Fréttablaðið - 11.09.2007, Side 11
Glerárgötu 34 • Akureyri
Sími 515 5160
Opið virka daga kl. 8-18
Borgartúni 29 • Reykjavík
Sími 515 5170 • Opið virka daga
kl. 8-18 • laugardaga kl. 11-14
Höfðabakka 3 • Reykjavík
Sími 515 5105
Opið virka daga kl. 8-18
Eitthvað fyrir alla!
Prenthraði bls. á mín A4: Allt að 30 bls. í svörtu, 23 bls. í lit,
ljósmynd 10x15 25 sek.
Upplausn: 4800x1200 í lit, 1200dpi í svörtu
Litatækni: PhotoRet IV með ljósmyndahylki
Tengi: USB 2.0 - PictBridge
Mánaðarnotkun: 1.000 bls.
Pappír: 75-200 g
Innbakki: 100 bls.
Myndavélakort: Raufar fyrir myndavélakort
SKANNI
Skannatækni: Flatbed
Upplausn: 1200x2400dpi
FJÖLFÖLDUN
Hraði bls. á mín.: 30 í svörtu, 23 í lit
Minnkun/stækkun: 50 til 400%
Aðeins
Örgjörvi: Intel Core Duo T2130/1.86 GHz
Vinnsluminni: 2048MB 667MHz DDR2
Skjár: 15,4” TrueBrite WXGA 1280 x 800
Skjástýring: Intel GMA 945GML
Harður diskur: 200GB, S.M.A.R.T
Skrifari: 8x DVD±RW Super Multi
Þráðlaust netkort: 802.11 b/g
Vefmyndavél: Nei
Stýrikerfi: Windows VISTA Business
89.900kr./stgr.
Aðeins
*Verð miðast við meðaltalsraðgreiðslur í 36 mánuði.
Aðeins
Þunglyndi heldur meira aftur af fólki
en kverkabólga, liðagigt, asmi og sykursýki,
samkvæmt rannsókn Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunarinnar (WHO) sem fréttavefur BBC
greinir frá.
Spurningalisti var lagður fyrir meira en
245.000 manns í sextíu löndum. Eftir að tillit
hafði verið tekið til þátta á borð við fátækt
og heilsufar komust rannsakendur að þeirri
niðurstöðu að þunglyndi væri sá þáttur sem
hefði viðamest áhrif á versnandi heilsu
fólks.
Enn fremur leiddi rannsóknin í ljós að fólk
sem þjáðist af einum eða fleirum langvinnum
sjúkdómum auk þunglyndis væri verst til
heilsunnar.
Somnath Chatterji, einn rannsakenda,
segir niðurstöðurnar undirstrika nauðsyn
þess að setja þunglyndi sem forgangsverk-
efni til að bæta heilsu almennings. Segir
Chatterji samverkun þunglyndis og lang-
vinns sjúkdóms leiða til síversnandi heilsu
fólks umfram þá sem þjáist bara af þung-
lyndi, þá sem þjáist bara af langvinnum sjúk-
dómi eða þá sem þjást af fleiri en einum
langvinnum sjúkdómi án þunglyndis.
Marcus Roberts, yfirmaður stefnumörk-
unar við bresku geðheilsulíknarstofnunina
Mind, tekur undir með Chatterji um mikil-
vægi þess að setja meðferð við þunglyndi í
forgang.
Segir hann það oft gerast að læknar líti
framhjá geðheilsu sjúklinga þegar þeir
einbeiti sér að meðhöndlun líkamlegra
einkenna langvinnra sjúkdóma.
Læknar líta oft framhjá geðheilsunni
Unglingspiltur hefur
játað að hafa kveikt í bílskúr við
fasteignasöluna Bakka við Sigtún
á Selfossi í byrjun ágúst. Ekki
liggur fyrir hvers vegna drengur-
inn kveikti eldinn, en hann er
undir sakhæfisaldri og verður því
líklegast ekki ákærður fyrir
athæfið.
Eldurinn var kveiktur við
vesturgafl bílskúrsins og teygði
eldurinn sig upp í þaksperrur.
Skemmdirnar á skúrnum voru
minni háttar. Að sögn fulltrúa
lögreglunnar á Selfossi fer málið
nú til Barnaverndarnefndar, þar
sem reynt verður að finna á því
lausn.
Játaði að hafa
kveikt í skúr
Neyðarsímtöl í síma
112, númer Neyðarlínunnar, voru
tæplega 187 þúsund á síðasta ári,
sem jafngildir rúmlega 500
símtölum að jafnaði hvern dag
ársins. Þetta er um fjögurra
prósenta aukning frá fyrra ári
þegar um 180 þúsund neyðar-
símtöl bárust. Þetta kemur fram
í ársskýrslu Neyðarlínunnar sem
gefin var út í gær. Þar eru
neyðarsímtölin flokkuð eftir
tegundum, og í rösklega helmingi
tilvika var erindið að óska eftir
aðstoð lögreglu.
Alls bárust 155 símtöl vegna
barnaverndarmála í fyrra, sem
er tæpur þriðjungur af fjölda
slíkra símtala árið 2005 þegar
561 símtal barst vegna þessa
málaflokks.
Yfir 500 neyðar-
símtöl á dag
Bæklingurinn „Living
and working in Iceland“ hefur
verið gefinn út. Í honum er fjallað
um lífs- og vinnuskilyrði á
Íslandi. EURES, evrópsk vinnu-
miðlun sem rekin er af Vinnu-
málastofnun, sér um útgáfuna.
Í fréttatilkynningu kemur fram
að markmiðið með útgáfunni sé
að safna saman á einum stað öllu
því helsta sem erlendir starfs-
menn þurfi að vita og hafa í huga
fyrstu mánuðina á Íslandi. Farið
er yfir hluti eins og skráningu inn
í landið, nauðsynleg leyfi,
atvinnuleit, skattakerfið og fleira.
Hægt er að nálgast bæklinginn á
vefsíðu Vinnumálastofnunar,
www.vinnumalastofnun.is.
Læra að búa og
vinna á Íslandi
Nýr forstjóri hefur verið
ráðinn yfir kæli- og frystigeymslu-
sviði Eimskips í Ameríku. Brad
Sugden, forstjóri Versacold, tekur
við af Reyni Gíslasyni, sem mun
stýra annarri starfsemi Eimskips í
heimsálfunni.
Eimskip festi nýlega kaup á
Versacold og liggur fyrir að
samþætta rekstur Versacold og
Atlas Cold Storage, sem einnig er í
eigu Eimskips.
Ameríkusvið Eimskips rekur
120 kæli- og frystigeymslur í
Norður-Ameríku og starfa um
8.500 manns á vegum félagsins.
Nýr forstjóri á
kælisviði