Fréttablaðið - 20.09.2007, Qupperneq 16
nær og fjær
„ORÐRÉTT“ Fyrrverandi barnahermaður kemur
Þeim sem hafa gaman af
að ferðast en hafa naum
fjárráð stendur nú nýr
valkostur til boða, svokall-
að sófaflakk. Sigrún Vala
Þorgrímsdóttir og Þórgnýr
Thoroddsen eru í hinum
ört vaxandi hópi sem nýtir
sér þennan nýstárlega
gistimáta, sem á rætur að
rekja til Íslands.
Eins og svo margar nýjungar nú
til dags á sófaflakk, eða „couch
surfing“ eins og það kallast á
ensku, rætur að rekja til netsins.
Einnig á það rætur að rekja til
Íslands. Sófaflakk gengur þannig
fyrir sig að maður skráir sig á
vefsíðuna couchsurfing.com,
borgar þar vægt félagsgjald og
gefur upplýsingar um sig og
getur í framhaldinu sótt um að fá
að gista á sófa annarra víðs vegar
í heiminum. Í staðinn þarf maður
að vera reiðubúinn að hýsa aðra
ferðalanga.
Stofnandi couchsurfing.com
er Bandaríkjamaður að nafni
Casey Fenton sem ferðaðist til
Íslands á sínum tíma. Í stað þess
að gista á hóteli vildi hann kynn-
ast heimamönnum og Reykjavík
eins og þeir þekkja hana. Hann
sendi því 1.500 nemendum við
Háskólann í Reykjavík tölvupóst
og bað einhvern um gistingu. Það
bar árangur; tugir manna svör-
uðu og buðust til að hýsa Fenton,
sem stofnaði heimasíðuna í kjöl-
farið.
Sófaflakkarar fyrirfinnast nú
um allan heim, þar af eru um 200
á Íslandi. Þeirra á meðal er parið
Sigrún Vala Þorgrímsdóttir
háskólanemi og Þórgnýr Thor-
oddsen kvikmyndagerðarmaður.
Þau eru nýkomin heim úr sinni
fyrstu gistiferð til Hollands. „Við
fórum út í þarsíðustu viku og það
gekk mjög vel. Við eigum klár-
lega eftir að nýta okkur þennan
gistimáta aftur.“
Sigrún Vala og Þórgnýr hafa
aftur á móti hýst þeim mun fleiri
frá því að þau skráðu sig á vef-
síðuna. „Það gistu hjá okkur fjór-
tán manns í júlí og annar eins
fjöldi í ágúst,“ segir Sigrún Vala.
„Við vorum mjög heppin með
gesti. Þetta var allt fínt fólk sem
eldaði fyrir okkur og færði okkur
gjafir frá sínu landi. Það má því
segja að um leið og þau kynntust
Íslandi fengum við líka að kynn-
ast broti af þeirra heimahögum,
þeirra menningu og kynntumst
þeirra sjónarhorni á Ísland, sem
er mjög verðmætt.“
Sigrún Vala segir að miklar
varúðarráðstafanir séu gerðar
til að tryggja að fólk fái ekki
vafasama einstaklinga í heim-
sókn. „Til þess borgum við
félagsgjald, til að halda vefsíð-
unni gangandi og til að tryggja
öryggið. Þeir sem hýsa sófa-
flakkara verða vitaskuld að sam-
þykkja gestina sem þeir taka við.
Að heimsókninni lokinni er hægt
að gefa gestunum meðmæli á
vefsíðunni og ef maður er svo
óheppinn að fá einhvern furðu-
fugl í heimsókn þá ræður maður
öðrum einfaldlega frá því að
hýsa hann.“
Sigrún Vala segir að fyrir utan
peninga sem sparast sé sófaflakk
góð leið til að kynnast heima-
mönnum á fjarlægum slóðum.
„Þegar maður gistir á hóteli
kynnist maður sjaldan heima-
mönnum og fer yfirleitt bara á
vinsælustu túristastaðina. Með
þessu móti kynnist maður fólk-
inu í landinu og heimsækir staði
sem maður myndi annars ekki
frétta af og fær miklu meira út
úr ferðinni.“
Sofið í ókunnugum sófum
Harmonikuunnendur á Íslandi
eiga veislu í vændum því hinn
frábæri sænski harmonikuleik-
ari Lars Holm heldur hér tvenna
tónleika, í Skagafirði og Garða-
bæ.
Holm er einn færasti harmoniku-
leikari Svía og einn virtasti harm-
onikuleikari Evrópu. Hann hefur
lengi starfað sem kennari við Tón-
listarháskólann í Málmey og Kon-
unglegu tónlistarakademíuna í
Kaupmannahöfn með harmoniku
sem aðalhljóðfæri og samið
kennsluefni fyrir harmonikunem-
endur. Undanfarin ár hefur Holm
ferðast vítt og breitt um heiminn
og haldið námskeið. Ljóst er því
að hér er um mikinn hvalreka að
ræða fyrir íslenskt tónlistarlíf.
Harmonikuakademían á Íslandi
hefur veg og vanda af komu
Holms hingað sem heldur sína
fyrstu tónleika á föstudagskvöld
í Steinastaðaskóla í Skagafirði,
þar sem hann kynnir fyrir áheyr-
endum tónlist frá ýmsum heims-
hornum. Á laugardag stýrir
Holm, á sama stað, námskeiði
fyrir harmonikukennara og
lengra komna nemendur. Þar
verður einnig samankominn
hópur forystumanna og -kvenna
harmonikufélaga um land allt
vegna landsfundar Sambands
íslenskra harmonikuunnenda.
Lars Holm rekur smiðshöggið á
Íslandsför sína með tónleikum í
sal Tónlistarskóla Garðabæjar á
sunnudagskvöld.
Lars Holm kemur til Íslands
Selavinur Best að klikka þá ekki
Sammála
Stefáni