Fréttablaðið - 11.09.2007, Page 34

Fréttablaðið - 11.09.2007, Page 34
Bylting drykkju- manna hefur verið brotin á bak aftur. Yfirráðum þeirra í miðborginni hefur verið hrundið af góðborgurum með dyggri aðstoð öryggissveitar ríkisins. Drykkju- rútar og skrílslæti þeirra teljast ógn við þjóðaröryggið og þeim verður umsvifalaust varpað í dýflissu sem dirfist að kasta af sér vatni á almannafæri. Slíkt er ekki eingöngu hneisa heldur stóralvar- legur glæpur sem þarf að uppræta með þrautþjálfuðum mönnum. 101 var á góðri leið með að breyt- ast í Sódómu. Fyrir utan merk mannvirki stóð ölóður og graður lýðurinn sem þráði að fá að komast inn í hlýjuna. Rétt eins og fyrir þúsundum ára í landinu helga. Annaðhvort var það að flýja borgina líkt og Lot og sjá Reykjavík brenna í synd sinni eða kalla til víkingasveitina. Íslensk drykkja hefur getið af sér lausaleikskróga, kynsjúkdóma og veikindi á sunnudögum þegar saklaus alþýðan gengur til messu eða stendur við Tjörnina með brauð- mola og skemmtir mávunum. Broddborgurum í borginni þótti nóg komið, skítt með það þótt hand- rukkarar og dópsalar gengju lausir. Þeir röskuðu í það minnsta ekki viðkvæmum nætursvefninum á meðan þeir börðu á hver öðrum á Bíldshöfða. „Við viljum sérsveitina í miðborgina og ekkert annað,“ var hrópað á götum úti. Og svo fengu yfirvöld lögreglufylgd gegnum þennan stjórnlausa heim svo þau gætu kynnst því af eigin raun hvers konar þjóðflokkur héldi þarna til. Böndum hefur verið komið yfir áfengissjúkan lýðinn sem valsað hefur um, nánast óáreittur, í fríríki sínu og ekki skeytt um laganna verði eða fyrirmæli yfirvaldsins. Og hlotið fyrir það frægð í bókum, sjónvarpsþáttum og kvikmyndum. Loksins geta betri borgarar gengið um, dreypt á þremur rauðvíns- glösum, sest upp í bíl og keyrt heim, þeirra er miðborgin í skjóli sérsveitarinnar sem er jú á launum skattborganna. Hvað er að frétta? Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.