Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 27

Fréttablaðið - 20.09.2007, Page 27
Ragnheiður Óskarsdóttir, eigandi verslunar- innar Ilse Jacobsen á Garðatorgi í Garðabæ, á leðurjakka sem hún er afar ánægð með. „Nýjasta flíkin er yfirleitt í mestu uppáhaldi hjá mér hverju sinni og nú er það svarbrúni og sanseraði leðurjakkinn minn,“ segir Ragnheiður. Hún fór að sjálfsögðu ekki yfir lækinn til að sækja vatnið heldur keypti jakkann í eigin verslun. Þar eru vörur eftir fleiri hönnuði en Ilse Jacobsen og jakkinn góði er úr nýju haustlínunni frá hinni dönsku Naja Lauf. Spurð um helstu kosti jakkans svarar Ragnheiður: „Fyrir utan að vera nýr þá er hann flottur á litinn og klæði- legur við allt, kjóla, buxur og pils. Hann er líka úr góðu skinni og leður er „inn“ í vetur.“ Nýjasta flíkin flottustAuglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.