Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 11.09.2007, Blaðsíða 38
Opnunaratriði Britney Spears á MTV Video Music Awards-verðlaunahátíðinni í Las Vegas aðfaranótt mánudags vakti ekki mikla lukku. Margir biðu með öndina í hálsinum eftir opnunar- atriði MTV Video Music Awards- hátíðarinnar í ár, eftir að það spurðist út að söngkonan Britney Spears hefði tekið það að sér. Atriðið átti að marka endurkomu Spears í tónlistarbransann, eftir að hún tók sér hlé frá upptökum og tónleika- ferðum til að stofna fjölskyldu fyrir nokkrum árum. Frést hafði að galdra- maðurinn Criss Angel hefði lagt söngkonunni lið við gerð atriðisins, sem reyndist ekki vera raunin. Angel ætlaði að nota spegla til að láta líta svo út að söngkonan hyrfi af sviðinu. Eftir atriði Britneyjar var það mál margra að svo hefði betur verið. Vefsíðan TMZ.com segir söngkonuna hafa litið út eins og svefngengil á sviðinu. Hún söng ekki sjálf, heldur hreyfði varirnar í takt við lagið. Dansinn, sem var hennar aðalsmerki á árum áður, var ekki heldur upp á marga fiska. „Þegar myndavélinni var beint að stjörnum eins og Rihönnu, 50 Cent og Diddy sást að áhorfendur voru ekki hrifnir,“ segir á síðunni. „Britney leit ekki út fyrir að vera of spennt sjálf… og virtist jafnvel hafa gleymt textanum við eigið lag.“ Í skoðanakönnun síðunnar voru 89 prósent yfir 130 þúsund svarenda sammála um að söngkonan hefði verið ömurleg. Úr netheiminum var það þó væntanlega slúðurbloggarinn Perez Hilton sem brást hvað verst við skandalnum, eins og hann kallar uppákomuna. „Við erum móðguð, sár og full ógeðs yfir „atriði“ þínu á VMA-hátíðinni,“ skrifar hann, og skiptir yfir í töluvert ófágaðra orðbragð. „Það sem þú gerðir var vanvirðing við þá fáu aðdáendur sem þú átt eftir,“ skrifar Perez þessu næst. „Hin gamla Britney Spears, sem var einu sinni (fyrir löngu síðan) virkilega frábær, myndi skammast sín fyrir þennan skort á fag- mennsku og gjörsamlega skítlegt atriði á VMA-hátíðinni,“ segir Perez. Björk Guðmundsdóttir hefur verið tilnefnd til evrópsku MTV-tónlist- arverðlaunanna sem besti sólótón- listarmaðurinn og mesti rokkar- inn. Athöfnin fer fram í München hinn 1. nóvem- ber næstkom- andi. Hægt er að kjósa Björk á heimasíðu MTV. Björk er einn- ig í stóru viðtali í nýjasta tölu- blaði breska tón- listartímaritsins Q. Prýðir hún forsíðu tímarits- ins ásamt Michael Stipe úr R.E.M. og Rufus Wainwright. Björk er enn á tónleikaferð um heiminn til að fylgja eftir plötu sinni Volta. Fram undan eru tón- leikar í Montreal, Madison Square Garden í New York og í Suður- Ameríku. Búist er við því að tón- leikaferðin taki átján mánuði og henni ljúki seint á næsta ári. Ný plata með söngkonunni er jafnframt fyr- irhuguð síðar á þessu ári. Var hún tekin upp í einni lotu í Olympic- hljóðverinu í London. Talið er að á plötunni verði að finna áður útgefin lög í nýjum útsetningum. Tvær tilnefningar Kvikmynd Guðnýjar Halldórsdóttur, Veðra- mót, var frumsýnd að viðstöddu margmenni en hún segir sögu þriggja hippa sem taka að sér stjórn á betrunar- heimili fyrir vandræða- unglinga. Myndin fékk afbragðsdóma í fjöl- miðlum og gaf Frétta- blaðið henni meðal annars fjórar stjörnur af fimm. Fjöldi ungra leikara steig þarna sín fyrstu skref fyrir framan myndavélina og var þeim ákaft fagnað á frum- sýningunni. Veðramót frumsýnd með stæl Hvað er að frétta?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.