Fréttablaðið - 25.08.2007, Page 46
hús&heimili
Samsýningin Stóll á mann var
opnuð í DaLí Gallery á Akur-
eyri á fimmtudagskvöldið. Á
sýningunni gefur að líta 31
útfærslu á sama stólnum.
„Stólasafnið varð til þegar við Sig-
rún Sigvaldadóttir ætluðum að
opna súpuhús í Þingholtsstræt-
inu og vildum hafa stólana frá-
brugna hinu hefðbundna,“ segir
Ragnhildur Ragnarsdóttir, en þær
Sigrún eru báðar grafískir hönn-
uðir og hugmyndasmiðir verkefn-
isins.
„Í kjölfarið kviknaði sú hug-
mynd að skjótast í Ikea og kaupa
hvíta tréstóla sem listamenn á
ýmsum sviðum gerðu að sínum
eigin með sköpunarkrafti og hug-
myndaauðgi,“ segir Ragnhildur,
en útkoman varð persónuleg mynd
af listamönnunum í setum og baki
stólanna.
„Dæmi um sannan karakter sem
eftir varð í stólsetunni er Halla
Helgadóttir auglýsingateiknari,
en árum saman hef ég notið þess
að taka upp glansmyndaskreytt
jólakort frá Höllu. Glansmyndirn-
ar rötuðu svo auðvitað á stól henn-
ar líka,“ segir Ragnhildur bros-
andi, en þegar til kom varð
ekkert af súpuhúsi þeirra Sig-
rúnar.
„Þá þótti okkur afleitt að
allt þetta góða fólk væri búið
að leggja vinnu í stólana til
einskis og ákváðum að leggj-
ast með þá í sýningarferða-
lag. Þeir munu einnig fá sinn
ljóma í súpubók sem við vinn-
um nú að í samstarfi við
Snorra Birgi Snorrason mat-
reiðslumeistara og kemur út
á haustdögum. Eftir sýning-
una fer svo hver stóll til síns
heima. Okkur er ekki stætt á
að hafa þá lengur, en þetta
hefur verið notaleg sam-
fylgd.“
Sýningin stendur að-
eins yfir þessa einu helgi,
en fyrirhugaður er súpu-
gjörningur á Akureyrar-
vöku í kvöld klukkan 20.
Stóll á mann
Birgir Ómarsson, grafískur hönnuður
Halla Helgadóttir, grafískur hönnuður
Halldór Baldurs-
son, teiknari
Hildur Zoega,
verkefnastjóri
25. ÁGÚST 2007 LAUGARDAGUR10