Fréttablaðið - 20.09.2007, Side 10

Fréttablaðið - 20.09.2007, Side 10
 „Það hefur verið við- varandi mat að krónan hentaði okkar hagkerfi og við eigum auð- vitað alltaf að vera með þetta til athugunar. Það kallar hins vegar ekkert á sérstaka úttekt nú,“ segir Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, um ályktun Sambands ungra sjálf- stæðismanna um efnahagsmál og hagstjórn. Telja þeir tímabært að kostir og gallar íslensku krónunn- ar verði teknir til alvarlegrar skoðunar. Arnbjörg segir jafnframt að öll umræða verði að fara fram með yfirveguðum hætti; ellegar sé hætt við að menn missi trúna á krónunni. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður efnahags- og skattanefndar Alþingis, telur sjálfsagt að ræða stöðu krónunnar eins og annarra þátta efnahagslífsins. „Það á að fara fram sífelld umræða um þessi mál,“ segir hann. Pétur hefur þó mótaðar hug- myndir um stöðu krónunnar og metur kosti hennar fleiri en gall- ana. „Krónan hefur reynst okkur vel undanfarin tíu til fimmtán ár þótt hún hafi verið okkur erfið í óðaverðbólgunni þar áður,“ segir Pétur og nefnir nokkra ókosti við að taka upp erlenda mynt, til dæmis evru. „Menn hafa nefnt lægri vexti sem kost við evruna en það getur virkað öfugt því lækkun vaxta hér hleypti upp húsnæðis- verðinu og ég vil ekki sjá aðra slíka verðhækkun.“ Rætt hefur verið um óstöðugleika krónunnar en Pétur bendir á að hún sé afskap- lega sterk og að sveiflur á milli evru og Bandaríkjadals séu líka umtalsverðar. „Þannig að jafnvel stór efnahagssvæði sveiflast líka.“ Enn fremur felist ókostur í að erlend mynt aðlagist ekki íslensku efnahagsástandi sérstaklega og allsendis óvíst hvort efnahags- ástand annars staðar gangi í takt við ástandið hér. Pétri er annt um fullveldi Íslands og telur mikilvægt að halda í það þótt einhvern tíma verði hugsanlega að niðurstöðu að taka upp evru. „Það er hægt að taka upp evru óháð inngöngu í Evrópusambandið – og öfugt. Sam- bandið hefur þróast mjög hratt í átt til ríkis og ég held að reynsla okkar af fullveldi sé slík að fáir vilji afsala sér því. Efnahagsleg velferð okkar hófst þegar við fengum fullveldi.“ Krónan reynst vel en umræða er sjálfsögð Pétur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir kosti krónunnar fleiri en gallana en telur sjálfsagt að gera úttekt á stöðu hennar. Arnbjörg Sveinsdóttir þingflokksformaður segir ekkert kalla á úttekt nú. Auglýsingasími – Mest lesið Nuon Chea, sem var einn af æðstu leiðtogum ógnar- stjórnar Rauðu kmeranna í Kamb- ódíu, var handtekinn í gær og ákærður fyrir glæpi gegn mann- kyninu og stríðsglæpi. Hann var handtekinn snemma í gærmorgun á heimili sínu í Pailin, skammt frá landamærum Taí- lands, og fluttur til höfuðborgar- innar Pnohm Penh, þar sem hann var afhentur stríðsglæpadómstól, sem starfræktur er þar á vegum Sameinuðu þjóðanna. Nuon Chea er 82 ára og var hægri hönd Pol Pots, leiðtoga Rauðu kmeranna, sem lést árið 1998. Yfirmaður herafla Rauðu kmeranna, Ta Mok, lést árið 2006, þannig að Noun Chea er nú æðst- ur leiðtoga Rauðu kmeranna, sem enn eru á lífi. Hann hefur þó jafn- an neitað allri ábyrgð á voðaverk- um ógnarstjórnarinnar, sem ríkti á árunum 1975 til 1979, og segist reiðubúinn að verja gerðir sínar fyrir dómara. „Núna er kominn tími fyrir hann að segja sína útgáfu sögunn- ar fyrir dómstól,“ segir Youk Chang, framkvæmdastjóri Skjala- safns Kambódíu, þar sem glæpir Rauðu kmeranna hafa verið rann- sakaðir. „Það dóu svo margir. Staðreynd- irnar eru alls staðar. Til er fullt af fjöldagröfum, fangelsum, skjöl- um og ljósmyndum sem sýna hvað hann gerði á þessum tíma.“ Ákærður fyrir stríðsglæpi Sjötug ekkja var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa skipulagt morð á tengdadótt- ur sinni eftir að hún komst að framhjáhaldi hennar. Sonur ekkjunnar var einnig sakfelldur fyrir aðild að morðinu á konu sinni sem var 27 ára. Tengdadóttirin hvarf þegar hún og ekkjan ferðuðust saman til Indlands vegna brúðkaups í fjölskyldunni. Saksóknarar sögðu ekkjuna hafa stært sig af því að hafa látið bróður sinn kyrkja tengdadótturina og henda líkinu síðan í á. Dómarinn sagði að um heiðurs- morð hefði verið að ræða. Ekkja lét myrða tengdadóttur TILBOÐ Rósir 7 stk./ 35-40 cm Opið virka daga 10 - 20 laugardaga 10 - 18 sunnudaga 12 - 18 595,- Samtök um sorg og sorgarviðbrögð Fræðslufundur í Fossvogskirkju í kvöld 20. sept. kl. 20. Fyrirlesari sr. Anna Sigríður Pálsdóttir. Allir velkomnir! Sorg og sorgarviðbrögð 66 °N or ðu r/ se pt 07 REYKJAVÍK: Kringlan Bankastræti 5 Faxafen 12 KÓPAVOGUR: Smáralind GARÐABÆR: Miðhraun 11 AKUREYRI: Glerárgata 32 www.66north.is Esja Regnkápa 10.100 kr. Þú ert flottari þurr

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.