Fréttablaðið - 18.08.2007, Side 77
Í tilefni af sjötugsafmæli sínu fyrr
á þessu ári opnar Mats Wibe Lund
ljósmyndari sýningu völdum
myndum úr sínu gríðarlega safni í
galleríi Orkuveitu Reykjavíkur
100º að Bæjarhálsi 1 á morgun.
Mats kallar sýninguna Augnagam-
an en hún er opin virka daga frá
kl. 8.0 til kl. 16.00. Mats er þekkt-
astur fyrir myndir sínar af byggð-
um og landslagi en snýr nú við
blaðinu og sýnir aðallega myndir
af hversdagslífinu hér áður fyrr.
Þetta eru myndir frá árunum milli
1956 og 1974, miklu umbrotatíma-
bili í öllum lífsháttum þjóðarinnar.
Alls eru 45 myndir á sýningunni á
Bæjarhálsi, allar teknar á filmu á
Hasselblad-myndavél sem þá var
leiðandi verkfæri ljósmyndara.
Mats Wibe Lund fæddist í Nor-
egi 28. febrúar 1937. Ljósmynda-
menntun sína fékk hann í Konung-
lega norska flughernum, í
Frakklandi og í Þýskalandi. Áhuga
hans á Íslandi má rekja til þess
tíma er faðir hans rak fyrirtæki
sem var í sama húsi og ræðis-
mannsskrifstofa Íslands í Ósló.
Hann kom fyrst til Íslands sumar-
ið 1954 og vann þá við uppgröft í
Skálholti. Framan af starfaði hann
jöfnum höndum sem blaðamaður
og ljósmyndari.
Hann hefur skrifað á annað þús-
und blaðagreinar um margvísleg
íslensk málefni fyrir blöð og tíma-
rit í Evrópu og Bandaríkjunum.
Með tuttugu Íslandsferðir að baki
flutti hann ásamt eiginkonu sinni,
Arndísi Ellertsdóttur, alkominn
hingað heim vorið 1966.
Um tíma rak Mats ljósmynda-
vöruverslun og portrett-stúdíó í
Reykjavík, en hin seinni ár hefur
hann helgað sig átthagamyndatök-
um úr lofti. Hann á mikið safn
mynda jafnt af þéttbýlisstöðum
sem og af öllum bújörðum og eyði-
býlum á Íslandi. Undanfarin ár
hefur hann unnið ötullega að inn-
setningu allra þessara mynda á
vefinn www.mats.is. Mats hefur
áður tekið þátt í samsýningum og
haldið einkasýningar bæði hér
heima og erlendis.
Í ávarpi til sýningargesta segist
Mats meðal annars vilja nota
tækifærið til að þakka öllum þeim
góðu Íslendingum sem hann hefur
kynnst um land allt. Hvatning
þeirra og gott viðmót hefur ávallt
gefið honum byr undir báða
vængi. Mats er ljósmyndun
ástríða. Hann segir hana snúast
fyrst og fremst um að gleðja aðra.
Mats Wibe Lund fagnar löngum ferli
Menningargnægð
Norræna húsið
18. – 26. ágúst 2007
Laugardagur 18. ágúst
Glerskáli
Norræna húsið
Listsýningar alla daga
á meðan á hátíðinni
stendur:
Hönnunarsýning frá
Álandseyjum
Ljósmyndasýning um
arkitektúr
Ljósmyndasýning
Rebekku Guðleifsdóttur
Global Village –
Heimsþorp
“Sköpun úr rusli” og
ljósmyndasýning
Vinnuskóla Reykjavíkur
Sýning á verkum
leikskólabarna
kl.12:00 og 17:15
Sirkus: Hand in hand.
Sirkussmiðja fyrir
börn. Óvæntar
uppákomur allan daginn
Kl. 13:00
Menningarnótt
Reykjavíkur og
REYFI Menningargnægð
formlega opnuð
Tónleikar:
Kl. 14:00 Lay Low
Kl. 15:00 Tepokinn
Kl. 16:15 María Winter
Kl. 18:00 Democracy of
jazz
Kl. 18:45 Eiríkur Orri
og gestir
Kl. 19:30 María Winter
Kl. 20:45 Democracy of
jazz
Kl. 21:45 Eiríkur Orri
og gestir
Kl. 22:30
Kl. 23:15
Djasskvartett Kára
Árnasonar
Kl. 13:00 – 18:00
Íslensk myndbandalist:
Dieter Roth, Magnús
Pálsson, Rúrí,
Ásta Ólafsdóttir,
The Icelandic Love
Corporation,
Hannes Lárusson,
Sara Björnsdóttir,
Anna Hallin,
Arna Valsdóttir og
Chooc Ly Tan
Kl. 15:00
Norræn matargerð
Kl. 16:00 Gjörningur:
Sara Björnsdóttir
ásamt listnemum úr LHÍ
Kl. 16:15 Gjörningur:
“Inni við beinið er hann
besta skinn”
Snorri Ásmundsson
Kl. 17:00 og 20:00
Dorthe Höjland group
Kl. 20:00 Gjörningur:
“Composition 2”
Hannes Lárusson
FLUGELDASÝNING
www.nordice.is - www.reyfi.is
SNÆFELLSJÖKULL
DRANGAJÖKULL
REYKJAVÍK
AKUREYRI
EGILSSTAÐIR
VESTMANNAEYJAR
ÍSAFJÖRÐUR
VOPNAFJÖRÐUR
ÞÓRSHÖFN
GRÍMSEY
Njóttu dagsins
- taktu flugið
Aðeins nokkur skref á Netinu og þú ferð á loft
Það getur ekki verið auðveldara.
Þú bókar flugið á flugfelag.is þar sem
þú finnur ódýrustu fargjöldin og að
auki frábær tilboð.
Njóttu dagins, taktu flugið
og smelltu þér á flugfelag.is
flugfelag.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/F
L
U
3
77
33
0
5/
07
Auglýsingasími
– Mest lesið