Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 31
Willy‘s-jeppinn hans Erlings Ólafssonar af-
greiðslumanns er kominn yfir sextugt en ber
aldurinn vel enda er fallega farið með hann.
„Þessi bíll kom til landsins vorið 1946 og var í Húna-
vatnssýslu nánast óslitið alla sína vinnuævi eða til
1980, fyrst í Finnstungu, síðar á Blönduósi og um
1960 fór hann að Hólabaki. Það var ekki fyrr en árið
2000 sem ég eignaðist hann. Þá var hann búinn að
standa í tuttugu ár í tveimur góðum bílskúrum hér
syðra, fyrst hjá smiði úr Húnavatnssýslu í tíu ár og
hjá Iðnskólakennara önnur tíu.“ Þannig byrjar Erling-
ur Ólafsson sögu Willy‘s-jeppa sem stendur í hlaðinu
hjá honum í Kópavogi og hann hefur greinilega nostr-
að mikið við. „Bíllinn var í góðu standi þegar ég fékk
hann og rauk í gang eftir hálftíma en samt var ýmis-
legt sem þurfti að lagfæra. Það dundaði ég við í frí-
stundum fyrstu mánuðina.“
Jeppinn góði var blæjubíll í byrjun að sögn Erlings.
„Allir Willysar voru fluttir inn með blæju til 1955,“
upplýsir hann. „Húsið á þessum er smíðað hjá Bíla-
smiðjunni um eða fyrir 1960 og skúffan er líka íslensk
og frá sama tíma.“
Nú er jeppinn eins og nýsleginn túskildingur. „Ég
pensilmálaði hann í vor til að hafa hann svolítið eðli-
legan og sveitó,“ segir Erlingur brosandi og er í lokin
spurður hvort hann tími eitthvað að nota gripinn. „Já,
ég keyri hann alltaf af og til og er að fara í heilmikinn
bíltúr á honum núna um helgina.“
Hef hann svolítið
eðlilegan og sveitó
VIÐ FJÁRMÖGNUM
ÞAÐ SEM UPP Á VANTAR!
Ertu að spá í bílakaup?
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
7
2
3
5
Nýttu þér upplýsingar og reiknivélar á
www.gf.is eða hafðu samband við ráðgjafa
okkar í síma 440 4400.
Ferðaskrifstofa
Þú velur áfangastað og brottfarardag og tekur þátt í
lottói um hvaða gistingu þú færð!
Auglýsingasími
– Mest lesið