Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 12
[Hlutabréf]
Tíu stærstu fjármálafyrirtæki Norðurlanda nutu
hagstæðra skilyrða á alþjóðlegum fjármálamörk-
uðum á fyrri hluta ársins og skiluðu þá ríflega helm-
ingi meiri hagnaði eftir skatta en á sama tíma í
fyrra. Í þessum hópi eru Kaupþing, Landsbankinn
og Glitnir.
Samanlagt högnuðust félögin tíu um 820 millj-
arða króna samanborið við um 528 milljarða króna
árið 2006.
Þótt Sampo Group í Finnlandi sé ekki nema sjö-
unda stærsta fyrirtækið að markaðsvirði skilaði
það langmestum hagnaði, tæpum 275 milljörðum
króna eða nífalt meiri hagnaði en árið áður. Því má
öðru fremur þakka góðum hagnaði af sölu á Sampo
Bank til Danske Bank sem skilaði sér í bækur
Sampo á fyrsta ársfjórðungi.
Nordea, sem er stærsta fjármálafyrirtæki Norð-
urlanda, hagnaðist um 130 milljarða króna á fyrri
hluta ársins sem var átta prósenta aukning á milli
ára.
Glitnir og Handelsbanken í Svíþjóð voru einu
fjármálafyrirtækin þar sem hagnaður dróst saman
á milli ára. Annars var aukning hagnaðar á milli ára
nokkuð stöðug og lá hún á bilinu átta til tuttugu pró-
sent. Kaupþing, Landsbankinn og Sampo skáru sig
hins vegar vel úr. Kaupþing jók hagnað á milli ára
um 47 prósent og skilaði 46,3 milljörðum króna í
hús. Landsbankinn jók hagnað sinn í 26,3 milljarða
sem var aukning um 29 prósent.
Ef Sampo er skilinn frá sýndi Landsbankinn
hæstu arðsemi eigin fjár á fyrri hluta ársins, rúmum
39 prósentum á ársgrundvelli. Kaupþing og Glitnir
komu þar í humátt á eftir.
Mikill hagnaður Sampo birtist einnig í bókum
Existu, stærsta hluthafa félagsins, sem hagnaðist
um 73 milljarða króna á fyrri hluta ársins. Þetta er
besta afkoma íslensks fyrirtækis á einum árshelm-
ingi og má einkum þakka því að Exista tekur hlut-
deild í hagnaði finnska félagsins.
Stærstu félögin hagn-
ast helmingi meira
Samanlagður hagnaður tíu stærstu fjármálafyrirtækja Norðurlanda nam 820
milljörðum. Sampo, sem er að stórum hluta í eigu Íslendinga, hagnaðist mest.
Íslensku bankarnir ofarlega yfir hæstu arðsemi og mestu aukningu hagnaðar.
Gengi hlutabréfavísitalna lækkaði
lítillega á flestum fjármálamörk-
uðum í gær. Bandarískur fjár-
málamarkaður sló taktinn en
nokkurrar svartsýni gætti í röðum
fjárfesta vestanhafs eftir að for-
stjóri Countrywide Financial, eins
stærsta húsnæðislánafyrirtækis
Bandaríkjanna, sagðist ekki sjá
fyrir endann á samdrætti fyrir-
tækisins. Í kjölfarið fylgdu hluta-
bréfamarkaðir víða um heim.
Hlutabréfamarkaðir eru við-
kvæmir fyrir fréttum af stöðu
mála á bandarískum húsnæðis-
lánamarkaði en fjölmörg fjár-
málafyrirtæki víða um heim hafa
fjárfest í slíkum lánasöfnum.
Kínabanki, næststærsti banki
Kína, viðurkenndi í gær að hann
ætti í einu slíku fyrir jafnvirði 635
milljarða íslenskra króna. Við
þetta gætti taugatitrings í röðum
kínverskra fjárfesta sem losuðu
sig við bréf í bankanum með þeim
afleiðingum að gengi hans féll um
rúm fimm prósent.
Þrátt fyrir það sló SCI-vísitalan
enn eitt metið í Kína. Vísitalan
hefur stigið hratt upp á síðkastið
þrátt fyrir hræringar á mörkuð-
um og hefur hún þrefaldast á
tæpum tveimur árum.
Lækkun á markaði