Fréttablaðið - 18.08.2007, Page 74
Tímana áður en tónleikadagskráin
hefst á Klambratúninu gamla, sem
er eftir sumartónleika Sigurrósar
orðinn einn helsti útitónleikastað-
ur borgarinnar, ætla menn að tala
saman á Kjarvalsstöðum. Þar hefur
hönnunarsýningin Kvika verið í
fyrirrúmi í nokkrar vikur og eru
þeir hjá Listasafni Reykjavíkur
ánægðir með aðsókn og viðtökur.
Hönnunarsýningin var fyrsta stóra
sýningin í húsinu eftir viðamiklar
breytingar á miðskipi þessa fyrsta
sérsmíðaða sýningarhúss mynd-
listar í borginni.
Nú skal þingað um stöðu hönnun-
ar í landinu á okkar útrásartímum.
Er stefnt að tveggja tíma törn með
inngangserindum og umræðum
undir stjórn Þorsteins J. Vilhjálms-
sonar: Yfirskrift þingsins er
Íslensk hönnun – gildi og innihald.
Hefst það kl. 13 og er því tvískipt.
Fyrri hlutinn fjallar um hugmynda-
heim íslenskra hönnuða, sérstöðu
þeirra eða einsleitni og þann brunn
sem íslenskir hönnuðir sækja inn-
blástur í.
Síðari hlutinn fjallar um gildi
íslenskrar hönnunar fyrir íslensk-
an iðnað og stöðu á alþjóðlegum
markaði auk þess sem fjallað verð-
ur um kosti þess og galla að starfa
á litlum markaði. Þátttakendur eru
m.a.: Guðrún Lilja Gunnlaugsdótt-
ir sýningastjóri MAGMA/KVIKU
en hún hefur með sýningarstjórn
sinni öðlast einstaka innsýn í hvað
er á seyði meðal íslenskra hönnuða
og fyrirtækja þeirra heima og
erlendis. Guðmundur Oddur, próf-
essor við Listaháskóla Íslands,
hefur um langt skeið lagt sig í líma
við að skilgreina anda og upp-
sprettu íslenskrar hönnunar og er
einn fárra sem hefur sett fram
kenningar um hvað er á seyði í
íslenskri hönnun.
Þrír hönnuðir taka til máls í inn-
gangserindum: Katrín Pétursdóttir
sem hefur starfað mest á erlendum
vettvangi í samstarfi við mann sinn
Michael Young og ekki síður staðið
á eigin fótum. Guðfinna Mjöll
Magnúsdóttir hönnuður og Hrafn-
kell Birgisson, hönnuður og for-
maður samtaka hönnuða, FORM
Ísland. Þá leggja þau sitt til mál-
anna Elísabet V. Ingvarsdóttir,
hönnunarsagnfræðingur, innan-
hússarkitekt og nýráðinn hönnun-
argagnrýnandi Morgunblaðsins,
Guðbjörg Gissurardóttir, fram-
kvæmdastjóri Hönnunarvettvangs
og Finnur Árnason hjá Nýsköpun-
arsjóði.
Sýningin MAGMA/KVIKA hefur,
ásamt nokkrum fleiri sýningum af
sama toga, starfsemi Hönnunar-
safns Íslands og stórauknum áhuga
almennings á hönnun af ýmsum
toga, hleypt nýju lífi í umræðu um
hönnun hér á landi og erindi okkar
verka á erlendan markað og vett-
vang. Sú tíð er liðin að hönnuðir líti
á heimamarkað sem sinn einvörð-
ungu. Nú er litið til alþjóðlegrar
framleiðslu af ýmsu tagi.
Allt þetta kemur til með að vera
í umræðu á þinginu fram til klukk-
an 15 þegar ungir tónlistarmenn
fara að þenja hljómkerfið á gamla
Klambratúninu. Það er Listasafn
Reykjavíkur sem boðar til þings-
ins.
Dansiball í Grófinni
Kl. 14.00
Öskubuska í Tjarnarbíói. Sígilt
ævintýri í búningi barna- og
unglingaleikhússins. Leikarar á
aldrinum 9 til 15 ára leika fyrir
áhorfendur frá þriggja ára
aldri. Sýningin tekur 90
mínútur með hléi. Hleypt inn
meðan húsrúm leyfir.
Andri Snær Magnason rithöfund-
ur leiðir gesti í kvöld um sali
Listasafns Íslands en þar er nú
uppi sýningin Ó-
náttúra. Má
búast við
að skáld-
ið fari
víða í
hug-
hrifum
um
hvað
fyrir
augu ber. Andri er þaulvanur
greinandi og hefur farið víða í
skáldskap sínum, jafnan verið á
sínum sjónarhóli. Andri Snær er
þekktur fyrir óvenjuleg sjónar-
horn á lífið og tilveruna en segja
má að sjónarhorn listamanna á
sýningunni séu afar ólík því þar
má sjá verk eftir 51 listamann,
allt frá Kjarval til Katrínar Sig-
urðardóttur.
Ó-náttúra er sýning á verkum
úr safneign Listasafns Íslands.
Sýningin fjallar um náttúruna í
ólíkum myndum. Náttúran er
gjarnan skilgreind með þrengsta
móti sem hlutlægt umhverfi
manna og málleysingja. Sýningin
býður gestum Listasafns Íslands
að endurskoða þá skilgreiningu
og minnast þess að náttúran nær
ekki síður til innri veruleika
okkar, hvatalífs, ósjálfráðra við-
bragða og hömlulausra athafna
en ytri, ósnortinna aðstæðna - eða
þeirra aðstæðna í landi sem við
höfum rofið með einhverjum
hætti, bæði fyrr og síðar. Sýning-
in leiðir í ljós að erfitt er að skil-
greina jafn yfirgripsmikið fyrir-
bæri og náttúruna, eða greina
hana frá því sem kalla mætti
ónáttúrulegt í merkingunni gervi-
legt eða tilbúið.
Andri leggur af stað í göngu-
túrinn um Ó-náttúru kl. 21 og eru
allir velkomnir.
Andri Snær tekur púlsinn
KIRK JULISTAHÁTÍÐ
2 0 0 7
11.−19. ágúst
FESTIVAL OF SACRED ARTS
„É
g
v i
l
lo
fs
yn
g j
a
D
ro
t t
n i
“
ALLIR VIÐBURÐIR
FARA FRAM Í
HALLGRÍMSKIRKJU
NEMA ANNAÐ SÉ
TEKIÐ FRAM
WWW.KIRK JULISTAHATID. IS – SÍMI 510 1010 – MIÐASALA OPIN 9-17
Í D
AG
!
LAUGARDAGUR 18. ÁGÚST
15.00 –21.00
SÁLMAFOSS
SÁLMAVEISLA Í HALLGRÍMSKIRKJU
Frumfluttir fjórir nýir íslenskir sálmar sérstaklega
samdir fyrir Kirkjulistahátíð. Samfelld dagskrá þar
sem fluttir verða sálmar frá ýmsum stíltímabilum af
fjölbreyttum hópi tónlistarfólks.