrði
gert til að minnast hans. Þá var lagt til
að það yrði gert á menningarnótt og ég
beðin um að koma með tillögur,“ segir
Guðrún Norðfjörð Jónsdóttir, barna-
barn Vilhjálms.
Guðrún kom með hugmynd að
syngjandi bekk í Hallargarðinum
og Sif Gunnarsdóttir, framkvæmda-
stjóri menningarnætur, tók hugmynd-
inni strax fagnandi. „Ég var viss um
að þetta yrði aldrei samþykkt og var
steinhissa þegar þessu var tekið svona
vel. Sif fór strax í málið, fann tækni-
mann og áður en ég vissi af var allt
komið á hreint. Mér dettur nú ýmis-
legt skrítið í hug og það getur bara vel
verið að ég hafi erft eitthvað af sköp-
unargleðinni hans afa,“ segir Guðrún
hlæjandi.
Bekkurinn sem er staðsettur í Hall-
argarðinum, mun hefja upp raust sína
á menningarnótt og Guðrún vonar að
sem flestir komi við til að hlusta á ljóð
afa síns, Ó, borg mín borg.
Vilhjálmur var mikið borgarbarn
og orti margan óðinn um borgina og
mannlífið, margan með pólitísku ívafi
að sögn Guðrúnar.
„Hann var með ákveðnar skoðanir
og var áberandi í borgarlífinu. Hann
hafði gaman af því að láta heyra í sér
og ég heyrði af honum standandi upp á
palli flytjandi þrumuræður í miðbæn-
um. Hann var byltingarsinni en var
því miður litaður af kreppu, örbirgð
og drykkjusýki,“ segir Guðrún.
„Ég þekkti afa aldrei, enda lést hann
þegar ég var rúmlega ársgömul. Hann
hafði lítil samskipti við fjölskylduna
og bjó einn mestan part ævinnar. Ég er
sennilega sú eina sem hef haft áhuga á
þessari arfleifð afa og lét meðal ann-
ars skíra son minn eftir honum,“ segir
Guðrún sem segir jafnframt orðróm
um að Vilhjálmur hafi verið launsonur
Einars Ben, hafi alltaf verið á reiki.
„Afi bjó víst í sömu götu og Einar
Ben en ég veit ekkert hvað er til í
þessu. Kannski var þetta bara kjafta-
saga en Vilhjálmur vildi aldrei kenna
sig við föður sinn og valdi að kenna sig
við húsið Skáholt þar sem hann fædd-
ist og ólst upp á Drafnarstíg í Reykja-
vík,“ segir Guðrún.
Auk borgarljóðsins nefnir Guðrún
ljóð eins og Jesú kristur og ég ásamt
Herbergið. Við bæði þessi ljóð hafa
verið samin lög sem meðal annars
Brimkló flutti á sínum tíma.
„Úr því að þeir krossfestu þig krist-
ur hvað gera þeir við ræfil eins og
mig, er kannski þekktasta setningin
úr ljóðum hans. Hann samdi mikið um
sína ógæfu og var ekkert að skafa utan
af því. Hann var meðvitaður um bága
stöðu sína en á þessum tíma var litla
hjálp að fá fyrir fólk sem þjáðist af
drykkjusýki,“ segir Guðrún sem segir
fólk þó hafa lýst honum sem vel gefn-
um manni með sterka nærveru.
Vilhjálmur gaf út fjórar ljóðbækur
og var að skrifa skáldsögu þegar hann
lést. Það handrit hefur að sögn Guð-
rúnar aldrei komið í leitirnar.
„Fyrir jólin stendur til að endurút-
gefa ljóðin í tilefni tímamótanna, bæði
í bók og á geisladisk.“
Í dag ætlar Guðrún að mæta að
bekknum ásamt barnabarni sínu og
vonast til að sjá fleiri afkomendur og
ættingja í Hallargarðinum.
„Vilhjálmur átti þrjá skilgetna syni
og sagan segir hann hafi líka átt óskil-
getna dóttur. Ég þekki lítið af þessum
afkomendum og ættingjum svo mig
langar að minnast afa með litlu ættar-
móti við bekkinn svo ég hvet alla af-
komendur og ættingja til að mæta að
bekknum klukkan fjögur í dag,“ segir
Guðrún.
Menningarsaga Oddeyrar á
Akureyri verður rifjuð upp
í dag.
Minjasafnið á Akureyri
stendur fyrir menningar-
göngu um Oddeyrina á Ak-
ureyri í dag.
Svæðið er eitt það elsta í
bænum þar sem margs konar
atvinnustarfsemi hefur farið
fram í áranna rás. Meðal
annars fiskvinnsla, mat-
vælaiðnaður og þjónusta þar
sem einstaklingar frá Akur-
eyri koma við sögu.
Þær spurningar sem reynt
verður að svara eru meðal
annars: Hvenær er fyrstu
mannaferða getið á Oddeyr-
inni? Hvað er Sweizer-stíll?
Er slíkan stíl að finna á Odd-
eyrinni? Og hvað fór fram í
Gránufélagshúsunum?
Gangan verður farin
undir leiðsögn, Hönnu Rósu
Sveinsdóttur, sérfræðingi á
Minjasafninu á Akureyri, og
hefst í dag klukkan 14.00.
Ekkert þátttökugjald er í
gönguna sem tekur um tvo
tíma og hentar öllum. Lagt
verður af stað frá Gránufé-
lagshúsunum Strandgötu 49.
Leiðsögn verður á ís-
lensku. Allir velkomnir.
Söguganga
um Oddeyri
AFMÆLI
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma, langa,
lang amma
Guðbjörg Magnea
Jónsdóttir
Lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þann 10. ágúst.
Jarðarförin fer fram í Fossvogskirkju mánudaginn
20. ágúst kl. 11.00
Guðjón Skagfjörð og aðstandendur.