Fréttablaðið - 11.09.2007, Qupperneq 10
RV
U
ni
qu
e
08
07
04
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Lotus Professional
Heildarlausn fyrir snyrtinguna
WC SmartOne statíf blátt
WC SmartOne statíf hvítt
3.982 kr.
1.865 kr.
Þú spar
ar bæð
i
pappír
og sápu
með
nýju Lo
tus Pro
fession
al
skömm
turunu
m
Lotus enMotion blár snertifrír skammtari
Lotus enMotion hvítur snertifrír skammtari
Lotus sápuskammtari Foam blár
Lotus sápuskammtari Foam hvítur
1.865 kr.
Íslenskt stjórnborð
Íslenskar leiðbeiningar
Stórt hurðarop
20 ára ending
Eirvík kynnir
sportlínuna frá Miele
AFSLÁTTUR
30%
Miele gæði
ÞVOTTAVÉL frá kr. 99.900
Forsætisráðherra
Póllands, Jaroslaw Kaczynski,
lét í gær að því liggja að hann
hallaðist að því að flokkur hans
myndaði samsteypustjórn með
aðalkeppinautnum, frjálshyggju-
flokknum Borgaravettvangi,
ynni hans flokkur þingkosning-
arnar sem boðað hefur verið til í
næsta mánuði.
Kaczynski virtist aðspurður í
útvarpsviðtali hins vegar útiloka
þann möguleika að reyna að end-
urnýja stjórnarsamstarf
íhaldsflokks síns, Laga og rétt-
lætis, við tvo popúlistaflokka. Þar
sem upp úr því samstarfi slitnaði
varð að flýta kosningunum.
Allir gagnagrunnar
sem Ríkislögreglustjóri rekur
hafa lagastoð, eru undir eftirliti
Persónuverndar og reynt hefur á
þá fyrir dómstólum, segir í
yfirlýsingu frá dómsmálaráð-
uneytinu. Hæstaréttarlögmaður
sem gagnrýndi gagnagrunnana
segist standa við gagnrýni sína.
„Það er því
skýr lagaheim-
ild fyrir starf-
rækslu gagna-
grunna lögreglu
[þar með talið]
greining-
ardeildar
embættis Rík-
islögreglustjó-
ra,“ segir í yfir-
lýsingu
dómsmálaráðuneytisins.
Þar segir ennfremur að Ríkis-
lögreglustjóri hafi rekið miðlæga
gagnagrunna árum saman. Sér-
stök reglugerð um greining-
ardeild víki ekki frá heimildum
sem Ríkislögreglustjóri hafi og
gildi almennt um meðferð og
söfnun persónuupplýsinga hjá
lögreglu.
Fréttablaðið greindi frá
gagnrýni Jóhannesar Rúnars
Jóhannssonar hæstaréttarlög-
manns á ákvæði í reglugerðum
frá dómsmálaráðuneytinu á
sunnudag.
Jóhannes Rúnar sagði enga
lagastoð fyrir heimild greining-
ardeildar til að vinna með
viðkvæmar persónuupplýsingar.
Það sé stjórnarskrárbrot að safna
persónuupplýsingum og vinna
með þær án fullnægjandi lag-
astoðar. Auk þess væri veik lag-
astoð fyrir gagnagrunni ríkislög-
reglustjóra.
Jóhannes Rúnar segir yfirlýs-
ingu ráðuneytisins yfirklór sem
svari ekki þeirri gagnrýni sem
hann hafi sett fram. Fleiri lög-
menn séu þessarar skoðunar og
hann hafi fengið sterk viðbrögð
við ummælum sínum.
„Það er engin lagastoð fyrir
þessari upplýsingasöfnun, það er
alveg skýrt,“ segir Jóhannes
Rúnar.
Hann segir að ákvæði í lögum
sem heimili skerðingu á persónu-
frelsi einstaklinga, til dæmis með
því að safna viðkvæmum persón-
uupplýsingum, verði að vera skýr.
Ekkert af þeim lagaákvæðum
sem reglugerðirnar byggi á, og
nefndar eru í yfirlýsingu ráðu-
neytisins, geti talist skýr heimild
til að skerða friðhelgi einkalífs
þeirra sem í hlut eigi.
Ummæli í yfirlýsingu ráð-
uneytisins um að reynt hafi á
gagnagrunna ríkislögreglustjóra
fyrir dómstólum segir Jóhannes
Rúnar ekki ganga upp. Sér vit-
anlega hafi til að mynda enginn
dómur fallið um gagnasöfnun
greiningardeildarinnar, enda
reglugerðin sett í maí síðastliðn-
um. Þar fyrir utan reyni ekki oft á
upplýsingar úr gagnagrunnum
lögreglu í dómsmálum.
Gagnagrunnar
með lagastoð
Dómsmálaráðuneyti segir Ríkislögreglustjóra hafa
rekið gagnagrunna árum saman sem eigi sér skýra
lagastoð. Yfirklór sem svarar ekki spurningum segir
hæstaréttarlögmaður sem gagnrýnir reglugerðir.