Fréttablaðið - 11.09.2007, Page 17

Fréttablaðið - 11.09.2007, Page 17
Mæður og börn geta nú æft saman í mömmu- þreki, nýju námskeiði sem Borghildur Sverris- dóttir kennir hjá Heilsuakademíunni. „Við ætlum að koma líkamanum í fyrra horf, eftir meðgöngu og fæðingu. Styrkja miðsvæðið sem hefur verið undir mestu álagi undanfarna mánuði. Það verður gert með styrkingu og góðri brennslu. Lóð, teygjur og boltar verða notuð og áhersla lögð á mjúkar hreyfingar, sem gera má heima og með barninu.“ Þetta segir einkaþjálfarinn Borghildur Sverrisdóttir um námskeiðið mömmuþrek sem hún hefur umsjón með hjá Heilsuakademíunni og verður til að byrja með í nýja íþróttahúsinu við Lækjarskóla. Námskeiðið verður einnig kennt í Heilsuakademíunni í Egilshöll. Að hennar sögn er nýbökuðum mæðrum velkomið að mæta með börn sín á námskeiðið, enda tímarnir skipulagðir og hugsaðir þannig að barnið verði hluti af æfingunum. Til marks um það ætlar hún að kenna æfingar þar sem þyngd barnsins kemur í stað lóða, ásamt því að veita ráð í tengslum við grindarbotns- og mjóbaksæfingar. „Svo er ég með áskorunarnámskeið fyrir konur, sem ég hef verið að þróa en er nú komin með það inn í Heilsuakademíuna,“ segir Borghildur. „Það var að seljast upp á það en það næsta hefst eftir átta vikur.“ Áherslan verður ekki bara á djöflast, heldur koma huganum í rétt lag og vinna með markmiðasetningu. Nota hugann til að gera hreyfingu og hollt og gott mataræði að lífsstíl. Þess vegna mæli ég með að þátt- takendur verði með alveg til jóla. Þá eru meiri líkur á að langtíma árangur náist.“ Borghildur tók hugarfarslega þáttinn meira inn í eigin þjálfun fyrir nokkrum árum og sá þá hversu áhrifarík markmiðasetning og hugarfarsbreyting er. Hún telur að hugurinn verði því miður alltof oft út undan í umræðunni um bætt heilsufar, en hann verði að vera með í för eigi árangur að nást. „Ég ætla að nota nokkrar mínútur til að fara yfir markmiðin í hverjum tíma. Enda trúi ég að mínútunni sé sannarlega vel varið ef það er gert.“ Barnið með í ræktina

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.