Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 76

Fréttablaðið - 25.08.2007, Side 76
Frönsk tónlist byrjar hvorki með Gainsbourg né endar með Air heldur hafa margar skemmtilegar og ferskar rokkhljómsveitir komið frá Frakklandi undanfarin misseri. Franska tískumerkið April 77 er líka eins rokkað og mögulega gerist, og var sett á fót af hinum kornunga Brice Partouche árið 2002. April 77 hefur notið mikillar hylli meðal ungs fólks í hipp og kúl rokksenunni um heim allan en eldri rokkstjörnur eins og Iggy Pop og liðs- menn Rolling Stones eru einnig orðnir mikl- ir aðdáendur fatalínunnar. Merkið nýtur innblásturs goðsagnakenndra rokksveita eins og Joy Division og the Ramones en það sem er einnig sérstaklega skemmti- legt er að það notar engar dýraafurðir í fötin sín og notar gerviefni í stað leðurs. Haust- og vetrarlínan 2007 er áfram sér- lega rokk-innblásin en í þetta sinn tileinkuð glamúrnum sem einkenndi költ-sveitina The Cramps. en hún varð þekkt fyrir „psychobilly“ tónlist sína á áttunda áratugnum og skrautlega meðlimi eins og Lux Interior og Poison Ivy. April 77 línan er titluð „Martini Time“ og með henni segjast Frakkarnir bjóða upp í kokkteil í vetur í fylgd með draugum Johnny Thunders og Tav Falco. Hægt er að nálgast þessar dásamlega svölu flíkur hjá Dead, Laugavegi 29. F í t o n / S Í A Út er komin fróðleg bók eftir tískublaðamanninn Dana Thomas sem kallast „ Deluxe: How Luxury Lost its Luster.“ ( Hvernig munaður missti ljómann). Í þessu líflega ágripi af munaðarvöruiðnaðinum fer hún yfir sögu „lúxus“ merkja eins og Hermés, Louis Vuitton og Prada og hvernig lúxusiðnaðurinn svokallaði hefur þróast síðustu ár. Fróðlegt er að lesa að Hermés, Cartier og Louis Vuitton voru öll sett á fót á 18. öldinni þegar handverksmenn bjuggu til dásamlega hluti fyrir konungsfjölskyldu Frakklands, og síðar, eftir byltinguna, fyrir evrópskt hefðarfólk og ríkar bandarískar fjölskyldur. Hún talar um þá skemmtilegu staðreynd að ástæða þess að Hermés tók upp appelsínugula litinn var sú að á stríðsár- unum var hann eini efnisliturinn sem var auðfáanlegur. Aðalfókus Thomas, sem bjó í París í tólf ár, er þó hvernig lúxusmarkaðurinn hefur þróast og færst nær almenningi. Þróunin hófst þegar Miuccia Prada ákvað að fjöldaframleiða nælontöskur í lok níunda áratugarins og gerði merkið þar með aðgengilegt venjulegu fólki. „Fjörutíu prósent Japana eiga eitthvað merkt Vuitton,“ segir hún og bætir við að árið 2004 var gerð rannsókn sem sýndi að bandarískar konur kaupa heilar fjórar töskur árlega. Munaðarvörur sem eitt sinn voru keyptar af aðeins fáeinum ríkum einstaklingum eru nú fjöldaframleiddar í stórum stíl. Einu sinni voru merki vandlega falin og saumuð innan í hátískufatnað en í dag nýtur almenningur þess að merkja sjálfan sig í bak og fyrir með risastórum lógóum. Munaðarvörurnar færðust sumsé frá háklassanum til miðstéttarinnar og að sama skapi virtist ljóminn einhvernveginn fara af þeim. Nú snúast þessi tískuhús í hringi í kringum leikkonur og poppstjörnur, hella peningum í rándýrar auglýsinga- herferðir og nota ódýrara efni og vinnuafl og í stað menntaðra handverksmanna eru allir bolirnir og peningaveskin væntanlega hömruð saman af bláfátækum börnum í þriðja heiminum fyrir nokkra aura í laun. Ilmvötn sem áður voru þróuð af háþróuð- um „nefjum“ og innihéldu einstök ilmefni eru nú bara einhver konsept í höfðinu á markaðsmönnum. Höfundur bókarinnar vitnar í ritstjóra bandaríska Vogue, Anne Wintour, sem segir, „ Þessar breytingar þýða að fleira fólk getur klæðst betri tísku,“ og „ því meiri tísku sem fólk getur keypt sér, því betra.“ En sjálf dregur Thomas þá dapurlegu ályktun að þrátt fyrir að iðnaðurinn hafi breytt því hvernig venjulegt fólk klæðir sig hafi hann fórnað heiðarleika sínum, grafið undan vörunum sjálfum og blekkt viðskiptavini sína. Sumsé, um leið og sótsvartur almúginn fór að ganga í merkjavöru frá toppi til táar hætti hún að vera sérstök. (Áhugasamir geta nálgast bókina á Amazon, en hún er gefin út af Penguin Press). Djöfullinn klæðist Prada (Í alvörunni!)

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.