Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 68

Fréttablaðið - 18.08.2007, Síða 68
F ræga fólkið hefur oftar en ekki látið til sín taka á sviði mann- réttinda. Tónlistar- mennirnir Bono og Bob Geldoff hafa til að mynda verið ötulir talsmenn þess að fátækt verði útrýmt í þriðja heims ríkjunum og þá er skemmst að minnast starfs Díönu prinsessu sem barðist gegn notk- un jarðsprengja. Ekki má heldur gleyma þeim stjörnum sem hafa tekið stríðið gegn AIDS upp á sína arma og svona mætti lengi telja. Þó nokkrir hafa hins vegar gagnrýnt þetta mannúðarstarf stjarnanna og telja það ekki unnið af heilum hug. Þetta sé ágætis og oft ókeypis leið til að vekja á sér athygli. Ættleiðingarnar eru engin und- antekning frá því. Þó nokkrir mannréttindahópar hafa gagnrýnt ættleiðingarferli fyrirmennanna og telja að horft sé framhjá nokkr- um grundvallarþáttum sem taldir eru mikilvægir þegar hinn sauð- svarti almúgi vill gera slíkt hið sama. Fram hjá því verður hins vegar ekki litið að fræga fólkið veitir börnunum líf sem foreldra þeirra hefði varla getað dreymt um. Og stjörnunum hefur tekist að vekja athygli á bágborinni aðstöðu milljóna munaðarlausra barna sem búa við næringaskort og sjúkdóma. Enda var á það bent í grein á taílensku vefsíðunni TaiPei Times að helsti vandi hinna ættleiddu barna væri varla sá að þau væru ættleidd heldur einfaldlega að þau væru börn heimsfrægra einstaklinga. Bandaríska leikkonan Joan Craw- ford ættleiddi fimm börn og ól fjögur þeirra upp sjálf, nánast ein og óstudd enda verður hún seint talin hafa verið heppin í ástum. Þótt börnin fimm hafi öll verið frá brotnum bandarískum heimilum og annað hvort á munaðarleys- ingjahælum eða nýfædd og móð- urlaus þá nýtti Crawford sér sína frægð til að láta ættleiðingarnar ganga í gegn. Crawford verður hins vegar seint minnst sem góðrar móður því hún gerði tvö af ættleiddu börnunum sínum arflaus, hirti hlutverk af dóttur sinni og í ævi- sögu elstu dótturinnar Christinu, Mommie Dearest, var Crawford lýst sem ofbeldishneigðri og beið álit almennings á henni nokkurn hnekki, ekki síst í ljósi þess að Crawford hefði einmitt ættleitt þessi börn. Mia Farrow hóf ættleiðingar frá þróunarlöndunum undir lok átt- unda áratugarins. Mia hefur verið ötull talsmaður ættleiðinga á Vest- urlöndum en alls hefur hún ætt- leitt ellefu börn, þrjú með öðrum eiginmanni sínum, André Previn og tvö með leikstjóranum Woddy Allen. Sögu Farrow og Allen ættu flest- ir að kannast við en þau skildu eftir að leikstjórinn hóf samband við ættleidda dóttur Previns og Miu, Soon Ki. Farrow hefur síðan þá ættleitt sex börn eins og sjálf og eru þau flest frá Asíu þar sem þeirra beið hörmulegt lífshlaup á götum stór- borganna. Mia hefur fengið ótal viðurkenningar frá mannréttinda- samtökum fyrir baráttu sína í þágu barna. Angelina Jolie hóf að kynna sér skelfilegar aðstæður barna í þró- unarlöndunum þegar hún var við tökur á Tomb Raider í Kambódíu árið 2001. Síðan þá hefur Jolie verið einhver helsti talsmaður í baráttunni gegn fátækt og er sér- stakur sendiherra barna á vegum UNICEF. Hún ættleiddi strákinn Maddox frá Kambódíu árið 2002 ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Billy Bob Thornton, en þegar leikkonan gekk að eiga Brad Pitt gekk hann Maddox í föðurstað. Fjórum árum seinna fór Jolie til Afríkuríkisins Eþíópíu og sá þar Zahöru Marley. Hún var munaðarlaus en foreldr- ar hennar höfðu látist úr alnæmi. Upphaflega taldi gula pressan að Jolie hefði ættleitt hana ein, en hún vísaði því á bug og sagði að þau Brad hefðu gert þetta saman. Pitt sótti síðan um að vera skráður sem forráðamaður barnanna tveggja og samþykkti dómari í Kaliforníu það. Í mars á þessu ári fóru hjóna- kornin síðan til Víetnam og gengu Umdeildar ættleiðingar frægra Undanfarið hafa ættleiðingar fræga fólksins verið fyrirferðarmiklar á slúðursíðum götublaðanna. Stórleikarar hafa ferðast yfir hálfan hnöttinn, til svokallaðra þróunarlanda, og farið heim með börn sem áttu ekki mikla framtíð fyrir sér í föðurlandi sínu. Freyr Gígja Gunnarsson rannsakaði málið og komst að því að eins og svo oft áður er ekkert nýtt undir sólinni í Hollywood. frá ættleiðingu hins fjögurra ára gamla Pax Thien sem hafði verið skilinn eftir á fæðingardeild þar í landi. Nýlega var síðan greint frá því að hjónakornin hyggðust jafn- vel ættleiða í fjórða sinn en það hefur ekki fengist staðfest. Söng- og leikkonan Madonna hristi hins vegar all rækilega upp í allri ættleiðingarumræðunni þegar hún fór til Malaví og hugðist ættleiða þar barn. Madonna kom heim til Bretlands með strákinn David Banda en í kjölfarið spunnust mikla deilur í kringum það hjá mannréttindasamtökum hvort söngkonan hefði fengið einhverja sérafgreiðslu sökum stöðu sinnar. Í Malavi giltu nefnilega lög sem meinuðu fólki að ættleiða börn nema það hefði verið búsett í landinu í að minnsta kosti ár. Breska pressan fór á fullt og hafði eftir föður drengsins að hann hefði ekki vitað hvað orðið „adoption“ þýddi. Madonna var sögð hafa sett svartan blett á ætt- leiðingar frá þróunarlöndum og fjöldi barnasamtaka gagnrýndu slíkar ættleiðingar harkalega og töldu þær vera sýndarmennsku ríka og fræga fólksins. Leikkonan stóð hins vegar fast á sínu og sagðist ekkert rangt hafa gert. Síðar meir viðurkenndi faðirinn að hann hefði verið vel meðvitaður undir hvaða pappíra hann hefði skrifað og sagði rót- tæka mannréttindahópa hafa ýtt sér út í fyrri yfirlýsingar. Engu að síður er ættleiðing Davids Banda enn ekki gengin í gegn og þau Madonna og Ritchie því enn skráð sem fósturforeldrar hans í Bret- landi. Stjörnuparið Tom Cruise og Nicole Kidman ættleiddu á meðan þau voru hjón strákinn Connor og stúlkubarnið Isabellu en þau eru bæði tvö frá Bandaríkjunum. Þrátt fyrir að Kidman skeri sig nokkuð úr hópi þeirra stjarna sem hafa ættleitt á undanförnum árum þá hefur hún verið heiðruð fyrir baráttu sína gegn ofbeldi og mis- notkun barna.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.